www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Æðislegt
Miðvikudagur, 25. ágúst 2004

Í gær fékk Jóhanna bréf í pósti. Ég sótti póstinn í hádeginu og þegar við komum heim, seint og um síðir eftir verslunarleiðangur, rétti ég Jóhönnu bréfið. Hún tók það og fór með það inn í herbergið sitt. Þremur mínútum síðar kom hún fram, ljómandi eins og sól í framan og sagði: "mamma, veistu hvað stendur í þessu bréfi???"

Hún rétti mér það og þegar ég var búin að lesa æpti ég upp yfir mig: "Ó MÆ GOD JÓHANNA ÞETTA ER ÆÐISLEGT!" Svo stökk ég á fætur og faðmaði hana að mér.

"NKG - Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2004.

Til hamingju! Þú hefur komist í vinnusmiðjur í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda með hugmynd þína "CPUVGE tölvuleikur."

Inn komu 2517 hugmyndir og 57 hugmyndir komust áfram.

Ég er gjörsamlega að rifna úr stolti!


| anna | 9:08 |
comments

vá en frábært!!!
innilega til hamingju með dóttur þína! thumb up

Nr. 1 | posted by: litlaskvis | 25.08.2004 | 9:10:54 | [+] |

Æði! Það er ekkert sem er æðislegra en þegar aðrir koma auga á það sem við höfum alltaf vitað um um börnin okkar. thumb up

Nr. 2 | posted by: Ingólfur | 25.08.2004 | 9:39:01 | [+] |

Til hamingju - þið megið sko vera stoltar!
thumb up

Nr. 3 | posted by: María | 25.08.2004 | 11:44:45 | [+] |

til hamingju thumb up

mín skotta líka! sjáumst kannski annanhvorn vinnusmiðjudaginn, Fífa mætir báða dagana wave

Nr. 4 | posted by: Hildigunnur | 25.08.2004 | 12:14:01 | [+] |

Innilega til hamingju Anna og Jóhanna.
Ekki erfitt að ímynda sér hvaðan hún hefur hæfileikana.
Og viðfangsefnið, kemur ekki á óvart wave

Nr. 5 | posted by: Harpa | 25.08.2004 | 12:23:34 | [+] |

Innilega til hamingju með að eiga svona hugmyndaríka og sniðuga stelpu!

Nr. 6 | posted by: Sigga | 25.08.2004 | 13:05:27 | [+] |

Til hamingju frænkur wave

Hlakka til að hitta ykkur í kvöld og fá að vita allt um málið smile

Nr. 7 | posted by: edda | 25.08.2004 | 13:39:47 | [+] |

Vá, flott hjá henni! smile

Nr. 8 | posted by: Atviksorða-Anna | 25.08.2004 | 14:55:20 | [+] |

Til hamingju báðar tvær. Eplið fellur sjaldnast langt frá eikinni, enda vaxa engin epli á eik colgate

.... en engar hártoganir hér. Frábært! thumb up

Nr. 9 | posted by: hugskot | 25.08.2004 | 15:59:32 | [+] |

Kærar þakkir!! colgate

Þetta er ekkert smá gaman!

Nr. 10 | posted by: anna | 25.08.2004 | 16:37:19 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web