www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Don't worry...
Mánudagur, 11. október 2004

..be happy.

Það er búið að vera ferlega gaman í kvöld.

Ég var að setja í þvottavél snemma í kvöld þegar ég heyrði Dodda söngla "don't worry.. be happy". Ég spurði hvar hann heyrði þetta lag og fékk þær upplýsingar að Bender í Futurama hefði sungið þetta í einum þættinum.

Futurama rúlar.

Vill til að ég á þetta lag og fór að spila það. Við Doddi fórum að dansa, hann uppá stól til að vera jafn hár mér. Það er svo frábært beat í þessu lagi.

Langt síðan ég hef skemmt mér svona vel að dansa við einhvern. Hlakka eiginlega til þegar hann verður eldri og þarf ekki að standa uppá stól (og macintosh dós). Vona bara að hann tapi aldrei þessum eiginleika [8.72 MB .avi].. -að kunna að leika sér.

Tek fram að danshreyfingarnar eru fengnar frá Kuzco sem dansar í kynningunni á DVD disknum.


| anna | 23:55 |
comments

verð víst seint ásökuð um almenna væmni en Ó MÆ GODD! hvað krakkinn er mikið krútt laughing made my day...

Nr. 1 | posted by: væla v | 12.10.2004 | 10:18:12 | [+] |

Hang on hang on hang on...

Hallveig Hildigunnarsystir?

Mér sýnist það svei mér þá...

nú vantar bara Óla, Þorbjörn og foreldrana, þá er allt gengið mætt...

....lýst reyndar rosa vel á það, allt of lítið að sjá ykkur með einhverra ára millibili.

Kveðja frá Berlín, Halldór E.

ps: Anna, tökum kjúlla þegar ég kem heim (ekki á sama hátt og þeir taka hesta í Þorlákshöfn samt)

Nr. 2 | posted by: dorinn | 12.10.2004 | 12:35:45 | [+] |

fokk.. hver er halldór e? hugshugs... alzheimer light alveg að gera sig drunk

Nr. 3 | posted by: væla v | 12.10.2004 | 18:22:27 | [+] |

Wahahahah

Halldór bekkjarbróðir og æskuvinur Þorbjarnar...

Hef nú heilsað þér í japis og öðrum opinberum stöðum þá sjaldan ég hef séð þig... en það eru varla nema svona 5 skipti síðan í gamla daga smile

Nr. 4 | posted by: dorinn | 12.10.2004 | 22:39:44 | [+] |

Ég vil þakka Dodda dúndur enn og aftur fyrir að bjarga deginum hjá mér (sbr. vampírukommentið um heftara-gata-thingie sem ég veit ekki hvað á að heita annað en vampíra auðvitað).

Takk, takk clown

Nr. 5 | posted by: Jóhanna Ýr | 15.10.2004 | 17:52:48 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web