Versl. manna helgi
Sunnudagur, 01. ágúst 2004
Doddi er búinn að vera með hita alla helgina og nefið á honum er eitt sár af snýtingum. Ég sem ætlaði að vera uber mamma og fara með krakkana í fjölskyldugarðinn eða eitthvað annað skemmtilegt. Honum leiðist svo mikið greyinu að það er ekki fyndið.
Í kvöld tók ég niður allar myndir í stofunni, spartlaði og "blettaði". Nú er ég með auða veggi og get ekki ákveðið hvað ég ætla að hengja upp. Ég hef af þeim sökum frestað ákvörðunartöku um það efni indefinately.
Ekkert að því að hafa auða veggi. Mér finnst það bara ágætt.
Ég fór í sund í dag í Laugardalslaugina. Snillingur Anna klúðraði algerlega því í stað þess að fá teygju með lykli fær maður pening sem maður á að setja í slot á skápnum.. og.. já.. ég snéri lyklinum auðvitað og læsti út í loftið. Það var sem betur fer það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom inn, svo ég þurfti ekki að klæða mig til að fá annan pening. Þær hlóu góðlátlega að mér konurnar, ég var líka búin að segja þeim að ég kynni ekkert á þetta, var fljót að hafa orð á því þegar hún rétti mér peningin in the first place. Ég hef aldrei verið hrædd við að lýsa yfir þekkingarleysi mínu þegar það á við. Ég þekki mig nefnilega svo vel að ég veit að mér tekst alltaf að klúðra einhverju þegar ég er að gera hluti í fyrsta skiptið. Það er miklu minna neyðarlegt þegar fólk á von á því.
Hefði samt átt að hafa orð á því að ég hefði aldrei áður farið í heita pottinn í Laugardalslauginni því ég rann á rassinn þegar ég fór ofaní og fæ líklega marblett á rassinn. Öllu verra er að maður sem kom í þennan heita pott á eftir mér rann líka og eiginlega datt hann á handlegginn á mér og mér er illt. Samt ekki nógu illt til að vorkenna mér almennilega. Meira.. ég veit að ég er með handlegg.. in a way I didn't before.
Breytir því ekki að þessi sundferð var mjög skemmtileg enda var ég í góðum félagsskap.
Blaðamaðurinn kom seinnipartinn að sækja dótið sitt. Mér tekst að draga fram endalaust af dóti svo þó að hann hafi tekið allt sem komið var í kassa þá er ennþá mökkur hér sem á eftir að taka, and think! Á morgun ætlum við að taka geymsluna! Það verður fróðlegt. Ég verð þreytt bara við tilhugsunina! Úrvinda eiginlega.
Djöfulsins helvítis rok er alltaf þessa dagana!
Annars fann ég í dag ferlega skemmtilega hluti í kassa. Passamyndir af mér langt aftur í tímann, zippo kveikjarana mína og úrklippu frá því ég var spurð spurningu dagsins í.. var það Vísir?
Það kom snemma í ljós hversu jákvætt og lífsglatt barn ég var, og ég hef aldrei verið feimin við að láta það í ljós. Spurningin var eitthvað um snjó. Svarið:
"Anna Fanney fimm ára: "Ég er ekkert búin að leika mér í honum og finnst hann ekkert gaman." "
Þar hafi þið það.