www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hrekkjavaka
Sunnudagur, 31. október 2004

Krakkarnir eru búnir að skreyta piparkökurnar. Jóhanna átti heiðurinn af því að hnoða, fletja og "stimpla" nánast allt. Ég ákvað að hún væri alveg nógu stór til að gera þetta sjálf og auk þess nánast grát bað hún mig um það. Ég er að byrja að kenna henni sitt lítið af hverju í almennum heimilisstörfum. Bað hana áðan að taka niður af snúrunum, brjóta saman og ganga frá inní skápa. "Hjúkk að hún bað okkur ekki um að gera þetta" hvíslaði Doddi að vini sínum sem er í heimsókn.

Hann sleppur ekki, er bara of lítill ennþá. Næði ekki upp í snúrurnar nema með heví álstiga. Mér er nú ekki allsvarnað. Auk þess á ég ekki svona stiga og nenni ekki að keyra niðrí Húsasmiðju..


| anna | 17:38 |
comments

Mér þykir þú vernda drenginn! Millistykkið mitt sá um að ganga frá þvottinum sem ég braut saman áðan. Hún fékk reglulega bunka í fangið og fór með í nærfataskúffur í viðeigandi herbergjum, fjórar ferðir með þvottapoka, síðan handklæðin og svo koll af kolli. Gekk mjög vel. Algjör snilld hvað hægt er að nýta þessi dýr þegar þau eru á leikskólaaldri. Þetta er allt eitthvað svo skemmtilegt hjá þeim. Júhú! má ég hjálpa? meðan unglingurinn stynur "ohhh ég þarf að gera allt á þessu heimili!"
Annars hef ég náð Hjúkrun fársjúkra 106 og stefnir í að ég verði heima á morgun og taki 107.
Klikkuð árshátíð í gær með Sveppa og Audda sem veislustjóra og dúndur bandið Hollywood sem sérhæfir sig í íslenskri eighties músik. Dansað á nýju hælunum til klukkan þrjú. Stift drukkið á vatnsbarnum og slæmir fætur í dag auk svefnleysis.....

Nr. 1 | posted by: edda | 31.10.2004 | 20:22:03 | [+] |

Hvar fær maður svona skemmtileg piparkökuform, ég sé aldrei neitt nema hefðbundna karla, kerlingar og jólatré?

Nr. 2 | posted by: Unnur | 1.11.2004 | 9:20:13 | [+] |

Þú finnur þetta m.a. hér og hér.

Mér finnst samt nýjustu formin ekkert spes, eins og á seinni linknum. Finn miklu flottari á ebay og leita helst að Hallmark formum. Finnst þau langflottust. Það er allt morandi af jólakökuformum núna á ebay, gæti ég trúað. Þau eru mörg hver alveg ferlega flott.

Nr. 3 | posted by: anna | 1.11.2004 | 9:40:32 | [+] |

Þessar piparkökur eru náttúrulega bara listaverk!

Nr. 4 | posted by: Sigga | 1.11.2004 | 16:04:27 | [+] |

Já þær eru æðislegar hjá þeim smile

Nr. 5 | posted by: anna | 1.11.2004 | 18:53:04 | [+] |

Anna, Anna, Anna þú ert greinilega ekki með nógu góð sambönd. Ef mig vantaði álstiga úr ónefndu fyrirtæki myndi ég ekki láta mér detta í hug að fara út að keyra.

Viltu fá beina númerið... laughing

Nr. 6 | posted by: Þórlaug | 2.11.2004 | 23:11:28 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web