Fimmtudagur, 12. ágúst 2004
Það er ekki sama hvaða Dirty Work við erum að tala um. Fór út á leigu, nei.. hafði þá ekki einhver annar en ég tekið myndina á leigu. Á minni leigu. Þessari sem ég fer alltaf á, og sé þessa mynd alltaf á sama stað... þar sem hún bíður eftir að ég taki sig.
Ég fór á aðra leigu, bað um Dirty Work. Fékk þetta rusl.
Ó.. MIG AUMA! Og ég sem var byrjuð að hlæja í bílnum og hlakkaði til að sjá Norm taka skref afturábak og setja upp óborganlega svipinn sinn þegar mannapinn fór úr bolnum. Þar sem ég fór út fyrir mitt póstnúmer til að ná í þessa ömurð, og er komin í náttföt, nenni ég ekki að gera neitt í málinu.
Oh well... það hefði svosem átt að segja mér eitthvað þegar afgreiðsludaman bað mig að stafa fyrir sig nafnið á myndinni...
On a lighter note:
Geislaspilarinn minn er ónýtur, þ.e. sá sem er í bílnum svo ég get ekki búið til geisladiska til að spila í bílnum. Bíddu? Æi fokk.. þetta átti að vera lighter note.. tek geislaspilaraböggið fyrir seinna. The lighter note er að af því að geislaspilrainn spilar bara diska sem brenndir eru í verksmiðjum þá hef ég brugðið á það ráð að fara með "alvöru" geisladiskana mína út í bíl og spila þá.
Datt niður á Matt Bianco áðan. That was kinda cool.