www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Skrifborð og DVD
Miðvikudagur, 21. júlí 2004

Í kvöld tók ég til á skrifborðinu mínu. Ég fer að verða uppiskroppa með staði til að taka til á. Þá verð ég að fara að stunda útsaum eða framleiða Galdradúkkur. Á skrifborðinu fann ég ýmislegt, eins og venjulega þegar ég þríf skrifborðið mitt. Ég fann gleraugu sem ég notaði þegar ég var ljóshærð. Setti þau upp og sannfærðist: þau fara mér bara þegar ég er ljóshærð. Spurning hvað ég geri við þau.. því ég ætla ekki að vera ljóshærð aftur. Ég fann líka uppáhalds glossinn minn, undir haug af pappírum, uppáhalds spennuna mína í sama haug, ökuskírteinið mitt, vegabréf síðan ég var fjórtán ára.. christ.. ég ætti nú að brenna það útá grilli.

Ég fann bók sem ég er búin að vera að leita að, svart naglalakk, sem ég er líka búin að vera að leita að, tvo gsm síma sem engin er að nota, mökk af nikótíntyggjói sem er ekki útrunnið og fimm kveikjara.

Næst fór ég í bað, naglalakkaði mig og nú er ég að fara að horfa á Quick Change. Það er mynd sem ég verð að eignast á DVD. Ég ætti að búa til lista yfir myndir sem ég þarf að eignast á DVD. Ég er svo gleymin.

Overboard
Cinema Paradiso
Quick Change
Practical Magic

Dettur ekkert fleira í hug. - Í bili.

"It's bad luck just seeing a thing like that"

Ég kann þessa líka!


| anna | 22:39 |
comments

ef þú ætlar í alvörunni að fara að sauma út þá máttu ganga í krosssaumsklúbbinn minn thumb up

og... mér finnst galdradúkkurnar þínar æðislegar!!

Nr. 1 | posted by: litlaskvis | 21.07.2004 | 23:43:54 | [+] |

hmmm...ljóshærð...það hlítur að hafa breytt lífi þínu eitthvað...eða hvað? Þú hefur kannski bloggað um það...verð að leita að því. Hefuru einhvern tímann verið rauðhærð?

Nr. 2 | posted by: tótalí | 22.07.2004 | 9:20:56 | [+] |

Ertu í krosssaumsklúbbi? Ég hef saumað út en það er mjög langt síðan og ég hef auk þess svo hrikalega dýran smekk að ég tími ekki að kaupa mér það sem mig langar í. It's the story of my life. hehehe

Ég hef verið: Ljóshærð, appelsínugulhærð, gráhærð, ljós-brúnhærð, brúnhærð, svarthærð, grænhærð, rauðhærð og.. út í fjólubláhærð.

Hárið á mér er hinsvegar dökk kopar brúnt á litinn með rauðum blæ og ég er hætt að lita það í bili. Ótrúlegt að ég sé ennþá með hár!

Nr. 3 | posted by: anna | 22.07.2004 | 9:26:47 | [+] |

auðvitað er ég í krosssaumsklúbbi colgate er útsaumsfrík aldarinnar: http://uk.f1.pg.photos.yahoo.com/ph//my_photos

ég kaupi, eða læt kaupa allt fyrir mig í USA því að þar er allt svo miklu miklu miklu ódýrara thumb up er komin með nógu mikið safn til að geta opnað mína eigin verslun hehe!

Nr. 4 | posted by: litlaskvis | 22.07.2004 | 12:46:45 | [+] |

Verð að þakka fyrir mig. Í einhverju "ógeð á sólinni" kasti festist ég í Song of the week og fór að hlusta. Þvílík og önnur eins snilld. Er búin að hlusta á "Krodachrome", "Farewell My Summer Love", "Electric Dreams" og fleiri gullmola sem heyrast alltof sjaldan.

Meira meira...

Takk, þú ert snillingur!

Nr. 5 | posted by: Úllen Dúllen | 22.07.2004 | 15:38:38 | [+] |

Snillingur? Ja.. ég er nú engin Alfreð Einstein*

Hvað lögin varðar, þá er ánægjan öll mín megin. Song of the week er mér mjög kært. Vonandi verð ég hinsvegar ekki kærð.. en þann dag mun þetta hverfa eins og dögg fyrir sólu.. hehehe


*fyrir þá sem hafa ekki húmor vil ég taka fram að ég veit að hann heitir Albert. Mér finnst það hinsvegar ekki eins fyndið...

Nr. 6 | posted by: anna | 22.07.2004 | 17:34:20 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web