www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Stofuhiti
Laugardagur, 07. ágúst 2004

Fór að sjá Fahrenheit 9/11 áðan með kennara sem ég þekki. Djöfull kemur Bush illa út greyið. Mér finnst Bowling for Colombine betri.

Í kvöld er Ladies Night hjá mér. Nánar tiltekið Pink Ladies Night. Veit reyndar ekki hvað það þýðir nákvæmlega.. það var svona.. eh.. special request. Ég á ekki eina bleika flík þar sem ég er búin að henda bleiku nærbuxunum mínum.. en ég á bleikt naglalakk og bleikan varalit. Það verður að duga. Við ætlum að drekka frá okkur ráð og rænu og halda svo niður í miðbæ til að dansa við dragdrottningar í kjólum, bleikum kjólum væntanlega.

Hvað veit ég um það.

Ég er búin að henda meira af fötum síðan síðast þar sem ég er hætt að passa í 94% af því sem ég átti. Fann í geymslunni föt sem ég notaði sem unglingur og hef af einhverjum ástæðum ekki haft rænu á að henda. Ég passa í þau.. en þau passa ekki.. get it? Sorpufóður allt saman.

Gallabuxur geta ekki klikkað.

Ég er samt í ótrúlega litlu djamm stuði eftir að hafa horft upp á hörmungar sem ganga á í heiminum í bíó. Best ég prufi að setja nokkra gamla diskósmelli á "fóninn" og sjá hvort ég komist ekki í "Gay Pride" stuð...


| anna | 20:37 |
comments

Neibbs Farenheit er betri.

Nr. 1 | posted by: thors | 9.08.2004 | 15:28:42 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web