www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gleðin við völd
Sunnudagur, 03. október 2004

Þessi sunnudagur var æðislega skemmtilegur, fyrir utan ferðina í Kringluna. Ég held að Kringlan sé sannarlega forgarður helvítis.

Annars eru Jóhanna og Doddi orðin eins og grumpy old men. Kýta og þrasa yfir öllum andskotanum og eru að gera mig gráhærða. Get ekki beðið þangar til "annar í VISA" kemur og verkfallið leysist svo það komist einhver regla á þetta blessaða líf sem maður er að reyna að lifa.

Við ætluðum að enda daginn á að fara í húsdýragarðinn til að róa okkur niður og það var eins og eftir pöntun.. við komum á staðinn þremur mín eftir lokun. Sáum samt þann fallegasta kött sem ég hef séð, fyrir utan Köllu Kisuljóns auðvitað. Við enduðum á að leika í grasagarðinum í tæpan klukkutíma. Leituðum að tígrisdýrum í "skóginum".

Vá. Við þurftum sko á þessu að halda. Okkur leið miklu betur á leiðinni heim.

Núna rétt áðan las ég fyrir börnin fyrsta kaflann í sögu sem var lesin fyrir "herbergið" sem ég var í þegar ég var í Kaldárseli. Fann þessa bók á fornsölu einhverjum árum síðar og keypti hana. Þegar ég var búin að lesa sagði Doddi: "mér fannst þetta boring".

Hann er svo uppörvandi alltaf hann Doddi. Það er ekkert venjulegt.


| anna | 21:18 |
comments

VARSTU Í KALDÁRSELI ÉG var sko að vinna þar en man ekki eftir þessari sögu doubt hmm kannski einmitt af því ég var að "vinna" þar 8°°-01°° amk og eitt helgar frí frá 1.jún -ágústloka það helgar frí var mánaðarmótin júní júlí! þvílík þrælkun!

Nr. 1 | posted by: Ásta | 5.10.2004 | 22:59:01 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web