www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sorg
Mánudagur, 19. júlí 2004

Nýlega hef ég hætt ýmsu. Ég hef hætt að vera gift, hætt að reykja, hætt að drekka kók, hætt að borða nammi og hætt að liggja í sófanum og reyna að ná meðvitundarleysi eins oft á dag og ég get.. en þetta er ekkert miðað við það sem ég var að losa mig við áðan.

Harpa, hvíta ljóta peysan sem ég hef gengið um í heima hjá mér, þessi sem er að detta í sundur úr elli og lítur út fyrir að vera eign Grýlu.. fyrir hálftíma síðan sleppti ég taki af poka sem innihélt þessa peysu og lét hann gossa niður ruslarennuna.

Ég er búin að hágráta síðan og er komin með ekka, hristist öll og skelf. Er alvarlega að spá í að fara niður í ruslageymslu og ná í hana, henda henni í þvottavélina og reyna að ná sáttum...

Nú fyrst kemur í ljós.. hversu sterk ég er.


| anna | 19:54 |
comments

Jahh ef þú stenst freistinguna að fara niður og sækja peysuna góðu þá hef ég bara eitt að segja: Þú getur allt! what

Nr. 1 | posted by: Harpa | 19.07.2004 | 20:58:47 | [+] |

AHA! Fór í sund og gufu og kom ekki við í ruslageymslunni á leiðinni upp.

ÉG GET ALLT!

Nr. 2 | posted by: anna | 19.07.2004 | 21:30:51 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web