www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Júlía kemur í heimsókn
Miðvikudagur, 15. september 2004

Nú hefur það komið í ljós að ég fæ ekkert frí á kvöldin eftir vinnu fram að áramótum. Líkur eru á því að börnin mín fái hinsvegar langt frí frá skóla fyrir áramót, en það er önnur og miklu sorglegri saga. Þeim finnst nefnilega gaman í skólanum.

Á mánudögum er það karate, þriðjudögum sund, miðvikudögum karate, fimmtudögum sund, föstudögum myndlist og laugardögum karate. Hefst nú skutlið fyrir alvöru.

Í gær var fyrsti dagur í skutli og ég var komin upp í rúm löngu fyrir klukkan ellefu. Gæti líka haft eitthvað með þá staðreynd að gera að Júlía kom í heimsókn.

Að fá Júlíu í heimsókn er eins og að eignast fimmbura sem eru á aldrinum þriggja til átján og allir ofvirkir. A.m.k. stundum. Í gær var hún skæð, enda vinnur hún í sjoppu og er high on sugar þessa dagana. Hún vélaði mig til að kaupa nammi svo ég varð high on sugar líka.. jesús.

Við Júlía erum mjög líkar.. samt ekki.. og með sitthvorn lífsreynslugagnagrunninn. Sem dæmi get ég nefnt samræður sem áttu sér stað í bíl fyrir utan Melabúðina í gær:

Júlía: "jesús Anna, það eru sveppir í hárinu á mér!"
Anna: "hefurðu ekkert komist í bað nýlega? Er ekki bara ráð að reykja þá?"
Júlía: "Reykja sveppi? Þú ert vonlaus"
Anna: "Nú? Hvað gerir maður við sveppi?"
Júlía: "Maður sýður þá í te og drekkur þá. Slappar allur af og svona"
Anna: "já og fær ofskynjanir"
Júlía: "þú talar eins og það sé eitthvað slæmt"
Anna: "en má ekki borða þá líka?"
Júlía: "jújú, en það er betra að sjóða þá, drepur pöddur og svona"

Júlía: "Anna, vá! Sjáðu hvað ég fann í eyranu á mér!"
Anna: "Djöfuls viðbjóður Júlía! Hvað er að þér!!!"

Að fá Júlíu í heimsókn getur orðið að hreinni martröð. Þannig hafði ég ákveðið að elda grjónagraut úr afgangs hrísgrjónum frá því deginum áður ofaní börnin en ég ætlaði að fá mér samloku...

Júlía: "æji ég vil líka grjónagraut!"
Anna: "það er bara til nóg fyrir krakkana"
Júlía: "hafðu grjónagraut fyrir mig líka"
Anna: "ég skal hafa grjónagraut fyrir þig líka ef þú eldar hann"
Júlía: "ég nenni því ekkert"
Anna: "ekki ég heldur"

Þegar ég setti upp dreymna svipinn í bílnum og sagði..

"Oh Júlía ég er svo... "

-greip Júlía frammí:

"NEIIIIIIII ANNA! EKKI NÚNA! ÉG NENNI EKKI AÐ HLUSTA Á ÞIG! TÖLUM UM MIG EINU SINNI! TÖLUM UM MIG! MIG MIG!"

(ok ég viðurkenni.. she had a point there, ég er búin að vera gjörsamlega óþolandi undanfarið)

Eftir mat fór Júlía í eltingarleik við krakkana inn í eldhúsið og út úr því aftur, ég lét mig fallast á stól og greip um ennið með tilþrifum. Júlía greip um bakið á stólnum og hristi hann. Ég fer á taugum.

Stuttu síðar sendi ég börnin inn í rúm og svo bara varð ég að fara í bað. Júlía kom til mín og sagði mér að ég væri óþokki að fara svona í bað á meðan hún væri í heimsókn.. því nú langaði hana að fara í bað. Svo sagði hún mér frá draugnum sem býr á baðherberginu heima hjá henni og hvernig mamma ræðst á Snrub og kyssir hann á almannafæri. Aumingja Snrub.

Já, hún sagði líka eitt voða sætt við mig. Hún sagði mér að Snrub hefði sagt "rosalega er systir þín orðin grönn og sæt" eftir að þau komu í heimsókn til mín þegar ég var með veikindi dauðans og leið eins og jógúrtdós neðst í innkaupapoka úr bónus.

Það yljaði mér um hjartaræturnar.

Hún fór skömmu síðar og ég lá í baði, lengi, lengi... dreymin á svip og hugsaði:
"oh ég er svo..."


| anna | 15:04 |
comments

...ástfangin?

Má maður spöklera.

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 15.09.2004 | 21:20:08 | [+] |

Nota bene, ekkert endilega af karlmanni, bara svona af lífinu in general.

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 15.09.2004 | 21:20:53 | [+] |

Slysaðiðst hingað inn þegar ég fletti upp orðunum "Herbalife og verð" á googel. smile Les aldrei blogg hjá þeim sem ég ekki þekki, en gat ekki stillt mig að segja að þú ert frábær penni. Maður hrósar aldrei of oft er það???
Kveðja af Norðurlandi

Nr. 3 | posted by: Ginga | 16.09.2004 | 8:56:46 | [+] |

Takk Ginga! happy

Nr. 4 | posted by: anna | 16.09.2004 | 9:21:27 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web