www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
..skuggalega
Miðvikudagur, 28. júlí 2004

Æ.. ég veit ekki hvað ég á að skrifa. Á ég að skrifa um hvað ég borðaði í dag? Banana, epli, appelsínu, abt mjólk, súpu, egg og brauð. So far, og ekki í þessari röð. Á ég að skrifa um þegar ég þreif eldhúsið eftir matinn? Hengdi upp úr þvottavélinni? Las fyrir Dodda? Borgaði reikninga? Kíkti á álagningaseðilinn á netinu?

Ég er með peaceful easy feeling og mér líður vel.

Álagningaseðillinn minn var pís of keik. Ég er hvorki ríkari né fátækari.

Ég fór áðan og náði mér í vídeó. Ætla að leggjast í gláp og horfa á Along Came Polly. Þegar myndin er búin ætla ég í langt heitt froðubað og skríða svo upp í rúm með blautt hárið, loka augunum og..


| anna | 21:26 |
comments

........góða nótt
Eða......, er nóg hleðsla á batteríunum? toungue

Nr. 1 | posted by: Harpa | 28.07.2004 | 23:58:09 | [+] |

Mér sýnist þú bara hafa komist bærilega frá þessari færslu. Fer þessi baðfroða ekki illa með húðina?

Nr. 2 | posted by: AlanHudson | 29.07.2004 | 3:16:15 | [+] |

Mæltu manna heilastur. Undanfarin ár hef ég verið að vinna baki brotnu um þessa vesalingamannahelgi. Núna kvelst ég í manndrápshita. Hann er samt skárri en bilunin um þessa helgi.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 29.07.2004 | 5:24:24 | [+] |

Þeir sem flúið hafa Pleasentville og falið sig í White Mountains vita, að allar helgar eru verslunarmannahelgar.


"I got plenty of nothing
And nothing's plenty for me..."

tc

Nr. 4 | posted by: Tony Clifton | 29.07.2004 | 11:32:43 | [+] |

Hvernig var svo myndin? Eg skellti mér líka á leiguna og fékk love actually og sestu niður " The three amigos" og veistu hún var mun fyndnari svona í minningunni en í sófanum heima í gærkveldi. Kannski af því að ég átti annars ömurlegt kvöld í vændum. sad

Nr. 5 | posted by: Þóra | 29.07.2004 | 11:48:23 | [+] |

Þóra.. þú þarft á "pick me up" að halda. Það er nokkuð ljóst!

Nr. 6 | posted by: anna | 29.07.2004 | 13:44:24 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web