www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sunnudagur
Sunnudagur, 25. júlí 2004




Ég var að setja síðasta púslið á sinn stað í "Who Did It" púsluspilið mitt. Ég byrjaði á föstudagskvöldið á þessu og ætlaði að klára þetta um helgina. Stóð við það.

Ég ætlaði líka að þvo bílinn. Stóð við það. Ætlaði reyndar að bóna hann líka, stóð ekki við það. Þetta er búin að vera dásamlega róleg helgi hjá mér.

Ég er eitthvað svo mellow og.. neutral eitthvað. Mér er alveg sama um allt einhvernvegin. Nenni engu. Vaknaði klukkan sjö í morgun og þreif bílinn, er búin að vera að púsla síðan. Chilla, ein með sjálfri mér með tónlist í botni.

Ég er að hlusta á "Shut Up" með Black Eyed Peas, og á eftir því kemur Hot Fudge með Robbie Williams. WOHA!

Já, síminn minn hringdi í alla nótt og vakti mig reglulega. Alltaf sama númerið, númer sem ég kannast ekkert við. Ég nennti ekki að svara, ef ske kynni að þetta væri áfengissjúklingur á röfl þörf, slökkti bara á hringjaranum í hvert skipti og fór að sofa aftur. Þessi gleði byrjaði klukkan hálf fimm í nótt.

Viðkomandi hringdi alls fjórum sinnum í nótt, síðast rétt fyrir sjö en þá fór ég framúr. Klukkan tvö í dag hringdi hann svo aftur. Í það skipti ákvað ég að svara:

Anna: "Halló"
Hringjari: "Já er Bjössi þarna?"
Anna: "Það er engin Bjössi í þessu númeri"
Hringjari: "Ó.. fyrirgefðu"
Anna: "Nei það ætla ég ekki að gera"

..svo skellti ég á.

Í kvöld ætla ég í sund, gufu og svo ætla ég að kúra mig undir teppi fyrir framan sjónvarpið. Með vatn í flösku.

Já, á meðan ég man... hehehe.. ég beið á rauðu ljósi við Melabúðina áðan, var að hringja svona tíu sek símtal og beið eftir að einhver svaraði.. þegar mótorhjólalögga keyrði framhjá. Nema... honum var litið á mig.. ég, ekki í bílbelti og með símann upp að eyranu. Hann var á mjög litlum hraða og gaf mér augnarráð dauðans.

Þegar ljósið var orðið grænt var ég komin í belti og búin að skella á. Enda beið hann eftir mér á næstu gatnamótum.. stoppaði mig ekki. Brosti bara. Ég brosti á móti.

Er ekki líka bara bannað að tala í síma þegar maður er á ferð? Ég ber við heimsku, alveg miskunnarlaust.

Já.. btw.. I know who did it!


| anna | 17:48 |
comments

Verður að fá þér handfrjálsan hehe... En ein spurning... þegar þú ert að fara í sund... sem mér sýnist þú gera álíka oft og ég... ferðu þá í Vesturbæjarlaugina? Ég fer nefnilega oftast þangað en hef aldrei hitt þig í heita pottinum. Kannski er ég á öðrum tímum smile

Nr. 1 | posted by: Sigga | 25.07.2004 | 20:51:33 | [+] |

Ég fer líka í Vesturbæjarlaugina en ég hef hingað til aldrei farið í pottinn embarassed

Geri það næst! thumb up

Nr. 2 | posted by: anna | 25.07.2004 | 21:25:02 | [+] |

Jamm... það getur verið gaman smile Stundum eru engir sem maður þekkir og þá held ég ekki út nema 10 mínútur í pottinum, en um daginn komu svo margir sem ég þekki að ég samkjaftaði ekki í 45 mínútur og var eins og risasveskja þegar ég fór upp úr. Meira að segja sólbrunnin risasveskja cool Sjáumst!

Nr. 3 | posted by: Sigga | 26.07.2004 | 8:29:28 | [+] |

Ég kem næst í pottinn. Það er ekki nokkur spurning!!!! wave

Nr. 4 | posted by: anna | 26.07.2004 | 9:38:38 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web