Miðvikudagur, 04. ágúst 2004
Ég get ekki orða bundist, verð að minnast á helvítis flugu helvítið sem er búið að vera að pirra mig hérna dögum saman. Flýgur hringinn í kring um mig, framan í mig og í hárið á mér, í tíma og ótíma. Þrisvar hefur þetta kvikindi flogið út um hurðina þegar ég fer út með ruslið og í hvert eitt og einasta sinn kemur hún inn aftur.
Ég finn á mér að endalok þessarar lífveru nálgast óðfluga. Nákvæmlega. Þetta er óð fluga og ég þoli hana ekki lengur.
Ég hef ákveðið að standa upp, ná í flugnaspaðann og enda þetta once and for friggin' all!
Það er samt varla að ég nenni því. Verð að taka á öllu sem ég á..