www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Second Chance
Sunnudagur, 12. september 2004

Myndin Seabiscuit fjallar um second chance. Concepti sem ég er búin að velta fyrir mér undanfarið.

Fyndið hvernig sagan endurtekur sig alltaf. Er það samt ekki undir manni sjálfum komið? Ég meina.. maður hefur frjálsann vilja, er það ekki?

Ég átti samtal við mann um daginn sem hefur þekkt mig frá því ég var tólf ára. Nei, það var ekki fyrrverandi eiginmaður minn:

Anna: af hverju eru karlmenn hræddir við mig?
bird: þú ert scary!
Anna: ÚTSKÝRÐU ÞAÐ NÁNAR TAKK
Anna: hehehe
bird: þú ert frökk og falleg...
bird: need I say more?
Anna: en ég er fullkomlega meinlaus
bird: jú - síðustu árin.
bird: yndisleg og heil.
Anna: takk
Anna: en hér áður fyrr?
bird: þú varst mean.
Anna: er það?
bird: já - við stráka.
bird: nema ég var ekki hræddur við þig wink
Anna: var ég mean við stelpur?
bird: já - líka
Anna: hvernig þá?
Anna: hvað gerði ég?
bird: of langt síðan til að rifja upp
Anna: en þú manst það?
Anna: fokk væri ég til í að taka einn tour upp í haus á þér
Anna: kíkja á skjalasafnið
Anna: ég var bara vond við aðra því mig vantaði svo að einhver væri góður við mig
bird: einmitt
bird: það er lóðið!
bird: svona virkar þetta nefnilega
Anna: en af hverju er ég þá hætt að vera mean? Mig vantar ennþá einhvern sem er góður við mig.
Anna: ég var að fatta
Anna: mig vantar það ekki lengur
bird: *þú* ert góð við þig..
Anna: ..nefnilega

Stundum þarf einhver að hjálpa manni að trúa því að maður sé þess virði að það taki því að lappa upp á mann þegar maður hefur verið under the weather for a long time.

Maður...

Prufum þetta aftur:

Ég þurfti smá hjálp til að trúa því að ég væri þess virði að lappa uppá þegar ég var búin að vera under the weather for a long time.

Best ég taki það fram að það var ekki karlmaður sem veitti þá hjálp. Það var kona. Ég borgaði henni fyrir það.

Boy.. Ef þetta er ekki dæmt til að misskiljast.. hehehe

Anyway.. so this is love?


| anna | 1:18 |
comments

Skvoooo.... þetta býður upp á miklar og flóknar pælingar, analíseringar, helber leiðindi og besservisserahátt. En þar sem nú er sunnudagur, vikan rétt að byrja og óþarfi að sökkva sér í leiðindi segi ég bara til "Lifðu í lukku en ekki í krukku með skrukku!
Virkaði fínt í þá gömlu góðu og ætti alveg eins að virka í dag þó bæst hafi nokkur ár við happy

Nr. 1 | posted by: Unnur | 12.09.2004 | 12:23:44 | [+] |

þessi færsla var akkurat það sem ég þurfti...takk.

Nr. 2 | posted by: tótapála | 12.09.2004 | 14:40:42 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web