Laugardagur, 14. ágúst 2004
Ég er stífluð eins og motherfucker, með hellu fyrir vinstra eyranu og hósta. Sem er víst eðlilegt þar sem það er ekkert að mér..
-segi það ekki, víruskvef endar víst svona. Og þá á ég við hóstann.
Í gær fékk ég sms rétt fyrir klukkan tólf. "Sofandi?" Ég svaraði: "Neibb :)", fékk til baka: "Thar sem vid erum ad halda fyrir ther voku, viltu ostakoku? :-)" Ég svaraði: "Ostakoku?? Kem ad vormu!"
Nágranni minn var með matarboð í gær og bauð mér í eftirréttinn. Hitti þar skemmtilegt fólk og sat með þeim í rúman klukkutíma, borðaði æðislega ostaköku og komst að því hvernig Danir blóta hjá henni Stínu.
Þau voru auðvitað ekkert að halda fyrir mér vöku, ég var að horfa á Dirty Work, the right one, og þetta atriði með bolinn er alveg eins fyndið og mig minnti.
Annars held ég að það megi kalla það sem ég er að gera þessa dagana að deita. Veit það samt ekki alveg, ég er auðvitað ekki í æfingu og veit ekki hvernig svona hlutir ganga fyrir sig...