www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég missi vitið
Miðvikudagur, 20. október 2004

Í gær komu hingað menn. Tveir menn með snúrur og alls kyns dót. Þeir athöfnuðu sig inná baði og komu í gang einhverri viftu sem á að.. æ ég veit ekki hvurn fjandann þetta rusl á að gera. Ég veit bara það, að þegar ég kom heim í dag heyrði ég torkennilegt hljóð. Ég sussaði á öll börnin og gekk á hljóðið, sem kom frá baðherberginu.

Mikil ósköp, jú.. hljóðið er eins og í draug með búúú-æði og það er ekki verandi í helvítis íbúðinni fyrir þessu helvítis söngli. Fór í bað áðan og um leið og ég skrúfaði fyrir vatnið heyrði ég þetta helvítis væl.

Nú spyr ég sjálfa mig: hver á eftir að geta sofið í þessum helvítis látum?

Gef mig ekki út fyrir að vera spákonu.. en ég tel mjög líklegt að þessir menn, báðir tveir, mæti aftur á svæðið til að kveða niður þennan helvítis draug, áður en ég þarf sjálf á særingarmanni að halda.

Það er ekki langt í það.

Fyrst verkfall, svo bóla á ennið, nú draugur inná baði. Hvað næst?


| anna | 19:40 |
comments

Voru þessir tveir að handan í hvítum sloppum?

Nr. 1 | posted by: Tony Clifton | 21.10.2004 | 7:16:57 | [+] |

Sem betur fer ekki.. því þetta hljóð er horfið.

Furðulegt. cool

Nr. 2 | posted by: anna | 21.10.2004 | 8:41:02 | [+] |

Já Anna mín, það er mikið sem á okkur er lagt! Ert ekki þú og börnin annars við hestaheilsu? Hreyfið ykkur óhindrað, borðið góðan mat og eigið yfirleitt hið sæmilegasta líf?
Er sjálf stöðugt að reyna að minna mig á hversu gott við flest höfum það í raun og læt því þessar athugasemdir flakka shy

Nr. 3 | posted by: unz | 21.10.2004 | 9:47:16 | [+] |

vonandi ekki sambúð...þá værirðu fyrst í vondum málum

Nr. 4 | posted by: Norn | 21.10.2004 | 10:59:25 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web