www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Þrír góðir kjúllar frá Eddu
Fimmtudagur, 09. september 2004

Vegna fjölda áskoranna hef ég fengið leyfi til að opinbera eftirfarandi leyniskjal á síðunni minni:


Halló allir saman!

Nú eru dögum mínum sem heimavinnandi húsmóður senn að ljúka og er því tími til kominn að ég sendi frá mér fleiri góðar enda voru viðbrögðin frábær við síðustu sendingu!

Eins og þið vitið þá hef ég lítið gert annað sl. mánuði en að hafa það gott með tærnar upp í loft og lesa Morgunblaðið, Veru og Alt for damerne. Jú auðvitað kemur það fyrir að ég skelli í eina og eina vél en það er bara þegar Tommi telur sig of upptekinn til þess að þvo þvottinn, en oftast er ég bara að chilla og dúlla við sjálfa mig. Stundum neyðist ég þó til að búa til mat - þó aðallega af því ég þarf sjálf að borða. Kjúklingur er mjög vinsæll á þessu heimili, kannski að því Bónus selur hann ódýrt - nú eða bara af því okkur finnst hann svo góður. Hér koma því þrjár góðar eldunarhugmyndir með kjúklingabringum eða bara heilum kjúlla!

1. Þessi er fengin úr Vikunni sem ég stal á tannlæknastofunni hjá Önnu Margréti í síðustu viku og prufaði í gær. Hann er klikkaður og ég mæli með honum fyrir alla!

* 4 kjúklingabringur, beinlausar og skinnlausar
* nýmalaður pipar
* Herbamare salt (eða bara venjulegt)
* hálf krukka Taco sósa mild (eða önnur sósa eftir smekk)
* 2 bollar Maarud Sour cream and onion kartöfluflögur - millifínmuldar
* 75 gr smjör - brætt

Ofninn í 200°c. Kryddið bringurnar með pipar og salti og smyrjið þær með svolítilli Taco sósu (hálfri krukku ca.). Myljið flögurnar frekar fínt. Veltið bringunum upp úr flögunum og þrýstið þeim vel niður. Raðið þeim á pappírsklædda bökunarplötu og dreifið afganginum af flögumulningnum yfir.
Bræðið smjörið og dreypið því jafnt yfir bringurnar. Bakið í miðjum ofni í ca 30 mín. eða þar til bringurnar eru rétt steiktar í gegn (þið vitið - hægt að skera í þær!).

Með þessu er snilld að hafa Tilda Basmati hrisgrjón, einnig hægt að hafa restina af Taco sósunni (samt óþarfi því kjúllinn er mjög djúsí) og ferskt salat með ristuðum furuhnetum og fetaosti - klikkar ekki. Þessi réttur er mjög fljót gerður - ca 10 mín í undirbúning og svo í ofninn og þá gerir þú salatið og ofninn pípir. Ískalt kók er algjör killer með þessu enda ekta föstudagskvöldmatur þó ég hafi ekki getað beðið með að prufa þetta svo lengi!


2. Svo er það Mexícó kjúllinn hennar Jóhönnu. Hann var einhverntímann búinn til þegar var verið að brainstorma í eldhúsinu og nota það sem til var. Sumir hafa smakkað hann hjá mér en ég bauð upp á þennan í 10 ára afmælinu hennar Jóhönnu og margir hafa verið að biðja um uppskriftina. Nú þar sem uppskriftin er enginn ákvað ég að reyna að nótera hana og senda ykkur!

*Kjúklingur steiktur heill (má líka kaupa hann grillaðann úti í búð) og rifinn niður
*kjúllinn settur niðurrifinn á pönnuna með einu bréfi af einhverri Taco sósu (Casa Fiesta t.d.) og smá ólífuolíu. Ekki nauðsynlegt að nota heilan kjúlla. Má líka skera niður bringur og steikja á pönnunni.
*Doritos Cool American nachos sett í eldfast mót (aðeins mulið - ekki mikið) og kjúklingurinn settur ofan á.
*Svo það sem til er í ísskápnum:
*Spínat steikt á pönnu, sveppir og rauðlaukur og paprika allt létt steikt á pönnunni í ólífuolíu. Líka gott að setja smá Maís baunir (ekki setja geðveikt mikið af öllu)
*Svo ofan á allt þetta setur maður salsa sósu (milda eða medium) - bara í slumpum - ekki þekja allt.
*Einnig Nachos ostasósu í slumpum
*Svo að lokum Mozarella niðurrifinn og það mikið. Svo paprikukrydd yfir ostinn.
*Inn í ofninn á 200°c þar til osturinn er brjáðnaður og orðinn gullinn! ca 20 mín.

Með þessu er að sjálfsögðu hægt að nota það sama og hér að ofan. En næstum nauðsynlegt að allir sem hafa aldur til fái sér ískaldan Corona og hinir fái sér bara kók!


3. Svo er það þessi í salatið. Um daginn langaði mig að gera eitthvað hrikalega gott salat en langaði að fá smá kjúlla með. Þegar ég var búin að steikja kjúllann þá var hann bara svo góður að hann fór aldrei í salat heldur endaði á disknum, sósulaus með hrísgrjónum og soyja!

*Kjúklingabringur skornar í strimla
*Steiktar á pönnu í ólífuolíu og Herbamare salti og nýmöluðum pipar.
*Yfir kjúllann á pönnunni setti ég svo slump af hinni mögnuðu Thai Choice Natural Soy Sauce (hún er frekar sölt svo notið lítið af Herbamare)
*Þá vantaði mig smá gljáa svo ég setti ca eina matskeið (ekki mjög kúfaða) af dökkum púðursykri (ókey ekki fyrir sykursjúka!!)

Klikkað gott. Tommi sagði að þetta væri einn sá besti (hann er á veiðum og ekki búinn að smakka maarud kjúklinginn hér að ofan!!). Salatið var sem sagt út hjá okkur en það er án efa meiri háttar að setja þennan í gott ferskt salat. En ef ekki í salati þá með Tilda basmati grjónum og t.d. heitu baquette með ferskum Mozarella og Basilikuolíu!

Ekki laust við að ég sé að verða svöng enda styttist í næsta sheik hjá mér! Vonandi eru þið óhrædd við að prufa og það er velkomið að hringja í mig ef þið lendið í vandræðum með eitthvað því margt er bara einhversstaðar í gráu sellunum mínum og kemst kannski ekki alveg nógu skýrt niður á blað!!

Alla þessa rétti borðar öll fjölskyldan mín. Stelpurnar elskuðu maarud kjúllann svo þið sem eigið börn sem hata kjúkling - ljúgið! Segið þeim að þetta sé eitthvað eðalkjöt eða fiskur sem þeim finnst gott því þegar þau smakka þá klára þau!!!

Kjúklingaknús til allra
Edda heimavinnandi húsmóðurhjúkka á leiðinni í vinnunna


| anna | 11:09 |
comments

Það er eins gott að Bónus haldi áfram að vera með bringur á tilboði!
En er ekki líka nauðsynlegt að styðja íslenskan iðnað og styrkja kjúklingabændur thumb up

Nr. 1 | posted by: edda | 9.09.2004 | 15:03:18 | [+] |

ég er voða hrædd um að við hættum ekki að borða kjúkling þó hann steinhætti að vera á tilboði. mmmm!

Nr. 2 | posted by: Hildigunnur | 9.09.2004 | 16:41:24 | [+] |

Þúsund billjón þakkir. Nú get ég leikið Fröken Ég kann elda kjúlla. Endaði um síðustu helgi með því að skella kjúllanum inn í örbylgjuna því að ég kunni ekkert á gaseldavélina og allt var í steik. Já, ungdómurinn er sorglega fákunnugur á sviði eldamennsku. En Edda og Anna bæta úr því!!! Kvíði bara því að eignast börn og þurfa að kunna að elda allan þennan óskapnað eins og svið og dót. Reyndar er hafragrautur góður. Og pönnsur.

Nr. 3 | posted by: Guðrún | 9.09.2004 | 16:41:47 | [+] |

Það sem aldrei virðist klikka ofan í okkar vesælu börn eru kjötbollur í brúnni sósu með kartöflum og sultu thumb up
Og elsku Guðrún - lærðu á gasið í guðs bænum!! Eldamennskan verður margfalt einfaldari og maturinn betri. Ég væri ekkert í eldhúsinu án gassins thumb up
Annars tekst henni frænku minni ágætlega upp án þess colgate

Nr. 4 | posted by: edda | 9.09.2004 | 16:55:27 | [+] |

Jesús, ég er svo eldhrædd. Ég myndi ekkert sofa ef ég væri með gas í íbúðinni. Það myndi endanlega alveg fara með lúkkið... drunk

Nr. 5 | posted by: anna | 9.09.2004 | 16:56:46 | [+] |

Já hlakka til að prófa kjúllana! Ætla ða gera tilraun á morgun! Annars prófaði ég í gær uppskriftina sem var í "innlit útlit" og hún var bara megagóð! Árni var reyndar svona þegar hann sá matinn sick drunk oh no! en hann jafnaði sig og fannst þetta bara doubt allt í lagi!!! Hann er enn á því að hann eigi að fá graut í eftirmat.... Hann er alveg í kolvitlausri kynslóð!!!

Nr. 6 | posted by: Ásta | 9.09.2004 | 17:04:02 | [+] |

Það er náttúrlega ekkert grín að eiga svona margar systur! drunk wink

Hvaða uppskrift var í innlit/útlit?

Nr. 7 | posted by: anna | 9.09.2004 | 17:33:07 | [+] |

Sendu mér uppskriftina úr innlit útlit thumb up Sá endinn á þessu og fannst nokkuð girnó!
Hann Árni já er af kolvitlausri kynslóð. Amma var alltaf með eitthvað grautarsull í eftirmat en mikið sem það var nú gott. Okkar kynslóðarhúsmæður nota grjónagrautinn sem aðalrétt (sérstaklega fyrir börnin meðan foreldrarnir fá sér eitthvað meira spennó) en ekki sem fæðubótarefni á eftir dýrindis aðalréttum thumb up

Nr. 8 | posted by: edda | 9.09.2004 | 17:51:11 | [+] |

jamm, grjóninn er þokkalega aðalréttur, mín tvö yngstu éta svona 4 diska hvort af honum og þurfa ekki meira næstu daga...

annars á ég eina aaaansi góða með kjúklingabringum, vill einhver?

Nr. 9 | posted by: Hildigunnur | 10.09.2004 | 22:14:30 | [+] |

Ójá Hildigunnur. Láttu vaða! thumb up colgate

Nr. 10 | posted by: anna | 10.09.2004 | 23:36:39 | [+] |

Endilega! KJúklingur er æði thumb up

Nr. 11 | posted by: edda | 11.09.2004 | 17:15:45 | [+] |

kjúklingabringur, teknar sundur
100 g heslinhetur, muldar
brauðmylsna
smjör
fersk salvía, blöðin bara klippt smá í sundur en þarf ekki að saxa
salt
pipar

blandið saman hnetum og brauðmylsnu. veltið bringunum upp úr blöndunni. hitið í örfáar mínútur í smjörinu með salvíublöðunum við vægan hita. á ekki að brúnast, en gerir ekkert til þó brúnist smá samt.

setja í eldfast fat og steikja í ofni við 150° í 10-15 mínútur.

við höfum yfirleitt basmatihrísgrjón og einhverja góða kalda sósu með þessu. tær snilld í einfaldleikanum smile

Nr. 12 | posted by: Hildigunnur | 12.09.2004 | 13:30:20 | [+] |

æ já, salta og pipra áður en sett í ofninn, gleymdi embarassed

Nr. 13 | posted by: Hildigunnur | 12.09.2004 | 13:31:46 | [+] |

Holy mother of god hvað þetta hljómar girnilega! thumb up

Best að taka bringur úr frystinum. Takk Hildigunnur! Maður ætti kannski að setja upp gagnagrunn... hmmm

Nr. 14 | posted by: anna | 12.09.2004 | 13:37:24 | [+] |

jamm sneðugt!

ég er reyndar á uppskriftalista, brall í baukhann er reyndar daut í augnablikinu, ætti kannski að henda þessari inn þar líka! og jafnvel hinum, frá eddu, ef ég má!

Nr. 15 | posted by: Hildigunnur | 12.09.2004 | 22:17:22 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web