www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Í tómu tjóni
Laugardagur, 09. október 2004

Fjandann á ég að gera?

Það þarf ekki eldflaugasérfræðing til að sjá hvernig þetta endar allt saman.

Ég er að drepast úr vöðvabólgu. Vaknaði klukkan sjö í morgun, skrölti framúr til að taka ibufen og skreið aftur uppí rúm. Lá til hálf ellefu að drepast úr verkjum. Nenni ekki til læknisins míns því ég á nóg af ibufeni og nenni ekki heyra hann segja mér að ég sé ung manneskja og verði orðin góð á korteri.

Best ég segi frá því hvernig ég fékk þessa vöðvabólgu in the first place.
Ég var fjórtán ára.

Fékk vinnu yfir sumarið hjá Granda. Var í karfanum. Veit ekki hvað það heitir sem ég var að gera.. fiskurinn var afhöfðaður og datt á borðið hjá mér. Ég hreinsaði innyflin úr honum með einu handtaki og þeytti honum ofaní vatnsker á línunni þar sem hann var skolaður áður en hann hélt áfram ferð sinni sem endaði í kassa á leið til útlanda. Nema.. ég var ein við þessa iðju mína því ég hafði undan vélinni. Gert ráð fyrir tveimur á þessu díteili. Vann frá átta á morgnanna til fjögur/fimm á daginn, nema þegar það var uppgrip, þá var unnið miklu lengur. Stundum kom maður heim um miðnætti og steinrotaðist um leið og maður lagði hausinn á koddann, mættur aftur, úldinn og ruglaður klukkan átta morguninn eftir.

Allan daginn, sama hreyfingin. Ég fékk vöðvabólgu þegar líða tók á sumarið en pældi ekki í því. Of mikilvægt að hafa undan færibandinu og passa að stinga sig ekki á helvítis fisknum, fokk það var vont þegar það gerðist. Heitt bað á kvöldin var algjört must.

Við vorum þéttur hópur í karfanum þetta sumar og sprengdum bónusinn daglega, þar sem við vorum nokkur sem sinntum tveggja manna störfum var meira af peningum á mann. Einn daginn fékk ég yfir þúsund kall á klukkutímann, þeir sem voru eldri fengu meira. Ég var friggin' milljóner þetta sumar en fékk þessa helvítis vöðvabólgu sem tekur sig stundum upp og er gjörsamlega að drepa mig akkúrat núna.

Þetta var gaman. Skemmtilegir krakkar og suma daga fórum við í brjálaða vatnsslagi, eða fiski slag. Þegar það var engin karfi fórum við að salta fisk. Það var ekki nærri því eins skemmtilegt og auk þess miklu erfiðara. Salt í malarskóflu er fokk þungt og það er ekkert grín að ná réttu aðferðunum við að dreyfa þessu á flökin. Hefði ég verið í því lengi hefði ég líklega myrt á mér hægri úlniðin. Sem betur fer var nóg af karfa þetta sumar.

Af hverju er ég með þessa vöðvabólgu núna? Held að það sé stress.


| anna | 11:40 |
comments

gerðu baðyóga.. og teygðu svo vel á.... það gerir meira en ibúfen!

Nr. 1 | posted by: Julia | 9.10.2004 | 11:45:32 | [+] |

Það er ekki vöðvabólgan sem er að kvelja mig mest þessa dagana. Held að hún sé afleiðing en ekki orsök.

Hvenær ætlar þú að kenna mér bað jóga? Geturðu gert það í gegnum síma?

Nr. 2 | posted by: anna | 9.10.2004 | 11:50:49 | [+] |

...þangað til ég gef þér svona bók prófaðu þá þetta http://www.mindtools.com/smpage.html
colgate

Nr. 3 | posted by: Júlía | 9.10.2004 | 12:53:03 | [+] |

Nálastunga, og láttu redda hinu í eitt skipti fyrir öll um leið thumb up

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 9.10.2004 | 15:57:53 | [+] |

Fórstu í nálastungu hér heima eða hjá einhverjum erlendum gúrú Alan?

Nr. 5 | posted by: anna | 9.10.2004 | 18:48:15 | [+] |

Læknar hann líka vöðvabólgu? Djöfuls brill væri það, ég fer nefnilega að vera búin með ibúfenið.. drunk

Nr. 6 | posted by: anna | 9.10.2004 | 19:42:33 | [+] |

Þið Þórdís getið farið saman...

Nr. 7 | posted by: Hildigunnur | 9.10.2004 | 23:47:35 | [+] |

Mig minnir að við höfum keyrt með ákveðnum Willy's bílstjórafrænda eftir Nýbýlaveginum kl. 05.00 nokkra aflamikla morgna og hlustuðum á Frankie goes to Hollywood flytja RELAX hærra en góðu hófi gegnir! Erum við ekki að tala um Bæjarútgerð Reykjavíkur annars? En það breyttist víst í Granda á þessum tíma ef ég man rétt..... nerd

Mikið andskoti var maður ríkur þetta sumarið thumb up thumb up thumb up

Nr. 8 | posted by: edda | 10.10.2004 | 14:16:41 | [+] |

nursing advise: Prufaðu að taka 2 parkódín með íbúfeninu þínu wink

Nr. 9 | posted by: edda | 10.10.2004 | 14:17:18 | [+] |

Ég held að hann lækni bara allt happy

Nr. 10 | posted by: AlanHudson | 10.10.2004 | 21:59:14 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web