Laugardagur, 07. ágúst 2004
Maður finnur ýmislegt í geymslunni. Ég fann t.d. gamlan vin minn, hann Úfus, í kassa. Ég gafst upp á honum á sínum tíma, hann var allur í flækju og svo er hann svo mikið aristókrat.. erfitt að gera honum til hæfis.
En hann bað mig svo fallega um að fá að koma upp og vera hjá fjölskyldunni, og starði með þessum áhugalausu augum á mig þangað til ég gafst upp og tók hann með mér.
Ég greiddi úr flækjunum áðan og nú er hann eins og nýr.. ja.. ég veit ekki nákvæmlega hvað hann er, en það er eitthvað.
Eitt það skemmtilegasta sem Úfus gerir er að dansa fyrir krakkana. Hann er helvíti góður dansari...