www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Weird
Þriðjudagur, 27. júlí 2004

Þetta var spúkí nótt.

Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum átti ég erfitt með að sofna í gær. Kannski vegna þess að úti var smá rok. Veit það ekki.

Ég held ég hafi loksins sofnað um eitt leytið en var samt alltaf að vakna við lætin í rokinu. Hefði auðvitað átt að loka öllum gluggum áður en ég fór að sofa, geri það næst.. vegna þess að klukkan hálf fimm í nótt hrökk ég upp við svakalegan dynk, spratt á fætur og fór að leita. Jú.. bæði börnin á sínum stað, ekki höfðu þau dottið framúr.. ég fann ekkert. Lokaði samt öllum gluggum, tók annan rúnt og leitaði. Fann ekkert sem hefði getað valdið þessum dynk. Endaði upp í rúmi með andlitið upp við vegg. Hrökk við nokkrum mínútum síðar við það að hurðin lokaðist. Ég snéri mér að hurðinni og starði á hana. Af hverju lokaðist hurðin? Allir gluggar lokaðir og hún hreyfist venjulega ekki þessi hurð, þó svo gluggarnir séu opnir!

I give up. There is something out to get me.. and it ain't no man.

Sem minnir mig á, ég horfði á Predator í gærkvöldi, þ.e. ýtarefnið á tvöfalda DVD disknum hans pabba. Það var ágætt. Á meðan blandaði ég mér naglalakk. Fékk bláan lit, frekar grúví.

Djöfull er ég syfjuð.


| anna | 9:06 |
comments

Ég veit ekki hvort er sorglegra, það að foreldrar mínir borguðu tónlistarnám fyrir mig í einhver 8-10 ár eða það, að ég er að verða brjáluð á því að það kemur ekkert nýtt lag í lag vikunnar hjá þér!!! Tracy Ullman er náttúrulega æðisleg og ég deyfi söknuð minn á henni, var sko að finna hana, "song of the week: mai 2002"

Guð geymi þig og þína og Inga Gröndal heitinn.

Nr. 1 | posted by: Úllen Dúllen | 27.07.2004 | 22:10:05 | [+] |

Trúðu mér Úllen, ég er að klikkast líka. Ég sat bara í allt gærkvöld að hlusta á brill tónlist og 15% hennar hefði sko átt erindi í song of the week! Ég fer að nippa á nippinu!

Nr. 2 | posted by: anna | 28.07.2004 | 8:57:39 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web