Fimmtudagur, 15. júlí 2004
Ég er búin að vera að fara í gegnum dót í kvöld og nótt. Uppí skáp fann ég þrjár stílabækur sem ég notaði til að skrifa í rétt eftir að Doddi fæddist. Blogg í bók?
Ekkert af því er birtingarhæft á netinu en þetta var holl lesning fyrir mig.
Í dag var sagt við mig að ég væri að hlaupa í burtu en það er ekki þannig. Ég er að ganga í burtu og mér líður vel.
Á ég að biðjast afsökunnar á því?
Bullshit.
Ég er jafnvel að spá í að fara að sofa bráðum. Þó að ég sé ekki nærri búin að fara í gegnum þetta drasl. Ótrúlegt hvað rúmast mikið magn af rusli í svona lítilli íbúð.
Einn daginn ætla ég að henda þessum bókum. Það verður samt ekki í dag.