Góðan dag, Anna. Ég er ein af lesöndunum þínum sem hafa aldrei þorað að segja bofs en nú skal stökkva... Þetta er frábær síða hjá þér, kemst einstaklega skemmtilega að orði og margt nytsamlegt sem ég hef lært, t.d. að laga brotna nögl . Nú þarf bara að splæsa í réttu græjurnar og bíða eftir næsta tækifæri til að brúka þessa nýju kunnáttu mína.
Takk fyrir að kommenta Unnur og velkomin. Ég er einmitt með tvær "viðgerðar" neglur eftir helv. geymslutiltektina. Það hefði nú verið alveg sérstakt ef þær hefðu allar sloppið heilar í gegnum þá þrautargöngu, ég prísa mig sæla að hafa bara brotið tvær.
Annars hafa neglurnar á mér aldrei verið svona góðar fyrr. Kannski að lýsistvennan og matarræðið hafi eitthvað að segja
Nr. 3 | posted by: anna |
8.08.2004 | 16:24:06 | [+] |