www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
gsm vinur
Fimmtudagur, 02. september 2004

Fékk sms í gær:

"Gettu hver er gsm vinur thinn? Spennandi!"

Það fór um mig hrollur. Hvaða helvítis stalker er nú þetta? Ég skrollaði niður til að sjá sender og komst að því að þetta sms var frá Júlíu systur. Ég hringdi í Júlíu:

Júlía: "HÆ GSM VINUR!"
Anna: "ha..æ, hvað ertu að tala um?"
Júlía: "ÞÚ ERT NÝJI GSM VINUR MINN ANNA! ÉG FÆ AÐ HAFA TVO OG ÞÚ ERT EINN!"
Anna: [klökk] "Í alvöru? Ætlarðu þá að hætta að hringja í mig og skella á, þegar þú vilt að ég hringi í þig?"
Júlía: "JÁ!!!!!"
Anna: "Oh Júlía.. þú ert líka gsm vinur minn"
Júlía: "OH ANNA! VIÐ ERUM SVO ÆÐISLEGAR!"

Í dag fékk ég sms:

"Hallo gsm vinur! Eg get sent ter sms og hring i thig FRITT!"

Þremur mínútum seinna:

"Mér leiddist í skolanum...."


Ég er ekkert smá hamingjusöm að eiga gsm vin. Ekki dónalegt að það sé systir mín, sem er btw besta systir í öllum heiminum OG ég keypti handa henni gjöf í London.. sem hún veit ekki hvað er.. og hún er svo forvitin..

tíhíhí.. ó Júlía.. ég er að horfa á hana.. þú þarft bara að koma í heimsókn.. þá gef ég þér hana.. úúúúúú spennandi!

Takk fyrir að vera gsm vinur minn. Þú ert fyrsti gsm vinur minn í öllum heiminum.


| anna | 23:27 |
comments

Ég fæ alltaf svona gæsahúðahroll þegar systur tala um hvora aðra af ást. Þú ættir að setja stefnu á það að eiga aðra stelpu, Jóhönnu vegna. Það vildi ég við þig sagt hafa í dag.

Nr. 1 | posted by: Úllen Dúllen | 3.09.2004 | 0:57:40 | [+] |

símavinir og systur eru kúl

hei, komið þið jóhanna í viðey á morgun eftir vinnusmiðju? hmmm

Nr. 2 | posted by: Hildigunnur | 3.09.2004 | 11:21:36 | [+] |

Ekkert smá flottur Doddi í blaðinu í morgun thumb up

Nr. 3 | posted by: edda | 3.09.2004 | 14:16:11 | [+] |

Já hann er algjör dúlla og svo svakalega sterkur! thumb up

Nr. 4 | posted by: anna | 3.09.2004 | 14:42:44 | [+] |

jú jú, við fífa mætum galvaskar! kann nú ekki við að moka okkur öllum með, svolítið mörg. en þetta verður örugglega gaman colgate

Nr. 5 | posted by: Hildigunnur | 3.09.2004 | 14:59:20 | [+] |

verð eiginlega að fara að tengja á þig, þetta er ekki orðið hægt!

Nr. 6 | posted by: Hildigunnur | 3.09.2004 | 15:00:15 | [+] |

HALLÓ GSM VINUR wave wave wave

wave GSM VINUR wave


ps. jónsi vill ekki fleiri sad - ætli Bo Hall sé með ogvodafone? doubt

Nr. 7 | posted by: edda | 7.09.2004 | 0:24:05 | [+] |

HALLÓ GSM VINUR! wave wave wave

Nr. 8 | posted by: anna | 7.09.2004 | 8:47:39 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web