Fimmtudagur, 12. ágúst 2004
Djöfull verður maður latur í svona veðri. Ég er farin að skilja síesturnar þarna í suðri.
Mig langar svo að horfa á Dirty Work að ég er hreinlega að spá í að standa upp og skella mér út á leigu. Þetta er ein eigulegasta B-mynd sem ég hef séð um ævina, kannski er ég bara með svona sick húmor - gæti verið, en aðalleikarinn er með eitt það fyndnasta fas sem ég hef séð og röddin... annað eins áhugaleysi og heimska er fáheyrt. Ég elska þennan leikara og í þessu hlutverki.
Besta og lang fyndnasta atriði myndarinnar er þegar vitleysinginn, Norm, ætlar að endurheimta stuttermabol sem hann á, og maðurinn sem er í bolnum fer úr.. kemur í ljós að maðurinn er loðinn eins og api.. viðbrögð Norm eru óborganleg. Ég spólaði til baka og horfði aftur á meðan ég grét úr hlátri.
Svo er þessi mynd örugglega crap. Ég á það til að glorifæa myndir í minningunni. Hvað er að mér? Þessi mynd er crap. Það er given. Spurning hvort hún er fyndið crap eða ekki...
Skiptir ekki máli, ég verð að sjá þetta aftur.. og hér með eru örlög þessa kvölds ráðin. Ég ætla út á leigu.