Laugardagur, 02. október 2004
blaðamaðurinn: ertu á ferðinni?
anna: nei, ligg uppí rúmi
blaðamaðurinn: ó
anna: hvað ert þú að fara að gera í kvöld?
blaðamaðurinn: ég er að fara út að borða með Jean-Jacques Annaud, leikstjóranum sem gerði myndirnar Enemy At The Gates, Name of the Rose og The Lover.
anna: æ viltu segja honum að ég biðji að heilsa Jude Law
smá þögn
blaðamaðurinn: My ex wife asks you to tell Jude Law she says hi..?
anna: - they are acquainted, já akkúrat.
önnur þögn
anna: Væri það nú ekki fyndið ef hann segði þér að Jude biði að heilsa mér?
blaðamaðurinn: jú en hæpið
anna: stranger things have happened..