Sunnudagur, 10. október 2004
Skyndilega langar mig í sígarettu. Mig langar svo...
Langar að sjá þennan kunnuglega hlut á milli fingranna og heyra vingjarnlegt snarkið í glóðinni, finna hitann sem hún gefur frá sér. Hugsunin neitar að yfirgefa mig. Fæ engan helvítis frið. Dreymir um þessa tilfinningu. Alsæluna sem fylgir þessum fyrsta smók.. þegar nikótínið smýgur inn í æðarnar í hálsinum, þaðan upp í heila og í nokkrar mínútur líður mér svo vel. Hvað ég myndi gefa fyrir nokkrar mínútur núna. Þessa tilfinningu.
Hef sagt það áður og segi það aftur. Guði sé lof að ég hef aldrei prufað neitt sterkara. Þarf ekki kjarneðlisfræðing til að reikna út hvernig það hefði endað.
Þegar mig langar svona skipta rök engu máli eða skynsemi. Ég er ofurseld lönguninni og ég leyfi mér það. Leyfi mér að dreyma um þennan létti, þennan flótta - sem þetta vissulega er - en mig langar svo..
Ég á peninga og ég á bíl og ég veit hvar er opið á þessum tíma nætur. Ég keyri í huganum niður á BSÍ og sé mig í bílnum, í röð, að bíða eftir að ég komist að.. til að geta sagt: "Camel blue". Konan sem afgreiðir mig mun ekki vita hvað mig langar mikið. Fyrir henni er ég bara viðskiptavinur sem reykir. Hún mun ekki vita hvað hjartað í mér slær hratt af eftirvæntingu og hún mun ekki vita hvað hendurnar á mér skjálfa þegar ég ríf af plastið sem umlykur pakkann. Plastið.. loka hindrunin sem þarf að yfirstíga. Hún mun ekki sjá þegar ég opna pakkann og við mér blasa tuttugu sígarettur, fullar loforðum um alsæluna sem ég sækist eftir. Hún mun ekki sjá þegar ég tek eina upp úr pakkanum og kem henni fyrir í öðru munnvikinu, eins og ég hef gert milljón sinnum áður.
Ég þekki mig og ég veit að ég mun gleyma að kaupa mér eldspýtur og ég verð ekki með kveikjara á mér og kveikjarinn í bílnum er ónýtur og ég mun vera komin langt frá BSÍ þegar ég átta mig á því. Sem verður til þess að ég keyri á ógnarhraða heim, til að finna eld.. til að geta kveikt í, til að finna..
Mér líður betur, þetta er liðið hjá. Nú langar mig bara að fara að sofa.
Temporary insanity. That's all.