www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gott að eiga góða að
Miðvikudagur, 25. ágúst 2004

Jesús!

Ég er svo stressuð að það hálfa væri nóg, enda er þessi ferð svona "make or brake" ferð. Verð í vinnubúðunum allan laugardaginn og svo er próf á sunnudaginn. Annaðhvort verð ég tekin inn sem fullgildur meðlimur í glæpasamtökunum og fer á prósentur, eða ég verð send heim til Íslands, niðurbrotin, með skít og skömm af því ég get ekki sett saman Uzí eða rotað dverg.

Osló dæmið var víst ekki nóg, þó að þeir væru "quite impressed with my inzane driving", eins og þeir orðuðu það. Sætur þessi Ítalski.

Bygons.

Ég er búin að liggja yfir manúölum um hvernig maður býr til kjarnorkusprengjur úr hráefni sem maður finnur í eldhúsinu hjá sér, vissi ekki að örbylgjuofnar væru svona magnaðir, og ég er búin að kynna mér anatómíu mannslíkamans og finna veiku blettina þrjá.

Ég þarf hinsvegar á hjálp að halda. Ég veit að ég verð mikið í Hyde Park á afgirtu svæði í mold og drullu.. svona skotgrafaleik, en svo verð ég líka látin fara innanum venjulegt fólk og prufa labb-rabb tækin og skæruhernað í návígi. Spurningin er: WHAT DO I WEAR?

Ég var búin að pakka öllu sem ég á, fyllti þrjú koffort og tvær ferðatöskur.. þegar ég fór að spöklera... Kannski væri þetta tad much. Ég meina.. ég þarf ekki þrettán pör af skóm, því síður allar þessar sokkabuxur og ég held að ég hafi nú aldrei notað þessa loðkápu. - Ever.

Hvað gerir maður í neyð? Jú.. maður hringir í Eddu frænku; gúrmé kokk sem vinnur fyrir sér sem leigumorðingi til að geta ferðast út um allan heim til að kynna sér fjölbreytta matarmenningu og viða að sér framandi hráefni bæði til matargerðar og morða. Auk þess þarf ég smá hjálp við hvellhetturnar á C-40 kittinu sem ég fékk. -Já og blásýru. Vantar meira svoleiðis. Fann nefnilega hrossaflugu í hádeginu sem má muna sinn fífil fegurri.

Edda var einmitt að búa til Indverskt gúllas þegar ég hringdi og bauð mér og krökkunum í mat. Ég fann ekki bragðið af réttinum en sveið smá í munninn og vona að þetta hafi verið nógu sterkt til að bragðlaukarnir hrökkvi í gang. Glatað að hafa ekki bragðskyn í mat hjá Eddu. Það er glæpur.

Næst leiddi hún mig í gegnum villuna sína í landi Kópavogs og eftir korters göngu komum við í fataálmuna. Á leiðinni sagði hún mér frá síðasta djobbi og gaf mér góð tips um það hvernig maður getur notað blómapotta í sinister tilgangi. Edda rúlar.

Hún byrjaði á að segja mér að henda öllum fötunum mínum, lét mig fá camouflage galla úr míkrófíberefnum sem hrinda frá sér drullu og skít, geðveika hermannaklossa, dragt með byssuhulstri og sjúklega flott sokkabelti með festingum fyrir litla skambyssu. Ég verð lang, lang flottust. Vantar samt dömuskó og hún lét mig fá kort yfir helstu skóverslanir á stór-reykjavíkursvæðinu og merkti með rauðu við þá staði sem ég á að versla á.

Að lokum lét hún mig fá ferðatösku úr títaníum og lyklakippu sem skýtur örvum með svefnlyfi.

Vá. Þetta var gaman. Svo ætlar hún að kenna mér að elda líka. Doddi varð rosa kátur...

---

Fyrir fólk sem les hitt og þetta rugl út úr því sem ég skrifa þá fór ég í mat til Eddu í kvöld og hún ætlar að kenna mér að elda. That's it.


| anna | 22:57 |
comments

thumb up pirate evil wave thumb up

toungue


colgate laughing

Nr. 1 | posted by: edda | 26.08.2004 | 11:23:16 | [+] |

FOKK ME! DJÖFULLINN SJÁLFUR.

Var það ekki týpískt.. gnasher

wave

Nr. 2 | posted by: anna | 26.08.2004 | 11:32:31 | [+] |

Ég var að klára Kill Bill 1 áðan, og ætla svo að renna í gegnum Kill Bill 2 eftir að krakkarnir eru sofnaðir, ef guð lofar. Ég held það væri ekki galið hjá þér að gefa þér tíma til að liggja svolítið yfir Umu í slómó, þú mundir pottþétt græða á því. En annars bara bon voyage. Verst að þú nærð ekki að hitta Cherie í London, hún er einmitt á leiðinni hingað til Íslands, gott ef hún er ekki bara lent. Sorrí með það. Ooaahh sad

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 26.08.2004 | 19:23:50 | [+] |

Bið að heilsa Kalla og Camillu. Ekki klikka á smáatriðunum. Þetta verður mjög erfitt mission og ég treysti fullkomlega á þig. Þú munt skila þínu enda sá ég að bókin sem þú varst að skila mér "The human anatomy" orðin vel slitin á köflum. Já, hjúkrunarnámið er nýtilegt til margra hluta thumb up

Góða skemmtun wave

Nr. 4 | posted by: edda | 27.08.2004 | 11:48:14 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web