Mánudagur, 27. september 2004
Ég get svo SVARIÐ ÞAÐ!
Síðan hún systir mín byrjaði að vinna í sjoppu og gerði mig að gms vini sínum er ekki orðið stundlegur friður fyrir þessari manneskju sem ég er smám saman að læra að hata.
Núna rétt áðan byrjðu sms sendingar dagsins. Fyrst fékk ég eitt. Það innihélt bókstafinn H. Svo fékk ég annað. Það skeyti innihélt bókstafinn A. Næst kom L, svo L, svo O svo upphrópunarmerki. Ég er reyndar að tala við hana í símann akkúrat núna og hún er að segja mér þetta, því ég hætti að lesa eftir A og eyddi þessu út jafn óðum. Ég var í símanum að tala við mömmu. Mamma spurði mig hver fjandinn gengi á. Þá var Júlía komin upp í fimmtán sms. "Ah.. þetta eru bara 30 sms á dag, hún fer að klára kvótann" sagði ég við mömmu.
Stuttu eftir að ég var búin að tala við mömmu hringdi Júlía í mig. Ég bað hana að hætta að hringja í mig og hætta að senda mér sms. Ég hefði heimili til að reka og ég mætti vera að svona vitleysu. Nei, hún ætlar ekki að hætta að hringja. Henni leiðist í sjoppunni því engin kemur að versla. Þá sagði ég henni að næst þegar ég hitti hana ætlaði ég að taka með báðum höndum utan um hálsinn á henni og herða að þangað til hún hættir að anda. "Já, kondu í sjoppuna, mér leiðist svo mikið".
"Ef ég kem í sjoppuna Júlía, þá verður það bara til þess að berja þig".
-"Geeeerðu það" sagði hún.
Mitt næsta bragð verður að hringja í Og Vodafone og fara fram á að þessi manneskja verði gms óvinur minn. Fá nálgunarbann. Ég er að klikkast á þessu helvítis stöðuga áreiti, hana.. eitt sms í viðbót. Ég meinaða..