Miðvikudagur, 22. september 2004
Ég á frí í kvöld. Byrjaði fríkvöldið á því að elda handa mér mat. Hitaði kjúklingaleifar á pönnu, skellti ofaná það einhverju salati og.. hvað heitir það? sól eitthvað.. fræ. Bygons. Allavega.. fékk mér í eftirmat brauð með ferskum mozarella og basil olíu. Þegar ég beit í brauðið lyngdi ég aftur augunum og gaf frá mér nautnarlegt "AHhhhhhh".
Það er einn galli við að hafa börnin heima í verkfallsvörslu.. það fylgir því alveg rosalega mikið drasl. Börnin gleyma nefnilega að þrífa eftir sig oft þegar mamma grýla er ekki heima. Það var nú leiðinlegt - fyrir þau.
Vegna þess að þegar mamma grýla kemur heim.. þá er engin miskunn sýnd. Hef sagt þeim: "I take no prisoners".
Þau vita ekki ennþá alveg hvað ég meina með því, en það er bara betra. Mistík er alltaf góð.
Hvað á maður nú af sér að gera?