Þriðjudagur, 31. ágúst 2004
Ó vá. Djöfull er þetta skrítið. Mér líður eins og ég hafi misst vin eða eitthvað. Ég er reglulega döpur og ég veit af hverju.
Já, ég er eins og þjófurinn sem er sorgmæddur yfir því að hann sé að fara í fangelsi en ekkert sorgmæddur yfir því að hann hafi stolið. Nákvæmlega þannig líður mér.
Ég á eftir að sakna song of the week alveg hryllilega og mér finnst eins og það vanti strax eitthvað í líf mitt núna þegar ég er búin að taka út linkana á lögin.
Shit hvað ég er fucked up.
Ég læt þetta samt ekkert stoppa mig. Finn einhvern vinkil á þetta, sem er réttu megin við lag-a-línuna.
MÚHOHOHOHO
Einhverjar tillögur?