www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Jason Bourne
Laugardagur, 04. september 2004

Að horfa á The Bourne Supremacy er eins og að horfa á þvott í þvottavél. Maður veit að það eru tvennar buxur, peysa, nærbuxur og stuttermabolur í vélinni.. maður sér bits and pieces af þessu drasli.. en ekki nóg til að greina það í sundur eða fylgjast með því sem er að gerast. Ég kalla þetta M-TV myndatöku. I'm too old for this shit.

Nú má ekki gleyma því að Matt Damon þyrfti að láta laga fleira en nefið á sér til að virka í hlutverki morðingja. Hann þyrfti að undirgangast face/off aðgerð ásamt persónuleikaígræðslu. Maðurinn er svo ljótur og óinteresant að það hálfa væri strax algjört overkill. Jesús! Hann er lifandi dæmi þess að maður þarf ekki að vera bjútifúl til að meikaða í Hollywood.

Já.. ég stend við þá samsæriskenningu mína að Ben og Matt hafi rænt handritinu, sem kom þeim á kortið, af bókmenntanörd og myrt hann á hrottalegan hátt. Einn daginn kemur í ljós að ég hafði rétt fyrir mér. Þeir virka allavega ekki alveg overfurnished in the brain department.

Bygons.

Plottið var fyrirsjáanlegt þó ruglingslegt væri í byrjun. Aðal vondurinn var given og þetta með litlu stelpuna líka. Bourne er hálfgert wuse.

Djöfull leiðast mér bílaeltingaleikir og mér er sama í hvaða borg. Í þvottavél er þetta verra en venjulega.

Það er samt alltaf einn ljós punktur í tilverunni. Aðalleikona myndarinnar er í uppáhaldi og það fer henni bara helv. vel að vera svona alvörugefin. Hún kom því sannfærandi frá sér. Annars fannst mér sumar senurnar einkennast af hálfgerðu fumi, eins og leikararnir væru meðvitaðir um að þetta væri þvottavélaeffect mynd og engin myndi taka eftir því þótt þeir dyttu út úr karakter öðru hvoru og boruðu í nefið.

Leikstjórinn Paul Greengrass gerði Bloody Sunday góð skil í samnefndri mynd en þessi maður á ekkert erindi til Hollywood ef þetta er það sem hann hefur uppá að bjóða. Ætti allavega að ráða til sín betri klippara og skárri lagasmið. Tónlistin blew dog.

Þessi mynd fær 0 skull.

En mikið helvíti var myndarlegur maður sem sat við hliðina á mér alla myndina...


| anna | 22:26 |
comments

fórstu semsagt í bíó í staðinn fyrir viðey wink

mér fundust bækurnar frábærar hér í denn! en ruglingslegar voru þær, ójá!

Nr. 1 | posted by: Hildigunnur | 4.09.2004 | 23:31:20 | [+] |

jamm, hann var alveg kúl! ég hef reyndar hvoruga myndanna séð.

við komum ekki í bæinn úr viðey fyrr en klukkan var að verða 8. tekur engan smá tíma að hlaða öllum þessum krökkum úr og í bátana. það var samt gaman, þrátt fyrir skúrir thumb up

Nr. 2 | posted by: Hildigunnur | 5.09.2004 | 8:57:19 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web