Miðvikudagur, 06. október 2004
Í gær ákvað ég að elda eggjaköku fyrir okkur í matinn og í stað þess að eggin litu út eins og æla bjó ég til þrjár eggjakökur sem voru in tact og bókstaflega bjútifúl, þó ég segi sjálf frá.
Meira að segja Doddi var himinnlifandi. Ég er ennþá að ná mér og dauðsé eftir að hafa ekki tekið myndir því ég reikna ekki með að þetta muni gerast aftur.
Áðan fór ég heim og gaf fjórum börnum að borða, henti í þvottavél og þreif eldhúsið. Fann á mér í gærkvöldi að það gæti komið sér vel að baka bollur. Þær komu að góðum notum í dag og ég efast um að það verði eitthvað eftir þegar ég kem heim úr vinnunni.