Sjónvarpsefni - sápa
Miðvikudagur, 01. september 2004
Ég keypti mér slatta af DVD myndum í London. Bestu kaupin sem ég gerði voru þó óumdeilanlega tvær fyrstu seríurnar af Frasier. Það er eins og að hafa gamla kunningja í heimsókn að spila þetta gæða efni.
Ég byrjaði auðvitað á byrjuninni og komst að því að fyrstu þættirnir eru svona la-la, enda leikararnir augljóslega að finna sig í hlutverkunum. Það var eitt sem okkur blaðamanninn greindi á um, hann sagði að við værum mere consumers en ég sagði "we could write this shit".
Ég stend við þá fullyrðingu.
Mig dreymir um að skrifa sitcom pilot um dysfunctional klassíska íslenska fjölskyldu. Einn daginn vinn ég kannski í lottói og get hætt að vinna.. og farið að skrifa. Verð að muna að fara að kaupa miða.
Þangað til held ég áfram með anna.is en er að spá í að breyta aðeins um stíl. Lýsa hrakförum mínum í ástarmálum. Þó hrakfarirnar séu ekki raunverulegar, enda myndi ég aldrei lýsa þeim á síðunni minni, þá get ég vel ímyndað mér hvað myndi gerast ef ég færi nú út á markaðinn með alvöru leit í huga. Því eins og allir vita, þá finnur maður ekkert þegar maður er að leita. A.m.k. sjaldnast eitthvað eigulegt.
Hrakfarir en líka litlir smásigrar inná milli. Maður verður alltaf að vera winner stundum. Má ekki vera of glataður.
Ég er að spá í að byrja í kvöld. Sleppa Jude Law alveg, enda hefur hann miklu meiri áhuga á tvivial en mér, virðist vera. Ef ekki.. nú þá er maðurinn bara ruglaður nema ef ske kynni að þessi latex galli hafi ekki alveg verið að gera það fyrir hann. Eitthvað var það. Kvarta allavega ekki yfir.. sko sjáiði! Ég ætlaði að skrifa mannin út en hann skrifar sig bara inn aftur.
Jesús.
Ah.. hef hann inni þá. En bæti við nokkrum í viðbót. Þar sem ég stunda ekki skemmtanalífið mun ég kynnast þeim á óvenjulegum stöðum, en um leið benda á að maður getur fundið ást og losta hvar sem er. Ég sé fyrir mér að ég komi til með að hitta markaðsstjóra á næstunni, líklega í bílapartabúð.. þegar ég kaupi loksins afturljós á bílinn minn. Það er rosalega líklegt scenario. Það er líka rosalega líklegt að ég klessi á myndarlegan karlmann á Miklubrautinni bráðlega sem fellur fyrir mér og býðst til að borga viðgerðina á mínum bíl, just to be nice. Já svo hringir örugglega í mig í vinnuna fjallmyndalegur karlmaður sem leikur í auglýsingum sem býður mér í keiluhöllina.
Ég er að hugsa um að láta pabba flytja til mín líka, karlægt gamalmenni sem hatar börn, drekkur íslenskt brennivín í bílhlössum og gengur með staf sem hann notar til að berja fólk sem fer í taugarnar á honum. Höfum hann mjög sjóndapran og heyrnalausan en þar fyrir utan fílhraustann.
When all of this is goin' on ætla ég að taka fjögur fög í VMA, sjá um að keyra börnin í karate og sund eftir vinnu, þrífa ofninn once in a while, fara í bað og stunda heitt kynlíf þegar færi gefst með flotta gæjanum sem ég hitti út á bílaplani um daginn, sem vill ekki búa með mér eftir að pabbi kom inn í myndina. Býður upp á endalausa árekstra og skemmtilegheit. Já, best að hann búi með danskri frænku sinni sem vinnur á vöktum. Höfum hana í eldri kantinum líka... -eða miðaldra, ennþá í leitinni endalausu að þessari einu sönnu ást. Já.. það er betra. Hún talar að sjálfsögðu enga íslensku og er með tourette syndrome.
Ef þetta er ekki uppskrift, þá veit ég ekki hvað.
Það minnir mig á.. ég hefði átt að taka einn dönskuáfanga líka. Ég tala ekki stakt orð í dönsku!
|
|
 |
 |
"What do you want?"
Miðvikudagur, 01. september 2004
Ég var í bíó með mömmu áðan. Fórum að sjá "The Notebook". Við mamma sátum og horfðum á kredit listann þegar myndin var búin, því ég gat ekki staðið upp. Ég var sem lömuð og gat ekki stöðvað tárin, þau héldu áfram að streyma fram endalaust... og þrátt fyrir áratuga reynslu í að bæla niður eigin tilfinningar og halda aftur af tárum, þá gat ég ekkert gert til að stoppa þetta. Ég sat bara í myrkrinu og grét í hljóði.
Þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður.
Ég hef tárast í bíó og ég vissi að þetta væri vasaklútamynd, en come on!
This is ridiculous!
Í bílnum bað ég mömmu um að flýta sér, því ég þyrfti að fara heim að gráta. Ég fann það bara. Ég hef þurft að gráta lengi og þessi mynd losaði um einhverja helvítis stíflu í tárkirtlunum og vá.. ég opnaði hurðina heima, sagði við börnin: "það er ekkert að, nema ég fór í bíó og sá svo fallega mynd að mig langar til að gráta, er það ekki í lagi?"
Jújú, það var í lagi og nú sit ég hér og græt á meðan þau eru að horfa á Ferris Bueller's Day Off. Jóhanna er að þýða beint ofaní Dodda.
Það sem ég sá í bíó er það fallegasta sem ég hef á ævinni séð.
Því miður get ég ekki linkað á lagið sem mig langar að hafa hérna.. en ég get sagt hvaða lag það er:
"I'll be seeing you - Jimmy Durante"
Rosalega er þetta stresslosandi. Ég ætti að gráta miklu oftar.
|
|
 |
 |
gsm vinur
Fimmtudagur, 02. september 2004
Fékk sms í gær:
"Gettu hver er gsm vinur thinn? Spennandi!"
Það fór um mig hrollur. Hvaða helvítis stalker er nú þetta? Ég skrollaði niður til að sjá sender og komst að því að þetta sms var frá Júlíu systur. Ég hringdi í Júlíu:
Júlía: "HÆ GSM VINUR!"
Anna: "ha..æ, hvað ertu að tala um?"
Júlía: "ÞÚ ERT NÝJI GSM VINUR MINN ANNA! ÉG FÆ AÐ HAFA TVO OG ÞÚ ERT EINN!"
Anna: [klökk] "Í alvöru? Ætlarðu þá að hætta að hringja í mig og skella á, þegar þú vilt að ég hringi í þig?"
Júlía: "JÁ!!!!!"
Anna: "Oh Júlía.. þú ert líka gsm vinur minn"
Júlía: "OH ANNA! VIÐ ERUM SVO ÆÐISLEGAR!"
Í dag fékk ég sms:
"Hallo gsm vinur! Eg get sent ter sms og hring i thig FRITT!"
Þremur mínútum seinna:
"Mér leiddist í skolanum...."
Ég er ekkert smá hamingjusöm að eiga gsm vin. Ekki dónalegt að það sé systir mín, sem er btw besta systir í öllum heiminum OG ég keypti handa henni gjöf í London.. sem hún veit ekki hvað er.. og hún er svo forvitin..
tíhíhí.. ó Júlía.. ég er að horfa á hana.. þú þarft bara að koma í heimsókn.. þá gef ég þér hana.. úúúúúú spennandi!
Takk fyrir að vera gsm vinur minn. Þú ert fyrsti gsm vinur minn í öllum heiminum.
|
|
 |
 |
Rufus & Werner
Föstudagur, 03. september 2004
Þegar ég kom heim frá London tók ég með mér tvo laumufarþega.
Rottu og kanínu; Rufus og Werner.
Með þeirra hjálp hugsa ég að hægt sé að fá Dodda til að borða kjúkling, svei mér þá. Hefur ekki reynt á það ennþá en hann tekur til eftir sig og slekkur á sjónvarpinu þegar þeir segja honum að gera það. Hann hlær yfirleitt alveg svakalega mikið líka á meðan því honum finnst þeir svo fyndnir.
Werner er kanína sem baðar mikið út höndunum, tekur fyrir augun, skelfur og stamar þegar honum er mikið niðri fyrir. Hálfgerður aumingi ef þú spyrð mig. Þorir engu. Rufus er snöggtum gáfaðari en Werner, enda er hann yfirleitt heilinn á bak við allt sem þeim dettur í hug að gera. Rufus er hinsvegar lítið fyrir framkvæmdir en finnst súkkulaði alveg svakalega gott og að sitja og hugsa. Werner er meira fyrir karamellur.
Annars gæti það breyst. Ég ræð ekkert við þá þegar þeir eru komnir á hendurnar á mér..
|
|
 |
 |
Nifur og lýru
Föstudagur, 03. september 2004
Ég held að það sé súrefnisskortur á vinnustaðnum mínum. Ég held í alvöru að ég þjáist af súrefnisskorti seinnipartinn í vinnunni eftir að ég hætti að reykja og fara út á klukkutíma fresti til að fylla lungun af fersku lofti.
- So to speak.
Það er nefnilega þannig að ég er gjörsamlega að lyppast niður alltaf rétt fyrir klukkan fimm og það tekur mig klukkutíma að ná upp orku og e.k. vitund.
Í gær lá ég eins og hrúgald í stólnum og gat ekki haldið augunum opnum. Fyrirliggjandi var að sækja börn í skóla og fara heim að elda og ég bara meikaði ekki að gera það. Datt í hug að hafa Corn Flakes í matinn.. en sá að það var tómt rugl. Ég bara nennti því ekki. Hvað gerir maður?
Jú.. maður hringir í mömmu:
Anna: "mamma?"
Mamma: "já, hvað segir þú gott?"
Anna: "oh.. mamma.. ég er að deyja"
Mamma: "langar þig að koma í mat?"
Anna: "já.. með krakkana"
Mamma: "reiknaði með því, blessuð drífðu þig, það verða hjörtu og nýru með karöflumús"
Anna: "grrrr sleeeeef"
Mamma: "hahaha, matur klukkan sjö, ætla að hringja í Begga og tékka á hvort það þarf að kaupa meira"
Anna: "takk mamma"
Mamma: "það var ekkert"
Ég skellti á og held að ég hafi svo sofnað í stólnum. Vaknaði við "sjáumst á morgun" frá samstarfsmanni, opnaði aðra glyrnuna og kíkti á klukkuna. Fimm. Ég stóð upp og fór.
Ég fór heim, náði í krakkana og hélt af stað inní Kópavog. Á leiðinni datt ég úr sambandi og náði meðvitund rétt hjá Smáralind. Skildi ekki af hverju ég var komin þangað, mamma á ekki heima nálægt Smáralind. Ákvað að versla í Bónus, fyrst ég var stödd þarna in the first place. Keypti þar pottasett á 2.999.- kr (sem virkar, mér til mikillar furðu) og Doddi söng "When Cameron was in Egypts land.. let my Cameron go" fyrir þá sem biðu í röðinni á kassanum með okkur. Spilaði undir á innkaupakörfuna með ísspinnapriki.
Fórum úr Bónus og heim til mömmu. Júlía kom líka í mat og ég sver.. ég hef ekki skemmt mér svona vel í matarboði í langan, langan tíma. Þetta var virkilega gaman. Mikið rosalega eru hjörtu og nýru svakalega góður matur.
|
|
 |
 |
Jason Bourne
Laugardagur, 04. september 2004
Að horfa á The Bourne Supremacy er eins og að horfa á þvott í þvottavél. Maður veit að það eru tvennar buxur, peysa, nærbuxur og stuttermabolur í vélinni.. maður sér bits and pieces af þessu drasli.. en ekki nóg til að greina það í sundur eða fylgjast með því sem er að gerast. Ég kalla þetta M-TV myndatöku. I'm too old for this shit.
Nú má ekki gleyma því að Matt Damon þyrfti að láta laga fleira en nefið á sér til að virka í hlutverki morðingja. Hann þyrfti að undirgangast face/off aðgerð ásamt persónuleikaígræðslu. Maðurinn er svo ljótur og óinteresant að það hálfa væri strax algjört overkill. Jesús! Hann er lifandi dæmi þess að maður þarf ekki að vera bjútifúl til að meikaða í Hollywood.
Já.. ég stend við þá samsæriskenningu mína að Ben og Matt hafi rænt handritinu, sem kom þeim á kortið, af bókmenntanörd og myrt hann á hrottalegan hátt. Einn daginn kemur í ljós að ég hafði rétt fyrir mér. Þeir virka allavega ekki alveg overfurnished in the brain department.
Bygons.
Plottið var fyrirsjáanlegt þó ruglingslegt væri í byrjun. Aðal vondurinn var given og þetta með litlu stelpuna líka. Bourne er hálfgert wuse.
Djöfull leiðast mér bílaeltingaleikir og mér er sama í hvaða borg. Í þvottavél er þetta verra en venjulega.
Það er samt alltaf einn ljós punktur í tilverunni. Aðalleikona myndarinnar er í uppáhaldi og það fer henni bara helv. vel að vera svona alvörugefin. Hún kom því sannfærandi frá sér. Annars fannst mér sumar senurnar einkennast af hálfgerðu fumi, eins og leikararnir væru meðvitaðir um að þetta væri þvottavélaeffect mynd og engin myndi taka eftir því þótt þeir dyttu út úr karakter öðru hvoru og boruðu í nefið.
Leikstjórinn Paul Greengrass gerði Bloody Sunday góð skil í samnefndri mynd en þessi maður á ekkert erindi til Hollywood ef þetta er það sem hann hefur uppá að bjóða. Ætti allavega að ráða til sín betri klippara og skárri lagasmið. Tónlistin blew dog.
Þessi mynd fær skull.
En mikið helvíti var myndarlegur maður sem sat við hliðina á mér alla myndina...
|
|
 |
 |
Song Of The Week
Sunnudagur, 05. september 2004
"lag" er nafnið á laginu í song of the week, og öllum lögum hér eftir. Tengillinn er fyrir neðan textann með númeri lagsins. Þú hægrismellir, velur "save target as", breytir heitinu á niðurhalinu og setur númer lagsins (sem er á linknum) fyrir aftan nafnið og viðeigandi endingu, mp3.
Veit ekki hvort ég má þetta heldur en lögin verða bara uppi þá viku sem þau eru song of the week.
Mér er skít sama þótt útlendingar geti ekki nálgast lögin. Ef þú sleppir því að setja lag fyrir framan númer lagsins færðu styttri útgáfu, e.k. sample.
Life is a bitch, and then you die.
|
|
 |
 |
Driftin' off
Sunnudagur, 05. september 2004
Vá hvað þetta er óþægilegt. Ég fór í bað áðan, upp í rúm og sofnaði - óvart.
Jóhanna var að vekja mig. Sagði: "mamma, klukkan er tuttugu mínútur í níu" og ég hélt að það væri komin morgun og að ég væri að sofa yfir mig.
Ég stökk á fætur, hálf ringluð, og sagði: "í föt Doddi, Jóhanna: ertu búin að borða?, Doddi! í föt!!
Það er svona að hlusta á UB40 í lúppu marr. Maður slakar allt of vel á!
Identity chrisis
Mánudagur, 06. september 2004
Jesús! Ég held að Rufus sé ekki rotta!
|
|
 |
 |
Tune in
Þriðjudagur, 07. september 2004
Fór á Kaffibrennsluna í hádeginu og fékk mér "bland" mat. Oh well.. var allavega í frábærum félagsskap. Sumt fólk er bara ekki nóg að hitta yfir hádegismat, þessi vinkona mín er einmitt þannig. Mig langaði ekki að fara - en.. I'm a working girl.
Ég lagði bílnum fyrir framan Pelsinn og þegar ég var að fara var ég hálf lokuð inni. Vildi mér til happs að vingjarnlegur lögreglumaður lóðsaði mig út úr stæðinu. Annars hefði ég ekki átt séns í helvíti að komast út.
Once again.. borgaði ég ekki í stöðumælinn og fékk ekki sekt.
Annars er ég fucked up. Er búin að vera að borða nammið sem ég keypti í fríhöfninni og er öll tjúnuð og dysfunctional eitthvað. Fyrir nú utan hvað ég er sexually frústreruð, það er ekki lítið.
Ah.. sjáum hvað morgundagurinn ber í skauti sér. With luck þá verður nammið búið og ég fæ eitthvað annað en "bland" mat í hádeginu. Vonandi eitthvað sem getur satt sárasta hungrið allavega.
Djöfull að vera svona pirraður.
|
|
 |
 |
Touchdown!
Þriðjudagur, 07. september 2004
Kjúklingastríðið er unnið.
Ladies and gents, I give you....
RUFUS AND WERNER!
Í kvöld fór ég að versla í matinn. Kom heim með kjúkling. Áður en Doddi gat sagt óge.. sagði ég honum frá stuttu samtali sem ég átti við Rufus og Werner í gær eftir að allir voru sofnaðir, nema ég og þeir - augljóslega.
Þeir báðu mig nefnilega um að hafa kjúkling í matinn, og sérstaklega hin fræga ógeðskjúkling sem ég elda, fréttir af honum hafa borist út um allan heim og þeim finnst hann sérstaklega ljúffengur, EN.. þeir báðu mig bara um að gera hann ef Doddi vildi borða hann.. því annars þyrftu þeir að finna sér annað heimili sem serveraði téðann kjúkling, helst vikulega, því.. þar sem ógeðskjúkling er að finna.. þar vilja þeir vera.
Án þess að ég sé að eyða of miklum tíma í skýringar, þá borðaði Doddi allan matinn sinn, þurrkaði sér í ermina á eftir, eins og vel upp alinn drengur, og sagði: "takk fyrir mig mamma, þetta var mjög góður matur".
Á eftir komu Rufus og Werner, þökkuðu honum fyrir samstarfsviljann, tilkynntu að þeir hefðu flutt lögheimili sitt til frambúðar á Hagamel og enduðu á að taka "Ó Guðfinna", betur þekkt í flutningi Halla og Ladda, við mikinn fögnuð viðstaddra.
Ég þarf að fá mér hljóðeinangraða útidyrahurð við tækifæri.
Újé.. I rule, I rule, I rule.. [Anna doin' the white man's overbite]
|
|
 |
 |
Strange
Miðvikudagur, 08. september 2004
Ef ég væri heimavinnandi þá myndi ég búa til fiskfars akkúrat núna.
|
|
 |
 |
...var að spöklera
Miðvikudagur, 08. september 2004
Þetta var vel heppnað hádegi. Ég er södd, afslöppuð og líður vel þrátt fyrir að ég klessti bílinn minn aðeins á leiðinni aftur í vinnuna, var reyndar búin að gleyma því, man það núna. Skrapaði hliðina á bílnum á gangstéttarkannti þar sem ég hafði lagt.
Annars hef ég verið að spá í það undanfarið að selja bílinn minn og fá mér annann. Ég þoli nefnilega ekki lengur að geta ekki búið til best of diska til að spila í geislaspilaranum í bílnum og ekki nenni ég að fara með spilarann í viðgerð, það er allt of mikil fyrirhöfn. Miklu einfaldara að fá sér bara nýjan bíl.
Hvernig bíl á ég nú að fá mér? Ég er að spá í Peugeot 206. Spara mér stórfé á mánuði í rekstarkostnað og get spilað tónlistina mína í bílnum. Einu kröfurnar sem ég geri til nýja bílsins eru eftirfarandi:
Að hann komi mér frá stað A til B án mikilla vandræða.
Að ég geti spilað geisladiskana mína í honum.
Að það sé ekki Golf, Hyundai eða Toyota.
Bíllinn má ekki undir neinum kringumstæðum vera hvítur.
Væri til í Hondu, fyrst ég get ekki keypt mér Bentley hvort sem er..
Segið svo að það sé erfitt að gera mér til hæfis..
|
|
 |
 |
Bílapælingar II
Miðvikudagur, 08. september 2004
Það er lýðnum ljóst að ég slapp með skrekkinn í dag þegar ég bömpaði bílinn minn. Þetta nær nefnilega ekki upp á hurðir. Ég hef líka ákveðið að kaupa mér ekki nýjan bíl, heldur skröltast um á þessum eitthvað áfram. Ég tók þessa ákvörðun eftir að ég áttaði mig á því að ég get ekki keypt mér fyrrnefndan Bentley.
Ég er útgrátin.
Það er svo í öðrum fréttum að girnilegasti kjúklingaréttur, ala Edda, er á leiðinni inn í ofninn. Ég keypti meira að segja kók í tilefni dagsins, í fljótandi formi. Stóla hinsvegar á heavy vímu þegar ég set fyrsta bitann af kjúllanum upp í mig á eftir.
Þetta verður mjög jólalegt - sem minnir mig á..
..las færslu hjá nornunum og fékk svima, átti erfitt með andardrátt og fann fyrir sjúklegri þörf fyrir að lofta út.
Never again!
|
|
 |
 |
Í vinnunni
Fimmtudagur, 09. september 2004
Viðskiptavinur: "Nú er ég búinn að ganga á milli Pontíusar og Pílatusar endalaust, og þeir vísa alltaf á hvorn annan"
Anna: "Já, en nú ertu að tala við Guð."
|
|
 |
 |
Þrír góðir kjúllar frá Eddu
Fimmtudagur, 09. september 2004
Vegna fjölda áskoranna hef ég fengið leyfi til að opinbera eftirfarandi leyniskjal á síðunni minni:
Halló allir saman!
Nú eru dögum mínum sem heimavinnandi húsmóður senn að ljúka og er því tími til kominn að ég sendi frá mér fleiri góðar enda voru viðbrögðin frábær við síðustu sendingu!
Eins og þið vitið þá hef ég lítið gert annað sl. mánuði en að hafa það gott með tærnar upp í loft og lesa Morgunblaðið, Veru og Alt for damerne. Jú auðvitað kemur það fyrir að ég skelli í eina og eina vél en það er bara þegar Tommi telur sig of upptekinn til þess að þvo þvottinn, en oftast er ég bara að chilla og dúlla við sjálfa mig. Stundum neyðist ég þó til að búa til mat - þó aðallega af því ég þarf sjálf að borða. Kjúklingur er mjög vinsæll á þessu heimili, kannski að því Bónus selur hann ódýrt - nú eða bara af því okkur finnst hann svo góður. Hér koma því þrjár góðar eldunarhugmyndir með kjúklingabringum eða bara heilum kjúlla!
1. Þessi er fengin úr Vikunni sem ég stal á tannlæknastofunni hjá Önnu Margréti í síðustu viku og prufaði í gær. Hann er klikkaður og ég mæli með honum fyrir alla!
* 4 kjúklingabringur, beinlausar og skinnlausar
* nýmalaður pipar
* Herbamare salt (eða bara venjulegt)
* hálf krukka Taco sósa mild (eða önnur sósa eftir smekk)
* 2 bollar Maarud Sour cream and onion kartöfluflögur - millifínmuldar
* 75 gr smjör - brætt
Ofninn í 200°c. Kryddið bringurnar með pipar og salti og smyrjið þær með svolítilli Taco sósu (hálfri krukku ca.). Myljið flögurnar frekar fínt. Veltið bringunum upp úr flögunum og þrýstið þeim vel niður. Raðið þeim á pappírsklædda bökunarplötu og dreifið afganginum af flögumulningnum yfir.
Bræðið smjörið og dreypið því jafnt yfir bringurnar. Bakið í miðjum ofni í ca 30 mín. eða þar til bringurnar eru rétt steiktar í gegn (þið vitið - hægt að skera í þær!).
Með þessu er snilld að hafa Tilda Basmati hrisgrjón, einnig hægt að hafa restina af Taco sósunni (samt óþarfi því kjúllinn er mjög djúsí) og ferskt salat með ristuðum furuhnetum og fetaosti - klikkar ekki. Þessi réttur er mjög fljót gerður - ca 10 mín í undirbúning og svo í ofninn og þá gerir þú salatið og ofninn pípir. Ískalt kók er algjör killer með þessu enda ekta föstudagskvöldmatur þó ég hafi ekki getað beðið með að prufa þetta svo lengi!
2. Svo er það Mexícó kjúllinn hennar Jóhönnu. Hann var einhverntímann búinn til þegar var verið að brainstorma í eldhúsinu og nota það sem til var. Sumir hafa smakkað hann hjá mér en ég bauð upp á þennan í 10 ára afmælinu hennar Jóhönnu og margir hafa verið að biðja um uppskriftina. Nú þar sem uppskriftin er enginn ákvað ég að reyna að nótera hana og senda ykkur!
*Kjúklingur steiktur heill (má líka kaupa hann grillaðann úti í búð) og rifinn niður
*kjúllinn settur niðurrifinn á pönnuna með einu bréfi af einhverri Taco sósu (Casa Fiesta t.d.) og smá ólífuolíu. Ekki nauðsynlegt að nota heilan kjúlla. Má líka skera niður bringur og steikja á pönnunni.
*Doritos Cool American nachos sett í eldfast mót (aðeins mulið - ekki mikið) og kjúklingurinn settur ofan á.
*Svo það sem til er í ísskápnum:
*Spínat steikt á pönnu, sveppir og rauðlaukur og paprika allt létt steikt á pönnunni í ólífuolíu. Líka gott að setja smá Maís baunir (ekki setja geðveikt mikið af öllu)
*Svo ofan á allt þetta setur maður salsa sósu (milda eða medium) - bara í slumpum - ekki þekja allt.
*Einnig Nachos ostasósu í slumpum
*Svo að lokum Mozarella niðurrifinn og það mikið. Svo paprikukrydd yfir ostinn.
*Inn í ofninn á 200°c þar til osturinn er brjáðnaður og orðinn gullinn! ca 20 mín.
Með þessu er að sjálfsögðu hægt að nota það sama og hér að ofan. En næstum nauðsynlegt að allir sem hafa aldur til fái sér ískaldan Corona og hinir fái sér bara kók!
3. Svo er það þessi í salatið. Um daginn langaði mig að gera eitthvað hrikalega gott salat en langaði að fá smá kjúlla með. Þegar ég var búin að steikja kjúllann þá var hann bara svo góður að hann fór aldrei í salat heldur endaði á disknum, sósulaus með hrísgrjónum og soyja!
*Kjúklingabringur skornar í strimla
*Steiktar á pönnu í ólífuolíu og Herbamare salti og nýmöluðum pipar.
*Yfir kjúllann á pönnunni setti ég svo slump af hinni mögnuðu Thai Choice Natural Soy Sauce (hún er frekar sölt svo notið lítið af Herbamare)
*Þá vantaði mig smá gljáa svo ég setti ca eina matskeið (ekki mjög kúfaða) af dökkum púðursykri (ókey ekki fyrir sykursjúka!!)
Klikkað gott. Tommi sagði að þetta væri einn sá besti (hann er á veiðum og ekki búinn að smakka maarud kjúklinginn hér að ofan!!). Salatið var sem sagt út hjá okkur en það er án efa meiri háttar að setja þennan í gott ferskt salat. En ef ekki í salati þá með Tilda basmati grjónum og t.d. heitu baquette með ferskum Mozarella og Basilikuolíu!
Ekki laust við að ég sé að verða svöng enda styttist í næsta sheik hjá mér! Vonandi eru þið óhrædd við að prufa og það er velkomið að hringja í mig ef þið lendið í vandræðum með eitthvað því margt er bara einhversstaðar í gráu sellunum mínum og kemst kannski ekki alveg nógu skýrt niður á blað!!
Alla þessa rétti borðar öll fjölskyldan mín. Stelpurnar elskuðu maarud kjúllann svo þið sem eigið börn sem hata kjúkling - ljúgið! Segið þeim að þetta sé eitthvað eðalkjöt eða fiskur sem þeim finnst gott því þegar þau smakka þá klára þau!!!
Kjúklingaknús til allra
Edda heimavinnandi húsmóðurhjúkka á leiðinni í vinnunna
|
|
 |
 |
Góður!
Fimmtudagur, 09. september 2004

Snilld.
|
|
 |
 |
Rauða serían - fyrir karlmenn
Fimmtudagur, 09. september 2004
D.A.R.Y.L: I deserve better
Anna: ójá
Anna: veistu hvað þú átt skilið?
Anna: því ég veit það
D.A.R.Y.L: miðað við allt finnst mér að ég eigi skilið að vinna í lottóinu
D.A.R.Y.L: kaupa svo flott hús einhversstaðar
Anna: þú hugsar ekki nógu stórt
Anna: þú átt skilið herragarð on the english countryside
D.A.R.Y.L: og fara að ferðast
Anna: með butler
D.A.R.Y.L: Yes I doo
Anna: og rolls
Anna: og lítinn hestabúgarð
Anna: sem Júlli* getur séð um (*núverandi vinnuveitandi D.A.R.Y.L)
D.A.R.Y.L: rolls - eru það margar rollur?
D.A.R.Y.L: ??
Anna: nei
D.A.R.Y.L: hehe
Anna: það er ein mjög stór rolla úr gulli
Anna: og stáli og einhverju fleira
D.A.R.Y.L: hehe
Anna: svo áttu skilið að fá heita máltíð þrisvar á dag
Anna: samsetta af næringarfræðingi
Anna: eldaða af gúrme kokki
D.A.R.Y.L: já, eitthvað sem er gott OG megrandi
D.A.R.Y.L: svo fær mar sér einkaþjálfara
Anna: og borna fram af fallegri þjónustustúlku í litlum svörtum kjól með litla hvíta svuntu og hvítt á hausnum eitthvað
D.A.R.Y.L: td. Sporty Spice - hún hefur ekkert að gera núna, er það nokkuð
Anna: nei
Anna: hún væri fín
Anna: teipa bara fyrir munninn á henni
Anna: gengur ekki að hafa hana gólandi allan daginn upp í eyrað á þér
D.A.R.Y.L: eða Sportacus
D.A.R.Y.L: semsagt - Magga Scheving
Anna: þú myndir byrja daginn á því að svara bréfum sem þér hafa borist
D.A.R.Y.L: aha
Anna: aðallega boð í opnanir á alls kyns skemmtilegum viðburðum
Anna: tækir tíu mín í það
Anna: svo myndir þú fá þér fótabað
Anna: og kaffi
Anna: svo myndir þú fá þér sundsprett
Anna: í lauginni í búngaló nr 9
D.A.R.Y.L: ó já
Anna: eftir sundið fengir þú nudd
Anna: hjá japönsku geishunni
D.A.R.Y.L: ahh
Anna: þá væri tími til kominn að fá sér morgunmat
Anna: og lesa blöðin
Anna: í friði fyrir börnunum að sjálfsögðu
Anna: þau væru í hinum væng hússins hjá barnfóstrunni
Anna: akkúrat núna myndi eiginkonan koma niður í silkináttkjól og setjast hjá þér
Anna: og borða þegjandi á meðan þú lest blöðin
Anna: þegar þú ert búinn að borða og lesa blöðin teygjir þú úr þér og spöklerar í því hvað þú ætlar að gera
Anna: þennan tiltekna dag verður Playstation ofaná
D.A.R.Y.L: hehe
Anna: svo þú eyðir restinni af morgninum í grand theft auto
D.A.R.Y.L: my oh my...
Anna: ójá
D.A.R.Y.L: þú mátt verða minn lifestyle trainer
Anna: ekki málið
Anna: áttaðu þig á því að það er ekki einu sinni komið HÁDEGI
D.A.R.Y.L: borga þér obscene upphæðir til að segja mér að fara að spila playstaisjon
Anna: Ef ég segi það ekki.. nú hver á þá að segja þér það?
|
|
 |
 |
Processing data
Fimmtudagur, 09. september 2004
Ég nenni ekki á þennan fund í skólanum. Er að leita að afsökun...
|
|
 |
 |
Í fréttum er þetta helst
Föstudagur, 10. september 2004
Þessi dagur er búinn að vera fínn so far, fyrir utan þegar ég sprengdi rauða pennann í höndunum á mér og skrifborðið leit út fyrir að á því hefði verið framkvæmd skurðaðgerð á litlu dýri.
Bygons.
Það er að koma helgi. Úhú! Ég ætla að læra um helgina, er strax farin að dragast afturúr í lærdómnum, enda er ég svo upptekin við að þrífa og þvo og smyrja nesti að það hálfa væri nóg.
Let's just say it like it is. Ég er ekki alveg kominn í gírinn.
Mig langar samt miklu meira í bíó en nokkuð annað í kvöld, ætla að bæla niður þá löngun og ef ég verð ógó dugleg og klára að læra allt sem ég á að vera búin að læra... og skila því af mér í kvöld... sem ég tel miklar líkur á að geti gerst.. þar sem ég tel mig vera Guð.. þá ætla ég í bíó á morgun.
Verð að sjá hvað hirðin er að meina með þessa Veronicu. Forvitnin er gjörsamlega að ganga að mér dauðri! Megið ekki gera mér þetta strákar!
Annars er ég bara að plata. Mig langar að sjá þessa mynd af allt öðrum ástæðum. Sem minnir mig á (og ég skil ekki af hverju) ég þarf að panta mér tíma hjá tannlækni.
Mikið verður ánægjulegt að setjast í stólinn hjá honum Jóni og leyfa honum að pynta mig að vild. Verra að ég þarf að borga honum fyrir það. Af hverju þurfti hann nú að vera giftur? Ég er viss um að við hefðum getað komist að einhverju samkomulagi..
|
|
 |
 |
Ó mæ god
Föstudagur, 10. september 2004
Vélin mín dó áðan. Var stopp í rúmar fjörutíu mínútur. Vill til að ég fór á námskeið um daginn í CPU CPR og gat komið ruslinu í gang aftur.
Byði ekki í geðheilsuna ef my precious myndi gefa upp öndina.
Ég fæ hroll.
Ég var næstum því búin að hlaupa út í sjoppu og kaupa kók og sígó, just in case, ef ég þyrfti að vorkenna mér óeðlilega mikið í kvöld. - Nú eða sitja sveitt við að reyna að bjarga því sem bjargað yrði úr því sem komið var.
Fékk samt rettu hjá blaðamanninum. Hann kom að sækja börnin þegar ég var orðin mjög svartsýn á ástandið...
Það er ekkert eins æðislegt og sígaretta þegar maður hefur ekki reykt rosalega lengi. Maður syngur bara hare krishna og slefar. Getur maður beðið um meira?
Ógó alveg
Laugardagur, 11. september 2004
Er búin að vera ógó dugleg í dag. Alveg ógó dugleg. Maður verður nú alltaf að slappa af öðru hvoru líka svo ég leigði mér Seabiscuit.
Held að hún sé soldið góð.
|
|
 |
 |
Second Chance
Sunnudagur, 12. september 2004
Myndin Seabiscuit fjallar um second chance. Concepti sem ég er búin að velta fyrir mér undanfarið.
Fyndið hvernig sagan endurtekur sig alltaf. Er það samt ekki undir manni sjálfum komið? Ég meina.. maður hefur frjálsann vilja, er það ekki?
Ég átti samtal við mann um daginn sem hefur þekkt mig frá því ég var tólf ára. Nei, það var ekki fyrrverandi eiginmaður minn:
Anna: af hverju eru karlmenn hræddir við mig?
bird: þú ert scary!
Anna: ÚTSKÝRÐU ÞAÐ NÁNAR TAKK
Anna: hehehe
bird: þú ert frökk og falleg...
bird: need I say more?
Anna: en ég er fullkomlega meinlaus
bird: jú - síðustu árin.
bird: yndisleg og heil.
Anna: takk
Anna: en hér áður fyrr?
bird: þú varst mean.
Anna: er það?
bird: já - við stráka.
bird: nema ég var ekki hræddur við þig 
Anna: var ég mean við stelpur?
bird: já - líka
Anna: hvernig þá?
Anna: hvað gerði ég?
bird: of langt síðan til að rifja upp
Anna: en þú manst það?
Anna: fokk væri ég til í að taka einn tour upp í haus á þér
Anna: kíkja á skjalasafnið
Anna: ég var bara vond við aðra því mig vantaði svo að einhver væri góður við mig
bird: einmitt
bird: það er lóðið!
bird: svona virkar þetta nefnilega
Anna: en af hverju er ég þá hætt að vera mean? Mig vantar ennþá einhvern sem er góður við mig.
Anna: ég var að fatta
Anna: mig vantar það ekki lengur
bird: *þú* ert góð við þig..
Anna: ..nefnilega
Stundum þarf einhver að hjálpa manni að trúa því að maður sé þess virði að það taki því að lappa upp á mann þegar maður hefur verið under the weather for a long time.
Maður...
Prufum þetta aftur:
Ég þurfti smá hjálp til að trúa því að ég væri þess virði að lappa uppá þegar ég var búin að vera under the weather for a long time.
Best ég taki það fram að það var ekki karlmaður sem veitti þá hjálp. Það var kona. Ég borgaði henni fyrir það.
Boy.. Ef þetta er ekki dæmt til að misskiljast.. hehehe
Anyway.. so this is love?
|
|
 |
 |
Þessu ótengt
Sunnudagur, 12. september 2004
Þegar ég vaknaði í morgun leit ég svakalega vel út. Hef ekki litið svona vel út árum saman. Bæði var ég vel sofin, og svo virðist nýja dagkremið sem ég er farin að nota vera að gera kraftaverk á húðinni á mér.
-Gæti líka verið að ég sé búin að taka út mína refsingu og að kókið og nammið sé að hverfa úr systeminu. Eitthvað er það.
Ég byrjaði daginn á því að læra, læra og læra. Alveg er ég búin að vera ógó dugleg um helgina, það er nokkuð ljóst.
Þegar ég var búin að læra vappaði ég um íbúðina og lét mér leiðast í eins og klukkutíma. Datt þá í hug að plokka á mér augabrúnirnar, svona í tilefni dagsins og líka vegna þess að ég lít svakalega vel út og er að fara út að borða í kvöld. Alltaf gaman að hafa plokkaðar augabrúnir við svoleiðis tækifæri.
Ég náði mér í 5x stækkunnar spegilinn sem ég keypti mér útí apóteki um daginn, skrifborðslampa með 60w peru og kom mér fyrir.
Áður en lengra er haldið vil ég lýsa því yfir að það ætti að banna 5x stækkunnar spegla. Það ætti líka að banna karlmenn sem sjá fulla sjón. Allir karlmenn ættu að vera minnst mínus 1.75 á báðum augum.
Þvílíki viðbjóðurinn sem mætti mér þegar ég færði andlitið upp að þessum spegli. Og ég sem hélt að húðin á mér væri orðin eins og á hvítvoðungi. Ljóta vitleysan. Ég komst að því, mér til mikillar skelfingar, að ég er komin með hár á nefið.
HVAÐA RÉTTLÆTI ER Í ÞVÍ?
Ég meinaða. Hár á nefið. Sure, þau eru lítil og fínleg og stutt, en hár engu að síður! Veit nú alveg hvernig það endar, enda ekki fædd í gær. Er með nógu mörg helvítis nornahár undir kjálkanum, fæ Júlíu ekki nógu oft í heimsókn til að stemma stigu við þann andskota. Ef ég legðist nú í rúmið í mánuð í coma myndi ég stíga upp lítandi út eins og grýla, það er morgunljóst. Með nornahár undir kjálkanum, á hökunni, kinnunum og.. ekki stutt í að ÞAU KOMI Á NEFIÐ LÍKA. Ég er reyndar ekki komin með hár á milli brjóstanna en ég bíð bara róleg. Ég er manneskja sem á ekki að taka vítamín sem bæta hárvöxt. Má ég þá biðja um lepjulegt og líflaust hár á hausnum ef það verður til þess að ég fæ ekki eitthvað til að flétta á milli brjóstanna.
Því miður er þetta ekki allt.
Ég fór auðvitað að plokka hárin á nefinu á mér, enda komst ég ekki að augabrúnunum fyrir þeim, frumskógur sem þetta er, nema með einu hárinu kom HEILL FÍLAPENSILL MEÐ! Já.. ég er með svo massíva fílapensla á nefinu og ÉG GET PLOKKAÐ ÞÁ MEÐ PLOKKARA!
Ef þetta er ekki rétti tíminn til að leggjast í þunglyndi, þá veit ég ekki hvað. Ég hætti strax að plokka hárin og fór að plokka fílapensla.
Skynsamlegast hefði verið að standa upp og hætta akkúrat á þessum tímapunkti..
..því auðvitað reyndi ég næst að plokka fílapenslana á hökunni næst en það gekk verr. Þeir virðast mýkri þar, svo ég grýtti plokkaranum út í horn og gjörsamlega missti mig. Fyrst var það hakan, svo færði ég mig út á kinn, þaðan upp á enni og svo var nefið tekið með áhlaupi. Andlitið á mér er eins og eftir býflugnaárás. Ég er útkreist.
Var ég búin að minnast á að ég er að fara út að borða í kvöld?
|
|
 |
 |
I dream of Jack
Mánudagur, 13. september 2004
Vaknaði klukkan sjö og hlustaði á vatn renna í baðkar á neðri hæðinni. Sofnaði aftur. Svaf yfir mig og vaknaði tíu mínútur í níu. Mig dreymdi Jack.
Mig dreymdi að ég færi til hans í heimsókn. Hann bjó einn - fyrst. Í atvinnuhúsnæði sem var fullt af barnadóti sem var alltaf að detta úr hillunum. Baðherbergið var það flottasta sem ég hef séð lengi.
--innskot--
áður en mig dreymdi Jack, fyrir sjö, dreymdi mig að ég væri á spítala. Fokk. Man ekki meira af þeim draumi. - It will come to me.
----
Jack var með ör eftir brunasár á andlitinu, sem hann hefur ekki í alvörunni. Fyrsta nóttin var tíðindalaus, ég fékk sér herbergi sem voða kósí og hann var í næsta herbergi við mig. Daginn eftir var vinur hans mættur á svæðið og þá kom í ljós að Jack er flugmaður, eitthvað sem Jack er ekki í raunveruleikanum. Það var líka búið að bætast í fólkið á staðnum. Nú átti Jack tvær dætur og einn son. Sonurinn var samt ekki Jason, sem er sonur Jacks í raunveruleikanum. Ég hef aldrei séð þennan strák áður en þau reyktu öll - nema Jack.
Við tróðum okkur í bílinn hans til að fara út á flugvöll og á leiðinni stöldruðum við í verslun þar sem ég keypti tösku eftir að ég bað dóttur hans Jack, sem mér fannst mest líkjast Julie, um álit. Þegar ég kom heim um kvöldið fór ég að skoða töskuna og fann inní henni bók sem ég hafði lesið þegar ég var úti á sínum tíma. Sem minnir mig á.. í búðinni.. þar sem ég keypti töskuna.. þar voru fullt af bókum á íslensku. Very weird. Nema þessi bók var ekki á íslensku, þessi sem ég keypti, ég hafði hinsvegar skrifað heilann helling í hana á sínum tíma og það rifjuðust margir hlutir við að lesa hana.
Inní miðri bókinni fann ég kort af Íslandi.
Ég sýndi Jack kortið en hann hafði takmarkaðann áhuga á því. Fannst honum hálf leiðast þetta allt saman. Mig langaði að fá lánaðann bílinn og skreppa út. Jack sagði að ég yrði að vera komin heim fyrir hálf tíu, það var curfew-ið mitt og stelpnanna - sem mér fannst mjög ósanngjarnt þar sem ég var fullorðin og þær varla eldri en þrettán.
Hér vaknaði ég.
|
|
 |
 |
Skap dauðans
Mánudagur, 13. september 2004
Ég sat áðan með krosslagðar hendur og "murder on my mind" svipinn þegar Óli gekk framhjá. "Þú lítur út fyrir að vera í frekar nojuðu skapi í dag".
-"Já", sagði ég á milli samanbitinna tanna.
Fimm mínútum síðar gekk hann aftur framhjá og ég fylgdi honum eftir með augunum með manndrápssvip. Hann glotti. Skyndilega snéri hann sér við á punktinum, fékk sér sæti við skrifborðið mitt og náði í gula miða og penna. Svo skrifaði hann eitthvað á miðann. "Hvað ertu að skrifa fallegt?" spurði ég með eins mikilli kaldhæðni og ég gat. Hann leit upp, sagði ekkert en brosti. Þegar hann var búinn að skrifa reif hann gula miðann af blokkinni og límdi hann á aftanverðann skjáinn hjá mér. "Hvað skrifaðirðu?" spurði ég. Hann virti fyrir sér miðann, reif hann af skjánum og sagði: "nei.. betra að hafa hann á enninu á þér" og límdi gula miðann á ennið á mér.
Ég tók miðann af enninu og kíkti á hann. Á miðanum stóð:
"Vertu góður við mig."
-"fyrir viðskiptavinina" sagði Óli.
Mér líður betur.
|
|
 |
 |
Af femínískum karlmönnum
Þriðjudagur, 14. september 2004
Þórarinn Þórarinsson blaðamaður fer á kostum í nostalgíu í Fréttablaðinu í dag. Þar lýsir hann því hvernig ég hlekkjaði hann við vaskinn í eldhúsinu og að keðjan hafi náð að þvottavélinni og ekki lengra. Við erum fyrrverandi hjón sem munum tímana tvenna.
Frá því þessi geðstirði einhverfi einstaklingur, síðar þunglyndi alkóhólisti, flutti til mín tók hann til við að þrífa öllum stundum, með litlum árangri. Það var líkt og geðsjúklingur á amfetamínsterum hefði flutt í íbúðina sem fann enga eirð nema þegar hann var að brjóta saman sokka og strauja nærbuxur. Hann gjörsamlega yfirtók þvottavélina og virtist líða líkamlegar kvalir ef helvítis vélin var ekki í gangi öllum stundum. Undir það síðasta vorum við fjögur í heimili en aldrei voru minna en fimm þvottavélar þvegnar á hverju kvöldi með tilheyrandi hávaða. Þrátt fyrir þetta náðu þvottahaugarnir inná baði oftast upp í rjáfur svo börnunum stóð hætta af.
Það má segja að upphafið að endinum á hjónabandinu hafi klárlega verið þegar ég bannaði notkun bæði á þvottavélinni og þurrkaranum eftir klukkan níu á kvöldin til að börnin kæmust í ró. Hann beið þess aldrei bætur og drykkjan jókst verulega.
Hvað uppvask varðar þá kunni hann ekki til verka í þeirri deild þegar ég tók við honum stuttu eftir útskrift úr barnaskóla, enda hafði hann ekki fengið neina kennslu í eldhúsþrifum á sínu æskuheimili. Hann hafði ekkert verkvit maðurinn og ég mátti byrja á því að kenna honum að nota það sem Íslendingar nota oft: uppþvottabursta. Kenndi honum líka að maður þvær glösin fyrst, svo diskana, svo hnífapörin og að lokum pottana. Að sjálfsögðu var þetta allt saman skolað samviskusamlega fyrst til að ná mesta skítnum af og til þess að uppþvottavatnið myndi endast án mikilla óhreininda. Little did I know.. hann öðlaðist slíka færni við uppvaskið að þegar við bjuggum í kjallara í Eskihlíð þurfti oft að kalla til lögreglu til að dreifa hópum kvenna sem lögðust á eldhúsgluggana hjá okkur til að fylgjast með - og læra.
Við urðum að flytja á fimmtu hæð í blokk, undir það síðasta, þegar grunnskólar voru farnir að skipuleggja hópferðir nemenda í heimilisfræði í Eskihlíðina.
Þórarinn gleymir alveg að minnast á hvernig ég þvingaði hann til að elda og nýtti mér til þess kvenlega klæki. Fannst honum maturinn sem ég eldaði oft ljótur og ólystugur að sjá, en bragðgóður. Ég bar við þeim rökum að maturinn yrði hvort sem er ljótur strax og hann væri kominn upp í munn neytandans, en benti á að til væri lausn á þessu vandamáli. Ég gæti kennt honum að elda og hann gæti þá eldað "fallegan" mat.
Það varð úr... að á milli þess sem þessi öðlingur vann sjálfboðavinnu á daginn, á þeim fjölmiðli sem þá stundina var ekki að borga laun, var hann á fylleríi út í bæ en ekki fyrr en hann var búinn að setja þvott í þvottavélina, elda "fallegan" mat og vaska upp af ólympískri færni.
Hvernig stóð á því að það var alltaf drasl í íbúðinni, óhreinn þvottur í öllum hornum og yfirvofandi hungursneyð heimilismeðlima var gjörsamlega beyond me, datt hinsvegar ekki í hug að gera handtak á meðan hann var svona duglegur.
|
|
 |
 |
The things that go on in this world!
Miðvikudagur, 15. september 2004
The Nurse: djöfull ég er farin að blóta eitthvað svo andskoti mikið
The Nurse: Heyrðu helduru ekki að hún Macy hafi ekki bara byrjað að drekka aftur í morgun
The Nurse: jú
The Nurse: og af hverju
Anna: Macy?
Anna: Grey?
The Nurse: jú.. af því að Thorne maðurinn hennar ætlar kannski að fara frá henni fyrir Brooke sem er algjör tík
The Nurse: nei
The Nurse: Macy Spectra/Forrester
Anna: ó sápa?
The Nurse: dóttir Sally Spectra hjá Spectra Fashion house
Anna: ég er ekkert inní þessu, en að drekka á morgnanna..
The Nurse: Heyrðu og Brooke er búin að vera gift pabba Thorne og bróður hans og á tvö börn með pabba hans og og nú vill hún þennan líka
The Nurse: ekki skrítið að Macy hafi gripið í flöskuna
Anna: nei það finnst mér ekki
The Nurse: búin að vera edrú í mörg ár
The Nurse: ég er alveg á bömmer
The Nurse: Svo er það Becky sem er með bullandi briskrabbamein og veit ekki af því
Anna: gud i himmelbjerget!
The Nurse: hún á að deyja eftir 2 mánuði og allir vilja að hún sé hamingjusöm
The Nurse: og fái að giftast CJ sem er bróðir Macy og er bara ca 19 ára
The Nurse: áður en hún fær að vita að hún er að deyja
The Nurse: hún heldur að hún sé með flensu og þess vegna alltaf svo slöpp
Anna: þetta er hræðilegt
The Nurse: frænka hennar byrlar henni morfíni svo hún þjáist ekki eins mikið
The Nurse: ég er nátturlega alveg í kör yfir þessu
The Nurse: hvernig á maður að geta unnið heimilisstörfin þegar dagurinn byrjar á þessu??!
The Nurse: 
|
|
 |
 |
Fingers krossed
Miðvikudagur, 15. september 2004
Ég er dáldið stressuð.. en samt.. meira spennt og eftirvæntingarfull.
Pantaði mér bók í gær. Bók sem mig er búið að langa í rooooosalega lengi, við erum að tala um nokkur ár hérna. Nú, þegar ég þarf ekki að réttlæta neitt sem ég kaupi fyrir neinum nema sjálfri mér, hef ég pantað þessa bók hjá Eymundsson og vá hvað ég hlakka til að fá hana í hendurnar.
Ég er búin að vera í svo góðu skapi í gær og í dag, mér líður svo vel eitthvað og.. einhver peaceful easy fílingur í gangi.
Sem betur fer fæ ég símtal innan klukkutíma og þá get ég hætt að vera stressuð og eftirvæntingarfull.
|
|
 |
 |
Júlía kemur í heimsókn
Miðvikudagur, 15. september 2004
Nú hefur það komið í ljós að ég fæ ekkert frí á kvöldin eftir vinnu fram að áramótum. Líkur eru á því að börnin mín fái hinsvegar langt frí frá skóla fyrir áramót, en það er önnur og miklu sorglegri saga. Þeim finnst nefnilega gaman í skólanum.
Á mánudögum er það karate, þriðjudögum sund, miðvikudögum karate, fimmtudögum sund, föstudögum myndlist og laugardögum karate. Hefst nú skutlið fyrir alvöru.
Í gær var fyrsti dagur í skutli og ég var komin upp í rúm löngu fyrir klukkan ellefu. Gæti líka haft eitthvað með þá staðreynd að gera að Júlía kom í heimsókn.
Að fá Júlíu í heimsókn er eins og að eignast fimmbura sem eru á aldrinum þriggja til átján og allir ofvirkir. A.m.k. stundum. Í gær var hún skæð, enda vinnur hún í sjoppu og er high on sugar þessa dagana. Hún vélaði mig til að kaupa nammi svo ég varð high on sugar líka.. jesús.
Við Júlía erum mjög líkar.. samt ekki.. og með sitthvorn lífsreynslugagnagrunninn. Sem dæmi get ég nefnt samræður sem áttu sér stað í bíl fyrir utan Melabúðina í gær:
Júlía: "jesús Anna, það eru sveppir í hárinu á mér!"
Anna: "hefurðu ekkert komist í bað nýlega? Er ekki bara ráð að reykja þá?"
Júlía: "Reykja sveppi? Þú ert vonlaus"
Anna: "Nú? Hvað gerir maður við sveppi?"
Júlía: "Maður sýður þá í te og drekkur þá. Slappar allur af og svona"
Anna: "já og fær ofskynjanir"
Júlía: "þú talar eins og það sé eitthvað slæmt"
Anna: "en má ekki borða þá líka?"
Júlía: "jújú, en það er betra að sjóða þá, drepur pöddur og svona"
Júlía: "Anna, vá! Sjáðu hvað ég fann í eyranu á mér!"
Anna: "Djöfuls viðbjóður Júlía! Hvað er að þér!!!"
Að fá Júlíu í heimsókn getur orðið að hreinni martröð. Þannig hafði ég ákveðið að elda grjónagraut úr afgangs hrísgrjónum frá því deginum áður ofaní börnin en ég ætlaði að fá mér samloku...
Júlía: "æji ég vil líka grjónagraut!"
Anna: "það er bara til nóg fyrir krakkana"
Júlía: "hafðu grjónagraut fyrir mig líka"
Anna: "ég skal hafa grjónagraut fyrir þig líka ef þú eldar hann"
Júlía: "ég nenni því ekkert"
Anna: "ekki ég heldur"
Þegar ég setti upp dreymna svipinn í bílnum og sagði..
"Oh Júlía ég er svo... "
-greip Júlía frammí:
"NEIIIIIIII ANNA! EKKI NÚNA! ÉG NENNI EKKI AÐ HLUSTA Á ÞIG! TÖLUM UM MIG EINU SINNI! TÖLUM UM MIG! MIG MIG!"
(ok ég viðurkenni.. she had a point there, ég er búin að vera gjörsamlega óþolandi undanfarið)
Eftir mat fór Júlía í eltingarleik við krakkana inn í eldhúsið og út úr því aftur, ég lét mig fallast á stól og greip um ennið með tilþrifum. Júlía greip um bakið á stólnum og hristi hann. Ég fer á taugum.
Stuttu síðar sendi ég börnin inn í rúm og svo bara varð ég að fara í bað. Júlía kom til mín og sagði mér að ég væri óþokki að fara svona í bað á meðan hún væri í heimsókn.. því nú langaði hana að fara í bað. Svo sagði hún mér frá draugnum sem býr á baðherberginu heima hjá henni og hvernig mamma ræðst á Snrub og kyssir hann á almannafæri. Aumingja Snrub.
Já, hún sagði líka eitt voða sætt við mig. Hún sagði mér að Snrub hefði sagt "rosalega er systir þín orðin grönn og sæt" eftir að þau komu í heimsókn til mín þegar ég var með veikindi dauðans og leið eins og jógúrtdós neðst í innkaupapoka úr bónus.
Það yljaði mér um hjartaræturnar.
Hún fór skömmu síðar og ég lá í baði, lengi, lengi... dreymin á svip og hugsaði:
"oh ég er svo..."
|
|
 |
 |
Nótt dauðans
Fimmtudagur, 16. september 2004
Ég svaf nánast ekkert í nótt, reyndi allt. Heitt bað, slökun, en ekkert gekk. Ég er bara of hrædd í roki og vantaði Jude Law til að segja mér.. "everything will be all right darling, I'm here to take care of you". Helvítis fíflið, komin með eitthvað bimbó upp á arminn.
Annars leigði ég mér Cold Mountain um daginn og varð fyrir gífulegum vonbrigðum. Jude er ekki að geraða fyrir mig með svona alskegg. Eins og hvað hann er úber flottur í byrjun myndarinnar. Svo fannst mér þau eitthvað awkvard saman hann og Nicole. Engin hjónasvipur með þeim og hún hálf aulaleg eins og svo oft.
Í heildina leiddist mér þessi mynd og ég varð dauðfegin þegar hún var búin, eftir að ég hjálpaði henni aðeins með fast-forward. Það var given að Jude myndi bite the bullit í endann. - En aftur að þjáningum mínum í nótt. Þetta var skelfilegt.
Ég lá í hnipri undir sæng og skalf úr hræðslu. Náði að sofna now and again en hrökk upp þegar vindkviðurnar lömdu á gluggana hjá mér. Ljóta ruglið. Nú hefði verið gott að hringja í rent-a-man, ef ég hefði númerið. Hefði alveg splæst eins og fimm hundruð krónum í einhvern karlmann til að halda utan um mig.
On the bright side.. þá lifði ég nóttina af, sem ég reiknaði ekki með að ég myndi gera.
Í morgun kom Doddi uppí til mín og stakk ísköldum tásunum á milli læranna á mér. "Komstu til að stela hitanum mínum" spurði ég. Hann brosti og tók utan um mig: "þú ert svo heit mamma, það er svo gott að koma og stela hitanum þínum" svaraði hann.
Hann má stela hitanum mínum anytime.
|
|
 |
 |
Shit
Fimmtudagur, 16. september 2004
Það læðist að mér illur grunur.
Fokk me if I'm wrong.
HARPA!
Fimmtudagur, 16. september 2004
Ég upplifi rosalega mikla höfnun núna!!!
Oh hvað ég KVELST!
Fimmtudagur, 16. september 2004
Lífið er svo erfitt og ósanngjarnt akkúrat núna, oh..
Ég er svo þreytt og ég held ég sé með fyrirtíðarspennu dauðans og ég er svo pirruð og mig langar svo í nammi og ég á svo bágt og mér er illt í tánni og ég er með bólu á hökunni og ég held ég sé byrjuð að stama, svo er mér illt í hjartanu og ég er með sár á puttanum og inngróið hár á hægri fótleggnum og rasssæri og og og finn hvernig nýrun eru að gefa sig og ég hef verk í sálinni og..
..verst af öllu.. þá líður mér eins og það sé föstudagur.
Vorkenna mér ekki örugglega allir?
Annars verð ég pottþétt orðin góð á mánudaginn.
|
|
 |
 |
Laugardagur?
Föstudagur, 17. september 2004
Það er ekkert eins leiðinlegt eins og að vinna á laugardegi, en það er nákvæmlega það sem ég er að gera í dag.. af því að í gær fannst mér vera föstudagur.
The pain I go through!
Pabbi hringdi í gær. Sambýliskonan hans, sem hann er búinn að búa hjá s.l. tvær vikur, er búin að henda honum út. Núna vill hann flytja til mín. Ég útskýrði fyrir honum að íbúðin væri of lítil en ég gæti búið um hann í hjólageymslunni. Hann urraði eitthvað í símann, eitthvað sem ég skildi ekki, og sagðist myndi koma á laugardaginn áður en hann skellti á. Nú er spurningin.. kemur hann í heimsókn? -Eða er hann kominn til að vera?
Best að taka stöðuna á hjólageymslunni, just in case.
|
|
 |
 |
Your Sex Sign is Aries!
Föstudagur, 17. september 2004
Áhugavert..
You're fiery, independent, and the best anyone's ever had.
You're so hot that you drive everyone wild with sexual frustration.
You're a total star when you're on top, but you also need to be impressed in bed.
Aries, you are headstrong, spolied, fiery in temperment, and fiercely independent.
You always want to be the best anyone's ever had, and you'll spend all night convincing your lover that you are.
Don't worry - you usually are the best anyone has ever had.
When you get down, you don't leave out anything.
Sexually, you're a leader and very sure of yourself.
One of your favorite positions is being on top, where you can move freely - while letting your lover observe you orgasm.
Sex with you is always exciting.
You start with teasing, playful seduction - that always drives your lovers wild with frustration.
You always deliver though!
You love being over powered, and you respond to a strong sexual appetite with equal fervor.
The confident lover who can give you breathtaking, powerful sex will have you eating out of his or her hand.
Með tilliti til þess að ég er meyja
The Virgo Sex Sign:
Treat you with respect and you'll give your lover incredible sex - night after night.
While you're a bit old fashioned, you're a sexual expert.
If someone is serious about wanting you for keeps, you won't let him or her down...
(but you will go down!)
Virgo, you are strikingly attractive - with the best legs and firmest ass of the Zodiac!
More than anything, you must be treated with respect - no one night stands, no quickies in the back of a car.
You consider lovemaking an event, and you will spend hours creating the perfect scene for love:
Perfumed sheets, wine, candlelight, lingerie....
No one can beat you for sexual know-how. You are a technical expert.
You know all the places your lover wants to be touched... and you can arouse anyone with your tongue and hands.
You'll take special care to find out exactly what your lover likes best in bed.
Sexually, you're a giver.
And while you like to be posessed sexually, when you say "no" - you mean it.
You like to be a bottom, but you also like to call the shots.
Underneath your classy exterior, you are a wild sex-machine.
You are an all night lover, and you seldom tire of giving and receiving sexual pleasure!
What's Your Sex Sign??
..og já. Mér leiðist svona mikið.
|
|
 |
 |
Eftir vinnu
Laugardagur, 18. september 2004
Mamma hringdi í mig þar sem ég snérist í kringum sjálfa mig, með opna buxnaklauf (kom í ljós seinna), í Hagkaup að leita að einhverju til að kaupa í matinn. Hún var að bjóða okkur í mat.
Ég þáði það með þökkum. Við fengum lasanja og ís í eftirrétt. Á eftir fór ég í heimsókn til Þórlaugar í eitt fallegasta hverfi stór-reykjavíkursvæðisins sem ég veit um. Vatnsenda.
Við sátum og kjöftuðum á meðan krakkarnir léku sér. Það var svo gaman og tíminn flaug frá okkur. Allt í einu var klukkan orðin hálf tólf og Doddi vildi fara að komast heim, enda orðinn dauðþreyttur.
Hann sofnaði í bílnum á leiðinni og Jóhanna fór beint í rúmið þegar við komum heim. Ég kom mér hinsvegar fyrir í stól í stofunni, lokaði augunum og hugsaði. Ég er að átta mig á því að ég er búin að sitja í þessum stól í klukkutíma að hugsa.
Sannleikurinn er að ég sakna ákveðins aðila sem mig langar að hafa hjá mér. Hann er ekki á landinu. Held samt að hann komi aftur, til mín.
Vona það.
---
Or as intertran would put it:
Truth is a I miss decide aila whom myself yearn a á brjósti with myself. He is not river fellow countryman. Retentiveness still a he high time back away hrökklast , to my.
Hope a.
ps. Hann er ekki river fellow countryman. No.. really, he isn't.
|
|
 |
 |
The Notebook part II
Laugardagur, 18. september 2004
Ég fékk að gjöf Digital Press Kit fyrir myndina The Notebook áðan. Í kjölfarið brenndi ég í Skífuna til að kaupa tónlistina úr myndinni, en því miður er hún ekki til. Þeir hafa ekki fengið diskinn ennþá. Bömmer.
Hvað gerir maður þá? Jah.. segjum bara að ég kunni að redda mér.
Ég er allavega að hlusta á þessa tónlist núna og hún er svo falleg. Nú get ég skælt ofaní kökurnar sem ég er að baka og losað um afmælisstress í leiðinni. The things I do for love..
Make no mistake. Ég ætla að kaupa þennan disk um leið og hann kemur í verslanir, og ef hann kemur ekki.. þá panta ég mér hann á Amazon.
Kannski ég geri það bara snöggvast!
Get ekki beðið eftir að þessi mynd komi út á DVD. Var að velta því fyrir mér að fara aftur á hana í bíó, síðustu sýningu kvöldsins, með tvær rúllur af klósettpappír með mér og sleppa mér gjörsamlega í lokin. Yfirbugast af sorg og grenja úr mér augun með tilheyrandi snýtingum og ekkasogum.
That's a thought. Vill einhver koma með mér?
hehehe
Setti inn myndirnar úr presskittinu.
|
|
 |
 |
Ekkert má maður
Sunnudagur, 19. september 2004
Ég er hætt við að skrifa um það að pabbi flytji inná mig. Finnst það skelfing leiðinlegt vegna þess að það hefði verið helvíti gaman.
Það hefði nefnilega komið í ljós að hann er búinn að eyða öllum sínum frítíma, sem er 24-7, í að útbúa nýjan göngustaf sem gefur raflost, alveg sæmilegt stuð, þegar ýtt er á takka í handfanginu. Þannig hefði pabbi getað gert mig og börnin geðveik á mjög stuttum tíma, með því að gefa okkur stuð, og þau hann geðveikann í staðinn bara með því að vera til staðar og draga andann. Í þykjustunni auðvitað.
Ég ætlaði að skrifa pabba inn sem fyrrverandi vegavinnumann.. og eitthvað fleira sem ég man ekki. En ég er sumsé hætt við.
Back to reality.
Það er ekkert eins skemmtilegt og þegar barnaafmælum lýkur. Ég væri algjör hræsnari ef ég héldi öðru fram. Þá er líka gott að eiga uppþvottavél. Ég er ekki að segja að mér finnist fólkið sem kemur í þessi afmæli leiðinlegt. Alls ekki. Það er bara svo rosalega gott þegar allt kemst í eðlilegt horf aftur.
Nú er búið að halda tvö afmæli í dag. Fyrst pizza partý bekkjarafmæli frá klukkan tólf til tvö, næst ættingjaafmæli frá klukkan fimm til sjö. Við erum svo heppin að það er pizzastaður í eigu aðila í fjölskyldu blaðamannsins og það var kallaður út sérlegur pizza-bakari sem útbjó mökk af pizzum og þar á meðan eina alveg sérstaklega fyrir Jóhönnu eins og sést á myndinni.
Þetta var algjört brill, kærar þakkir Gísli!
Rifjaðist upp fyrir mér áðan að það var ástæða fyrir því að ég lét ættir okkar blaðamannsins aldrei mæta á sama tíma í afmæli og nei, ekki til að afstýra slagsmálum.
Ég á ekki bolla og diska fyrir allt þetta fólk í einu. Þeir sem vilja stuðla að því að ég geti haldið barnaafmæli með stæl geta gefið mér hæð í vesturbæ Reykjavíkur, klappstóla og Switch 3.
Já og kökugafla. Ég á nóg af glösum.
Þetta hafðist þrátt fyrir skort á diskum og bollum en ég er gjörsamlega út tauguð. Sit hér í spennufalli dauðans og allt sem er eftir af veitingunum er ein sneið af karamelluköku og ein sneið af súkkulaðiköku. Ég er ekki að kvarta. Ekkert eins leiðinlegt og að eiga afganga eftir afmæli.
Á morgun verður frumburðurinn minn tólf ára. Mér finnst þetta rosalega hár aldur og skil ekkert í þessu því ég er korn ung manneskja!
Ég er að drepast úr vöðvabólgu í herðunum og er að spá í að fara í langt, heitt bað og plokka mig jafnvel líka...
-en ekki fyrr en ég er búin að taka munnfylli af ibufen og skola því niður með bjór. Skál í boðinu!
Annarstaðar á hnettinum, akkúrat núna, er maður að stíga um borð í flugvél. Hann verður kominn heim eftir fimm klukkutíma.
Ég verð ekki farin að sofa.
|
|
 |
 |
Time flies.. yeah right
Sunnudagur, 19. september 2004
Ég á svo bágt núna. Allt of erfitt að bíða. Líður eins og ég sé að bíða eftir jólunum, nema nú verður bara þuklað á pökkunum!
hehehe
Það er nú ekkert venjulegt hvað tíminn getur verið lengi að líða stundum. Sérstaklega þegar maður hefur enga eirð í að gera neitt. Mér er orðið illt í maganum af öllu nikótíntyggjóinu sem ég er búin að tyggja og búin að tékka á hvort síminn sé ekki örugglega fullhlaðinn.. jah.. líklega þrisvar á s.l. klukkutíma.
Ég fæ mér sæti í stofunni, opna bók og augun sjá orðin, ég les.. en ég er að hugsa eitthvað allt, allt annað. Ætli ég sé ofvirk eftir allt saman? Þjáist ég af einbeitingaskorti?
Mér líður eins og ég sé orðin vitskert.
|
|
 |
 |
Jóhanna tólf ára
Mánudagur, 20. september 2004
Í dag er Jóhanna tólf ára. Tólf ár síðan mér leið eins og væri verið að saga mig í tvennt með vélsög. Ég bað þrisvar um að láta deyfa mig með vatni undir húðina. Að láta gera þetta við sig er eins og að láta brenna sig með sígarettu. Ég veit þetta, ég hef brennt mig á sígarettu.
Eftir þriðja skiptið, sem tók verkinn bara í nokkrar mínútur, var ákveðið að mænudeyfa mig.
Þegar ég var búin að fæða Jóhönnu og sá hana hugsaði ég: "jájá, glætan að þetta hafi komið út úr mér, ég trúi nú ekki hvaða vitleysu sem er!", bað loksins um að það yrði slökkt á útvarpinu og ætlaði að fara að sofa. Fannst ég vera búin að gera alveg nóg. Nei.. átti ég þá ekki eftir að fæða fylgjuna. Að ég hafi látið hafa mig út í þetta í annað sinn er alveg með ólíkindum!
Barnið vildi ekki gráta og hún var lamin til og frá en það heyrðist ekki píp frá henni. Ég var alveg sallaróleg því ég sá að hún var með tvær hendur og tvo fætur og eitt höfuð og búk sem tengdi þetta allt saman. Hvað gat þá verið að? Ekkert. Enda kom það á daginn, hún var bara þessi rólega týpa, er það enn.
Mér finnst hún auðvitað rosalega vel heppnuð en ég hef ekki nokkra trú á að hún hafi komið út úr mér. Ég kem aldrei til með að trúa því. Trúi ekki að Doddi hafi komið út úr mér heldur. Ég held að þetta sé eitt stórt samsæri og að storkurinn afhendi börnin upp á Landspítala, tilvonandi mæður séu sprautaðar fullar af ofskynjunarlyfjum og voila!
Mér finnst það miklu líklegri skýring.
Til hamingju með afmælið Jóhanna! 
|
|
 |
 |
Natural high
Mánudagur, 20. september 2004
Ég hef ekki prófað ólögleg eiturlyf en ég held, eftir að hafa kynnt mér málið á netinu, að mér líði eins og ég sé á heróíni.
Bliss.
|
|
 |
 |
Laus eða brotin tönn?
Þriðjudagur, 21. september 2004
Þegar ég var að baka fyrir afmælið var ég að taka súkkulaðibitakökurnar út rétt áður en ég brunaði upp í Mosfellsbæ til að halda bekkjarafmælið. Ég setti þær á grind inní eldhúsi til að láta þær kólna og rauk út.
Nema hvað.. þær urðu alveg glerharðar. Svo harðar að þegar aumingja Doddi beit í eina um kvöldið losnaði tönn uppí honum.
Nú er spurningin.. er tönnin brotin, eða er hún "eðlilega" laus?
Tími til kominn að draga upp veskið.. og heimsækja Jón tannlækni.
Að allt öðru.. Hrikalega er illa fyrir mér komið. Komst að því áðan frá hver draumadrottningin Hans er. Konan í lífi Hans. The one that got away. Hann hefur aldrei náð sér alveg og ég held að Hann langi að koma á fundi með henni. Ná sáttum. Fokk.
Ég á ekki séns í helvíti. Hann sagði líka að ég yrði að sætta mig við að vera í öðru sæti. Ég sætti mig auðvitað ekkert við það. Djöfull er kemur maður harkalega niður úr heróínvímunni!
Þvílík vanlíðan, shit. Ég skelf og titra og svitna og er óglatt.
Líka rosalega þyrst.
Ég læt þetta ekki brjóta mig niður.
|
|
 |
 |
Blogg bókmenntir og eilíft líf
Þriðjudagur, 21. september 2004
Ég frétti það í dag, frá fagaðila, að ég haldi úti bókmenntasíðu. Skrifa pistla sem hinir og þessir túlka á þennann og hinn mátann Ég hef reyndar orðið vör við það og fólk er misduglegt við að rata á rétta ruglið í mér, enda rugla ég miiiiiikið.
Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að ég er að skrifa um líf mitt og annarra sem er oft viðkvæmt mál. Sérstaklega í ljósi þess að bloggið er mismikið byggt á sannsögulegum atburðum, eins og ættingjar mínir og vinir hafa komist að raun um. Ég bíð eftir að þetta komi mér í koll og ég þurfi að biðjast afsökunnar opinberlega á því hvernig ég sé fyrir mér að hlutirnir hefðu getað gerst, hvað mér finnst, eða hvernig mér líður.
Lýg sjaldnast um það hvernig mér líður en vissulega geri ég það stundum.
Alveg spari.
Bókmenntasíðunni hafa borist kvartanir yfir því að ég segi ekki jack shit undanfarið og bulli og rugli svo mikið að fólk er hætt að skilja mig. Má ég benda á þá staðreynd að ég er kona, það skilur mig engin hvort eð er. Ég mun nýta mér rétt minn, sem kona, til að halda áfram að vera eins óskiljanleg og mér hentar..
EN..
..sannleikurinn kemur oftar en ekki fram. Hann er bara í umbúðum sem gera hann ótrúlegri en andskotann.
Ég sagði aldrei að þetta yrði auðvelt.
Having said that.. þá er best ég snúi mér að öðrum og mikilvægari málum: Strædó.
Í gær fór ég í strædó í fyrsta sinn í langan tíma. Var að kenna frumburðinum að nota aðrar samgöngur en mig til að komast leiðar sinnar. Djöfull var það sniðugt hjá mér. Ég sé fyrir mér að ég geti haft heitan mat þessa daga sem Jóhanna er á strædó skröltinu en annað.. það rifjaðist upp fyrir mér hvað ég hef gaman af því að vera í strædó.
Í strædó er nefnilega allskonar fólk og það vill til að ég hef gaman af allskonar fólki. Mér finnst gaman að hlusta á samræður unglinga sem eru að kljást við vandamál sem eru að bera þau ofurliði; leiðinlega foreldra, peningaleysi, hvað verkfalli er æðislegt og hvað þeim leiðist mikið því þau hafa ekkert að gera.
Pant fá aldrei að vera unglingur aftur!
Gamalt fólk brosir þegar það sér lítil börn. Harðneskjulegir menn stara framfyrir sig og gretta sig öðru hvoru þegar unglingarnir verða háværir. Mér finnst þetta gaman. Mér finnst eins og ég sé stödd í sögu og mér finnst spennandi að vita hvað gerist næst.
Doddi kom með gullkorn í strædó í gær. Hann sagði: "ég óskaði mér á aughár að verða fullorðinn en aldrei gamall. Þá get ég lifað endalaust." Hann er svo miklu gáfaðari en ég. Á hans aldri var ég að óska mér þess að fá dúkkuvagn eða eignast nammi eða eitthvað álíka rugl. Kom fram í einum af fyrstu færslunum mínum á blogginu að ég óskaði mér oft þess að verða aldrei stór. Mér varð að þeirri ósk minni, því miður, því ég meinti auðvitað að ég vildi aldrei verða fullorðin, ekki að ég yrði svona lágvaxin.
Það er svona þegar maður passar ekki upp á hvernig maður orðar hlutina.
Hver veit. Kannski verður þetta orðið þannig þegar Doddi verður fullorðin að það verði hægt að taka lyf gegn hrörnun og fólk verði aldrei gamalt. Bara fullorðið. Svo deyr það auðvitað á endanum, en ég var ekkert að svekkja hann á því. Fannst það algjör óþarfi.
En talandi um ódauðleika. Ég hef velt því fyrir mér að ef ég dræpist nú á morgun, þá væri hægt að nota bloggið mitt sem heimild um jarðneska tilvist mína. Ef þeir sem skrifuðu þær heimildir sem notaðar eru í dag um jarðneska tilvist fólks sem er löngu farið, ef þeir ýkja jafn mikið og ég.. þá er ekkert að marka neitt af þessu.
Breytir því ekki.. að það sem fólk les á það til að taka sem staðreyndum. Í raun og veru er þetta blogg ekki bókmenntir heldur sögufölsun, skrifað til að ég geti, eins og Doddi, lifað að eilífu.
|
|
 |
 |
Upptekin
Miðvikudagur, 22. september 2004
Það fer að líða að því að ég lagi síðuna mína. Sé fram á að hafa einhvern tíma um jólin.
Komst að því í morgun að kennarar eru komnir í verkfall. Af hverju segir mér engin neitt? Komst líka að því að Sopranos er byrjað aftur. Again, af hverju segir mér engin neitt?
Þarf ég í alvöru að fara að kveikja á sjónvarpinu til að vita hvað er að gerast? Ég má ekkert vera að því!
|
|
 |
 |
Fríkvöld
Miðvikudagur, 22. september 2004
Ég á frí í kvöld. Byrjaði fríkvöldið á því að elda handa mér mat. Hitaði kjúklingaleifar á pönnu, skellti ofaná það einhverju salati og.. hvað heitir það? sól eitthvað.. fræ. Bygons. Allavega.. fékk mér í eftirmat brauð með ferskum mozarella og basil olíu. Þegar ég beit í brauðið lyngdi ég aftur augunum og gaf frá mér nautnarlegt "AHhhhhhh".
Það er einn galli við að hafa börnin heima í verkfallsvörslu.. það fylgir því alveg rosalega mikið drasl. Börnin gleyma nefnilega að þrífa eftir sig oft þegar mamma grýla er ekki heima. Það var nú leiðinlegt - fyrir þau.
Vegna þess að þegar mamma grýla kemur heim.. þá er engin miskunn sýnd. Hef sagt þeim: "I take no prisoners".
Þau vita ekki ennþá alveg hvað ég meina með því, en það er bara betra. Mistík er alltaf góð.
Hvað á maður nú af sér að gera?
The legend of..
Fimmtudagur, 23. september 2004
..Ron.
Góð mynd. Fór að sjá hana áðan.
|
|
 |
 |
Saumaklúbbur hvað?
Fimmtudagur, 23. september 2004
Ég er stolt af því að vera félagi í stofndeild. Við köllum hlutina réttum nöfnum, og erum ekki feimnar við það!
----
Ágæta slúðursystir
Þér er boðið á The Second Annual Great Gossip Conference sem haldinn verður
í xxxxxxx x fimmtudaginn 23. september nk. kl. 20.00.
Eftir fundarhald (e. Advisory board meeting) í yfirstjórn var það samþykkt með öllum greiddum atkvæðum að taka inn nýjan meðlim í félag kvenna sem hafa SATC* þekkingu sem nemur amk. 4 seasons. Ef þú kæra XXX telur þig hafa fengið nægilega SATC þjálfun og sýnir þessu félagi áhuga þá er þér velkomið að verða félagi og mæta á AGGC í hvert sinn sem þeir eru haldnir.
Fundurinn verður eins og fram var komið haldinn hjá einum félaga úr stofndeild og verður boðið upp á veitingar.
Dagskrá:
Bjóða nýja meðlimu velkomna (e. opening ceremony)
Veitingar (e. gala dinner)
Ýmis fundarefni (sjá neðar)
Önnur mál (e. other less important issues)
Fundarefni:
Slúður
Baugsfjölskyldan
Kærastar/eiginmenn
Slúður
Barneignir og uppeldi unglinga
Getnaðarvarnir
Dömubindi og túrverkir (80's bindi)
Slúður
Nágrannaerjur
Foreldrar og systkini
Slúður
Vinnustaðurinn og samstarfsmenn/konur
Herbalife
Slúður
Eftir venjuleg aðalfundarstörf verða opnar umræður.
Bestu kveðjur,
Stofndeild (Advisory Board)
----
Ég hlakka svoooooo til!
(*Sex And The City)
|
|
 |
 |
Niðurstöður AGGC
Föstudagur, 24. september 2004
Fundargerð AGGC 23. september 2004
Mæting var góð og fundurinn fór vel fram. Krufin voru til mergjar ýmis mál svo sem dömubindi og val á slíkum nauðsynum. Niðurstaða: Ekki kaupa dömubindi í bónus, þeir kaupa greinilega upp gamla lagera frá 80's. Að vera með slík dömubindi getur verið eins og að ganga með klump á milli fótanna. Ekki gott. Þeir meðlimir sem eru á hormónalykkjunni sátu hjá í þessari umræðu og notuðu tímann til mikilvægra sms sendinga - enda þurfa þeir ekki að nota vöru sem þessa.
Uppeldi barna. Samróma álit fundarmeðlima er að nota skuli fleiri en eina getnaðarvörn.
Typpastærðir: Fundarmeðlimir komust að því að stærð skiptir máli en það er persónubundið hvaða stærð það þarf að vera. "Stórt" er afstætt hugtak og getur farið út í tóma vitleysu, sama gildir um hugtakið "lítið".
Brjóstahaldarastærðir: Látið mæla brjóstin í Debenhams. Það er niðurstaðan. Margur er ríkari en hann heldur - af brjóstum.
Jógúrthúðað dót. Niðurstaða: Rooooosalega gott á bragðið, muna eftir að kaupa svoleiðis næst þegar ég fer í búð. Er í glærum pokum víst. Engin viðbættur sykur í mjólkursúkkulaðihúðinni.
Holur: Gott er að fá verð hjá mönnum sem nota gröfur - áður en þú biður þá um að grafa holu. Einnig er vert að hafa í huga að sé grafin hola fylgir því jarðvegur sem aðeins verður komið í burtu á vörubíl. Það er einnig vert að taka fram að sundlaugar geta verið góðar þótt L laga séu og til að liðka fyrir ákveðnu máli var sett á laggirnar nefnd til að kanna hvort hægt væri að fá leyfi til að setja hluta sundlaugar í stokk sem nær yfir fjölfarna umferðagötu. Búist er við áliti nefndarinnar innan þriggja vikna.
Hér hefur verið stiklað á stóru. Önnur mál voru tekin fyrir en niðurstöðum verður ekki flíkað hér.. til að skaða hvorki mig né aðra.
Farið er með allt slúður sem trúnaðarmál.
|
|
 |
 |
Geðshræring í ljótu víddinni
Föstudagur, 24. september 2004
Ég var inná baðherbergi áðan, hérna í vinnunni. Ég held ég hafi bara aldrei komið á stað þar sem ég lít alltaf jafn hrikalega illa út eins og þarna inni, og þetta gildir um alla Það er alveg sama hver fer inn á þetta baðherbergi.. þegar viðkomandi lítur í spegilinn sér hann sjálfan sig í alveg nýju ljósi. Lýsingin þarna inni er nefnilega alveg skelfileg og non flattering.
Ég stóð fyrir framan spegilinn og velti því fyrir mér hvort það gæti verið að þetta herbergi sé portal inn í aðra vídd. Ljótu víddina. Hver veit. Þetta herbergi gerir mig dapra. Ég lít í spegilinn og við mér blasir hver einasta svitahola í andlitinu, óvelkominn hárvöxtur, grá hár og broshrukkur í kringum augun.
Make no mistake, ég er ekki brosandi when all of this is going on.
Þegar ég kom aftur að skrifborðinu hlammaði ég mér í stólinn og stundi þungann, var í mikilli geðshræringu. "Sástu þig í speglinum?" spurði Inga sem vinnur með mér. - "Já" sagði ég. "Og nú langar mig til að deyja." "Ég var þarna inni áðan" sagði Inga, "var lengi að ná mér á eftir. Þetta er ekkert venjulegt."
Sú geðshræriing sem ég er í núna er samt ekkert miðað við geðshræringuna sem helltist yfir mig í gær þegar ég heyrði ákveðna setningu sagða. Setningu sem engin kippti sér upp við nema ég. Setningu sem þýðir í raun ekkert en mér brá svo og varð svo um að ég gekk samstundis á næsta borð. Fæ líklega marblett.
Langt síðan mér hefur liðið svona.
|
|
 |
 |
Misty
Sunnudagur, 26. september 2004
Ég lá uppí rúmi áðan þegar ég heyrði lag sem ég þekkti. Já Organisti.. heldurðu að nágranni minn hafi ekki verið að spila Misty á píanóið. Nágranni minn spilar rosalega vel á píanó btw.
Ég lá í rúminu, hlustaði og brosti allan tímann. Skrítið.
Osló - London - ?
Sunnudagur, 26. september 2004
Haldiði að það sé ekki komið verkefni hjá alþjóðlegu glæpasamtökunum! Úhú! Og ég fæ að nota háþrýstidæluna! Shit hvað ég hlakka til.
Það verður vonandi gott veður svo ég geti dulbúið mig, er orðin svo þekkt andlit, og þegar dagur nr. 11 rennur upp.. jah.. held að það verði bara mjög spennandi, hvernig sem á það er litið.
Húmor eða túmor?
Mánudagur, 27. september 2004
Um daginn var ég spurð að því hvort ákveðinn hundur hafi nokkuð pissað í sófann minn. Það kom nefnilega lítill dúlluhundur (tík) í heimsókn til mín og eigandinn sagði að stundum þegar hún kemur í ókunnug hús á hún það til að pissa. Default óöryggisviðbrögð hjá þessari hundategund.
Ég sagði: "ertu ekki feginn að ég er ekki þannig?"
I'm in love!
Mánudagur, 27. september 2004
Dórið kom hér áðan í viðskiptaerindum. Eftir að ég var búin að leiða hann í allan sannleikann um hvað hann þarf að gera.. sýndi hann mér nýja símann sinn. Svo bað hann mig að hringja í sig, sem ég gerði.
Hringingin í símanum, þegar ég hringi í hann, er lagið "Isn't she lovely" með Stevie Wonder - alvöru lagið, ekkert midi rusl.
Dórið er nú soldil dúlla.
Næst þegar ég kaupi mér síma, verður það Nokia 6230.
Það er alveg á hreinu. Þetta var ást við fyrstu sýn.
|
|
 |
 |
Royal PAIN in the ass
Mánudagur, 27. september 2004
Ég get svo SVARIÐ ÞAÐ!
Síðan hún systir mín byrjaði að vinna í sjoppu og gerði mig að gms vini sínum er ekki orðið stundlegur friður fyrir þessari manneskju sem ég er smám saman að læra að hata.
Núna rétt áðan byrjðu sms sendingar dagsins. Fyrst fékk ég eitt. Það innihélt bókstafinn H. Svo fékk ég annað. Það skeyti innihélt bókstafinn A. Næst kom L, svo L, svo O svo upphrópunarmerki. Ég er reyndar að tala við hana í símann akkúrat núna og hún er að segja mér þetta, því ég hætti að lesa eftir A og eyddi þessu út jafn óðum. Ég var í símanum að tala við mömmu. Mamma spurði mig hver fjandinn gengi á. Þá var Júlía komin upp í fimmtán sms. "Ah.. þetta eru bara 30 sms á dag, hún fer að klára kvótann" sagði ég við mömmu.
Stuttu eftir að ég var búin að tala við mömmu hringdi Júlía í mig. Ég bað hana að hætta að hringja í mig og hætta að senda mér sms. Ég hefði heimili til að reka og ég mætti vera að svona vitleysu. Nei, hún ætlar ekki að hætta að hringja. Henni leiðist í sjoppunni því engin kemur að versla. Þá sagði ég henni að næst þegar ég hitti hana ætlaði ég að taka með báðum höndum utan um hálsinn á henni og herða að þangað til hún hættir að anda. "Já, kondu í sjoppuna, mér leiðist svo mikið".
"Ef ég kem í sjoppuna Júlía, þá verður það bara til þess að berja þig".
-"Geeeerðu það" sagði hún.
Mitt næsta bragð verður að hringja í Og Vodafone og fara fram á að þessi manneskja verði gms óvinur minn. Fá nálgunarbann. Ég er að klikkast á þessu helvítis stöðuga áreiti, hana.. eitt sms í viðbót. Ég meinaða..
|
|
 |
 |
Fullorðin?
Þriðjudagur, 28. september 2004
mrrr
Það hlaut að koma að því. Ég hef líklega misst allan lífsvilja þegar ég opnaði ísskápinn áðan. Á því augnarbliki áttaði ég mig nefnilega á því að mig langar ekki að spila í Playstation. Þegar ég spái í það.. rifjast upp að á heimilið eru komnir tveir nýjir leikir síðan á jólum og ég hef ekkert spilað í hvorugum þeirra. Verst er.. sama hvað ég hugsa um það.. þá langar mig ekki að spila - sem er óvenjulegt þar sem allavega annar þeirra er Castlevania leikur, svona lemja/drepi vampíru leikur.
Ætli ég hafi fullorðnast allt í einu?
Oh ég fæ hroll við tilhugsunina. Hvenær gerðist þetta? Af hverju gerast svona skelfilegir atburðir og af hverju er ég fyrst að fatta þetta núna?
Veit ég get verið treg en þetta er fáránlegt.
Skelfilegt.
Þegar ég kom að sækja Dodda í sund vatt sundkennarinn sér að mér og sagði: "Hurðu.. ég er boðin í pizzu heima hjá þér á eftir". "Já er það?" spurði ég steinhissa. "Já", sagði hann, "Doddi bauð mér, gaf mér upp heimilisfangið og sagði að það yrði til nóg". Sundkennarinn brosti. Ég brosti til baka og sagði: "Já vertu bara velkominn, það verður nóg til."
Hann Doddi.
Ég er alveg hætt að bjóða kennurum í mat upp úr þurru.
Það er svona að vera fullorðin.
|
|
 |
 |
Frankenstein?
Miðvikudagur, 29. september 2004
Doddi: "mamma, ertu ekki glöð hvað ég er góður strákur?"
Anna: "Jú ég er rosalega glöð með þig, mér finnst þú frábær"
Doddi: "það varst líka þú sem settir svona góðann heila í mig"
Doddi: "Einn strákur á leikskólanum mínum er ekki með svona góðann heila. Hann er alltaf að stríða krökkunum. Ég held að heilinn í honum sé eitthvað bilaður"
|
|
 |
 |
Mér er kalt
Miðvikudagur, 29. september 2004
Það er rigning og rok.
Krakkarnir eru hjá pabba sínum, eins og þau koma til með að vera alla miðvikudaga, og ég.. ég er að hengslast um.
Mér er ennþá kalt. Gat ekki sofnað í gær fyrir kulda. Var komin í peysu og buxur og með tvær sængur áður en ég gat sofnað.
Merkilegt með blogg. Í hvert skipti sem ég frétti af einhverjum "nýjum" sem "les" mig, þá fer ég alltaf í gegnum sömu krísuna. Ég byrja að vanda mig. Breyti oft um stíl, verð alvarlegri.. lýg jafnvel minna og segi augljóslega öðruvísi frá. Að sjálfsögðu er ég hér að tala um þegar ég átta mig á því að fólk sem ég kannast við á einhvern hátt (eða ekki) en þekki ekki vel er að lesa mig.
Fyrsta krísan mín af þessum toga var þegar ég áttaði mig á því að foreldrar vinar hans Dodda gætu verið að lesa. Ég hugsaði með mér að þetta fólk myndi aldrei leyfa barninu sínu að eiga nokkur samskipti við mig ef það læsi síðuna mína. Eða hvað?
Ég fór að dempa mig niður, eiginlega ómeðvitað samt. Fór minna hamförum í dramatíkinni og Jude Law hvarf. Eh.. hann var reyndar ekki einu sinni kominn til sögunnar þá, nema þá hvað ég minntist öðru hvoru á að mér fyndist hann sætur og allt það. Nú er ég búin að frétta af manneskju sem gæti verið að lesa mig, veit það ekki einusinni, og ég er strax komin í varnarstöðu. Ég finn að ég hef minna þor í ruglinu og bullinu og hef þar af leiðandi minna að segja alltogether.. því ég lifi einstaklega einhæfu lífi - svona í raunveruleikanum.
Ég hef ákveðið að segja: "fuck it". Ég meina.. ef fólk hefur ekki smekk fyrir því sem ég skrifa.. skiptir það máli?
Nenni ekki að pæla í því. Finnst bara merkilegt að ég skuli bregðast svona við. Augljóslega hef ég engar áhyggjur af fólki sem les mig og þekkir mig. Það ratar nokkurnvegin á rétta rás.
Ég held að grunnurinn að blogginu mínu sé leiði. Mér leiðist. Það hefur komið fram, í kommenti held ég, að mér finnst leiðinlegt að ég hafi ekki nú þegar fengið óskarsverðlaun fyrir besta aðalleik í mynd framleiddri af Universal, ekki á ég herragarð og engan Bentley. Líf mitt fór ekki eins og ég gerði ráð fyrir. Ég ætlaði aldrei að vinna í fiski og hokra í kjallaraholu með sautján börn á mínu framfæri. Á þau öll með sitthvorum manninum. Hef gift mig alls sex sinnum. Hver myndi segja frá þessu á heimasíðu?? Líf mitt eru vonbrigði frá upphafi til enda, allt frá því að líffræðilega móðir mín skildi mig eftir á tröppunum á Þórskaffi. Ég veit ekki einu sinni hvenær ég á afmæli.
Hvenær gerðist þetta? Af hverju var ég ekki stoppuð af þegar ég var komin upp í.. jah.. segjum fimm börn. Þegar ég horfist í augu við þetta er eins og ég sé að vakna upp úr coma.. og kemst að því að líf mitt er martröð í helvíti...
|
|
 |
 |
|