Það styttist..
Fimmtudagur, 28. október 2004
-mátti nú ekki alveg við því, en læt þetta ekki stoppa mig.
Merkilegt hvað fólk getur komið á óvart. Einn viðskiptavina minna heldur úti heimasíðu, augljóslega, nema á heimasíðunni er hann dónalegur og hálfgerður ruddi. Þessi maður kom til mín áðan og hann gæti ekki verið lengra frá því að vera svona í raunveruleikanum. Hvers manns hugljúfi og manni er sönn ánægja að aðstoða þennan mann á allan hátt.
Fleiri en ég sem lifa tvöföldu lífi. Ég læst vera góð og ljúf á síðunni minni en í raunheimum stekkur mér varla bros, ég á það til að hrækja á fólk upp úr þurru og fæstir þora að yrða á mig.
Svona er lífið skrítið.
Var að tala við dórið á msn:
dórið: þú ert belja
anna: þakkir
dórið: beljur eru sætar
Fór að sækja Dodda í selið í gær. Hann lá í gólfinu með hundagrímu og gelti. Sagðist vera Selhundur og að ég væri hundamamma. "Maður segir ekki hundamamma, maður segir tík" sagði ég. "Þú ert tík mamma", sagði Doddi.
Get ekki ákveðið hvort ég eigi að standa upp og fara á klósettið eða skjóta mig í hausinn. The agony of choice..