Sunnudagur, 24. október 2004
Þetta var æðislega gaman.
Geri grein fyrir þessu seinna, þegar ég get setið við tölvuna skammlaust. Er að drepast í rassinum, fokk. Kom heim klukkan tíu, hlaðin all kyns gjöfum, fór í bað og lagðist upp í rúm því ég var gjörsamlega búin á því. Sofnaði og vaknaði aftur rétt upp úr þrjú í nótt við brjálað blús lag sem einhver tók á píanóið niðri. Ef þetta varst þú Hugi, shit. Þetta var geðveikislega flott, to say the friggin' least.
Nema hvað, ég var vöknuð og sofnaði ekki aftur fyrr en einhverjum klukkutímum seinna. Var lengi vel að spá í að klæða mig og skella mér niður í partíið en var of þreytt til að nenna því...