Miðvikudagur, 08. september 2004
Þetta var vel heppnað hádegi. Ég er södd, afslöppuð og líður vel þrátt fyrir að ég klessti bílinn minn aðeins á leiðinni aftur í vinnuna, var reyndar búin að gleyma því, man það núna. Skrapaði hliðina á bílnum á gangstéttarkannti þar sem ég hafði lagt.
Annars hef ég verið að spá í það undanfarið að selja bílinn minn og fá mér annann. Ég þoli nefnilega ekki lengur að geta ekki búið til best of diska til að spila í geislaspilaranum í bílnum og ekki nenni ég að fara með spilarann í viðgerð, það er allt of mikil fyrirhöfn. Miklu einfaldara að fá sér bara nýjan bíl.
Hvernig bíl á ég nú að fá mér? Ég er að spá í Peugeot 206. Spara mér stórfé á mánuði í rekstarkostnað og get spilað tónlistina mína í bílnum. Einu kröfurnar sem ég geri til nýja bílsins eru eftirfarandi:
Að hann komi mér frá stað A til B án mikilla vandræða.
Að ég geti spilað geisladiskana mína í honum.
Að það sé ekki Golf, Hyundai eða Toyota.
Bíllinn má ekki undir neinum kringumstæðum vera hvítur.
Væri til í Hondu, fyrst ég get ekki keypt mér Bentley hvort sem er..
Segið svo að það sé erfitt að gera mér til hæfis..