www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
2. í hafragraut
Miðvikudagur, 25. ágúst 2004

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér undanfarna daga, eins og hjá flestum foreldrum með börn á skólaaldri. Nú á ég tvö! Djöfull líður tíminn svakalega.

Ég er nokkrum tugum þúsunda fátækari eftir að ég hressti aðeins upp á fatalagerinn hjá blessuðum börnunum og keypti skóladótið. Þetta er ekkert grín, shit maður.

Í gærmorgun vaknaði ég eldsnemma og fékk þá flugu í hausinn að elda hafragraut. Málið er nefnilega að ég hef ekkert bragðskyn. Já.. það er ekki komið aftur síðan ég var með pestina í síðustu viku. Fattaði að nú er lag að borða hollustu sem aldrei fyrr, fyrst ég þarf ekki að finna bragðið af henni.

Vill til að Dodda finnst hafragrautur mjög góður - með rúsínum útá, enda vel uppalinn af Leikskólum Reykjavíkur. Nema ég hef aldrei eldað hafragraut. Eh.. jú.. einhvertíma gerði ég það og henti honum strax, þvílíkur viðbjóður.. en ég mundi ekkert hvernig maður eldar þetta. Með því að lesa utaná pakkann komst ég að því að uppskriftin er 2 á móti 1 svo ég eldaði þennan líka æðislega hafragraut. Gaf Dodda lýsi og graut í morgunmat, tók lýsi sjálf og borðaði hafragraut með bestu lyst, enda fann ég ekkert bragð. Þetta fer nú ekkert illa í munni. Texture-ið minnir á.. eh, nei.. best að halda í "PG" rating aðeins áfram.

Í morgun endurtók ég leikinn, eldaði hafragraut, saltaði hann meira að segja í þetta sinn og Jóhanna tók þátt í átinu með okkur. Ekkert bragð.

Keypti mér grape í hádeginu. Mér finnst grape viðbjóður en þar sem ég finn ekki bragðið af því skiptir það engu máli. Ef þetta heldur áfram mun ég spara stórfé í matarkaup þar sem mig langar ekkert sérstaklega að borða eitthvað rosalega djúsí þegar ég finn ekki bragðið af því.

Það væri nú sniðugt ef maður gæti tekið inn pillu sem tæki bragðskynið alveg í burtu. Maður þyrfti að passa sig soldið á því að setja ekki terpentínu í ísskápinn eða málningu. Ég er viss um að málning fari svipað í munni og jógúrt. Vont að vera t.d. blindur með ekkert bragðskyn. - Ef maður geymir málningu í ísskápnum.

En ég er ekki blind svo það er allt í lagi. Verst ef bragðskynið verður ekki komið þegar ég fer til London vegna þess að ég er að fara út að borða og svona. Oh well.. það verður þá bara ódýrara. Tilgangslaust að splæsa einhverju gúmmelaði á manneskju sem finnur ekki bragð. Bið bara um hafragraut.


| anna | 12:38 |
comments

Já kaloríurnar?! Djö.. ég gleymi þeim alltaf.

Þetta er fínt, rosalega góð fylling allavega. Ég varð ekki svöng fyrr en um hádegi! thumb up

Nr. 1 | posted by: anna | 25.08.2004 | 16:40:38 | [+] |

Hefurðu prófað að nota mjólk (eða léttmjólk) í stað vatns í hafragrautinn. Þú þarft að sjóða aðeins varlegar, á lægri hita, til að brenna ekki mjólkina, en bragðið og áferðin verða miklu miklu betri, heldur en af þessum hefðbundnu vatnsgrautum. Að auki geturðu sleppt saltinu, því með mjólkinni er ekkert "vatnsbragð" af grautnum. smile

Ég ólst upp við mólkurhafragraut, og í fyrsta skipti sem ég smakkaði vatnsgraut, þá hreinlega kúgaðist ég.

Rúsínur út á graut eru að sjálfssögðu algjört möst.

Nr. 2 | posted by: Már | 27.08.2004 | 10:06:38 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web