Þriðjudagur, 31. ágúst 2004
Í gær afhenti ég krökkunum DVD disk; The Nightmare Before Christmas - special edition. Þau ljómuðu.
Dauðsé eftir að hafa ekki keypt Edward Scissorhands líka og Sleepy Hollow. - Fyrir mig, augljóslega.
Ég er hálf þreytt ennþá og eiginlega leið. Kannski er það veðrið.
Jóhanna er lögst í pestina alræmdu sem Doddi bar með sér upprunalega í hús. Ég er ennþá á pensillíni, já.. fór á föstudaginn rétt fyrir flugtak aftur til læknisins sem fannst ráðlegt að framlengja pensillínskamtinn. Ég ætlast til þess að losna við allar umgangspestir fram að jólum, ég hef tekið út mína refsingu og vel það.
Ég er komin með lyktarskyn og bragðskyn aftur svo ég hlýt að vera að lagast. Er samt ennþá með hósta og hósta upp þvílíkum viðbjóði að það hálfa væri nóg. Djöfuls rugl sem þetta er.
Næstu daga verð ég að púsla saman stundarskrá fyrir fjölskylduna. Krakkarnir eru í íþróttum og maður er byrjaður að plana skutl eftir vinnu. Eftir vinnu? Hvenær er það annars?
Ah fuck. - If only.
Af hverju er ég leið? Ég þoli ekki þegar ég er leið og veit ekki af hverju. Gjörsamlega þoli það ekki. Nú á ég eftir að sitja og velta fyrir mér hvað er að angra mig í allan dag og líklega verð ég engu nær. Þegar ég kem heim set ég í þvottavél og held áfram að pæla í þessu, tek smá til, bý til kvöldmat og verð ennþá að hugsa um þetta. Vonandi kemst ég að niðurstöðu svo ég geti afleitt mig fyrir svefninn. Ég má ekki við að missa úr meiri svefn.