Sunnudagur, 15. ágúst 2004
Ég var búin að skrifa færslu sem innihélt nákvæma lýsingu á bágbornu ástandi mínu til heilsunnar, aðgerðum sem ég hef gripið til í þeirri von að ég lagist einn daginn og vangaveltur um bók sem ég byrjaði að lesa í gær en gafst upp á.
Þegar ég greip um músina og færði bendilinn á "Save", poppaði upp lítill gluggi og í honum stóð: "EXPLORER has generated errors and will be closed".
Þar sem ég var með alla færsluna á skjánum, en gat ekki afritað það með copy, tók ég screen shot.. rétt áður en vélin mín skaut xplorer niður.
Helvítis djöfulsis vél! Á screenshottinu vantar explorer gluggann!!!!
Ég hef því ákveðið að segja: "fuck this", og ætla í bað.