Sunnudagur, 12. september 2004
Þegar ég vaknaði í morgun leit ég svakalega vel út. Hef ekki litið svona vel út árum saman. Bæði var ég vel sofin, og svo virðist nýja dagkremið sem ég er farin að nota vera að gera kraftaverk á húðinni á mér.
-Gæti líka verið að ég sé búin að taka út mína refsingu og að kókið og nammið sé að hverfa úr systeminu. Eitthvað er það.
Ég byrjaði daginn á því að læra, læra og læra. Alveg er ég búin að vera ógó dugleg um helgina, það er nokkuð ljóst.
Þegar ég var búin að læra vappaði ég um íbúðina og lét mér leiðast í eins og klukkutíma. Datt þá í hug að plokka á mér augabrúnirnar, svona í tilefni dagsins og líka vegna þess að ég lít svakalega vel út og er að fara út að borða í kvöld. Alltaf gaman að hafa plokkaðar augabrúnir við svoleiðis tækifæri.
Ég náði mér í 5x stækkunnar spegilinn sem ég keypti mér útí apóteki um daginn, skrifborðslampa með 60w peru og kom mér fyrir.
Áður en lengra er haldið vil ég lýsa því yfir að það ætti að banna 5x stækkunnar spegla. Það ætti líka að banna karlmenn sem sjá fulla sjón. Allir karlmenn ættu að vera minnst mínus 1.75 á báðum augum.
Þvílíki viðbjóðurinn sem mætti mér þegar ég færði andlitið upp að þessum spegli. Og ég sem hélt að húðin á mér væri orðin eins og á hvítvoðungi. Ljóta vitleysan. Ég komst að því, mér til mikillar skelfingar, að ég er komin með hár á nefið.
HVAÐA RÉTTLÆTI ER Í ÞVÍ?
Ég meinaða. Hár á nefið. Sure, þau eru lítil og fínleg og stutt, en hár engu að síður! Veit nú alveg hvernig það endar, enda ekki fædd í gær. Er með nógu mörg helvítis nornahár undir kjálkanum, fæ Júlíu ekki nógu oft í heimsókn til að stemma stigu við þann andskota. Ef ég legðist nú í rúmið í mánuð í coma myndi ég stíga upp lítandi út eins og grýla, það er morgunljóst. Með nornahár undir kjálkanum, á hökunni, kinnunum og.. ekki stutt í að ÞAU KOMI Á NEFIÐ LÍKA. Ég er reyndar ekki komin með hár á milli brjóstanna en ég bíð bara róleg. Ég er manneskja sem á ekki að taka vítamín sem bæta hárvöxt. Má ég þá biðja um lepjulegt og líflaust hár á hausnum ef það verður til þess að ég fæ ekki eitthvað til að flétta á milli brjóstanna.
Því miður er þetta ekki allt.
Ég fór auðvitað að plokka hárin á nefinu á mér, enda komst ég ekki að augabrúnunum fyrir þeim, frumskógur sem þetta er, nema með einu hárinu kom HEILL FÍLAPENSILL MEÐ! Já.. ég er með svo massíva fílapensla á nefinu og ÉG GET PLOKKAÐ ÞÁ MEÐ PLOKKARA!
Ef þetta er ekki rétti tíminn til að leggjast í þunglyndi, þá veit ég ekki hvað. Ég hætti strax að plokka hárin og fór að plokka fílapensla.
Skynsamlegast hefði verið að standa upp og hætta akkúrat á þessum tímapunkti..
..því auðvitað reyndi ég næst að plokka fílapenslana á hökunni næst en það gekk verr. Þeir virðast mýkri þar, svo ég grýtti plokkaranum út í horn og gjörsamlega missti mig. Fyrst var það hakan, svo færði ég mig út á kinn, þaðan upp á enni og svo var nefið tekið með áhlaupi. Andlitið á mér er eins og eftir býflugnaárás. Ég er útkreist.
Var ég búin að minnast á að ég er að fara út að borða í kvöld?