Laugardagur, 10. júlí 2004
Stundum sé ég ekki það sem er fyrir framan mig. Ja.. ég sé það.. en ekki eins og það er. Ég sé eitthvað annað. Ég sé eitt, trúi öðru.
Ég er í fríi. Börnin fóru um klukkan níu. Ég var í símanum heillengi og þá fór ég að horfa á Calendar girls, brill bíómynd. Á meðan var ég að lakka á mér neglurnar. Núna er ég orðin þreytt en er samt að spá í að fara í bað.
Á morgun er ég líka í fríi. Kannski að maður fari í sturtu?
French manicure, í tilefni dagsins...