Bara byrjunin..
Mánudagur, 30. ágúst 2004
Ég get náttúrlega ekkert sofnað, er allt of upprifin eitthvað. Sofnaði samt ekkert í vélinni.
Já og kærar þakkir Alan, fyrir að taka upp þáttinn fyrir mig!
Organisti: Takk fyrir þetta hrós. Vill til.. að þetta lag, Misty, er eitt af mínum uppáhalds Ellu Fitzgerald lögum. Annars hefði ég auðvitað aldrei spilað það. Var að spá í að hafa svona tónlistarstemmara í öllum þættinum, spila Louis Armstrong og svoleiðis snillinga.. en svo fannst mér bara íslensk tónlist eiga betur við, enda er ég að fjalla um íslenskt uppeldi. Já og svo er ég líka sukker fyrir einkahúmor. Bendi samt á að ég segi "...en.. maður drauma minna, this one's for you".
MÚHOHOHOHOHOHO
Því það ert ekki þú Organisti.. ekki í alvörunni. -Auk þess sem mamma myndi aldrei leggja blessun sína yfir mann sem er í hljómsveit. Nema kannski.. mögulega.. Sinfóníuhljómsveitinni...
Þú kemst nú samt andskoti nálægt því, að vera maður drauma minna.. neita því ekki.
Í London hitti ég átrúnaðargoðið mitt í eftirpartíinu hjá Kylie. Lét auðvitað taka mynd af okkur saman. Jesús, hún er alveg eins skemmtileg in real life. Djöfull var þetta gaman. Ah.. soldið glatað að æla út um allt þegar ég var búin að slátra tveimur flöskum af kampavíni með henni en það reddaðist. Hún kveikti líka í rúminu en það reddaðist líka og það sviðnaði bara smá hár á fótunum á mér. Lítil eftirsjá í þeim..
Það magnaðasta af öllu í þessari ferð var maður sem ég hitti á sunnudeginum. Hann ber nafnið Jude Law. ÓJÁ! Ég gisti á Hyatt regency (the churchill) og þar sem hann er ennþá húsnæðislaus því hexið, helvítis fyrrverandi kellingin hans, hirti húsið og allt innbúið.. já.. þá sumsé býr hann á Hyatt þegar hann er í London. Þetta er ekki lygi, ég var þarna í alvörunni. - og hitti Jude Law. Skrapp aðeins á netið í lobbíinu á sunnudeginum, tékka á tölvupóstinum og taka stöðuna. Er ekki bankað í öxlina á mér.. ó mæ god. Maðurinn er sem grískur guð. Ég missti málið, slefaði og fyrirgaf honum samstundis allar fyrri misgjörðir. Við eyddum deginum saman uppá herbergi og svo kvöddumst við mjög innilega útá flugvelli um kvöldið.
Það er ekkert leyndarmál að ég sökka í trivial á íslensku en í gær komst ég að því að ég sökka feitt í trivial á ensku.
Það sem manninum finnst gaman að spila. Það er ekki lítið..
Remember to let her under your skin,
Then you'll begin to make it..
Better better better better better better, oh.
Na na na, na na na na, na na na, hey Jude...
En við skulum ekki tapa okkur í ruglinu. Enda er þetta næstum allt lygi.
Mikið helvíti er Hyatt flott hótel. Það er staðreynd.
Já og Atviksorða-Anna.. þetta var sko ekki skrifað í óráði, þetta var skrifað af yfirlögðu ráði. Ég fékk hugmyndina þegar ég var með óráði hinsvegar. Var samt ekki með meira óráðin en svo.. að ég hafði rænu á að skrifa hana niður...