www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sko, skilurðu
Sunnudagur, 04. júlí 2004

Ég höndla ekki meiri Adaptation. Ég hugsa allt of mikið og mér líður hræðilega.

Kaufman ætlar til New York. Hann hefur komist að því að hann er pathetic, feitur, sköllóttur og hugsar bara um sjálfan sig. Af þeim sökum hefur hann skrifað sig inn í handritið. Hann ætlaði að minnka efnið, þrengja það niður í það sem skiptir máli. Ég er of hungruð. Það er það sem er að mér, og að fara til New York er ekki lausnin. Hungrið er mitt smækkaða efni.

Ég er pathetic líka. Reyndar ekki feit og ekki sköllótt. Hugsa reyndar ekki heldur bara um sjálfa mig, þrátt fyrir að blaðamaðurinn haldi það. Hann veit ekki hvað ég er að hugsa. Ég hugsa samt of mikið. Kannski er það svarið. Að hugsa meira um sjálfan sig? Nei, that's not it. Ég hugsa alveg nóg um mig. Held ég. Hvað er með þetta hungur mitt? Hvaðan kom það?

Kannski er það til staðar vegna þess að ég var svelt þegar ég var barn? Kannski fékk ég ekki nógu góða næringu. Kannski vegna þess að ég átti foreldra sem voru aldrei heima? Nei, that's not it either. Ætli svarið sé í New York?

Kannski þarf ég að læra að vera sjálfri mér nóg. Er ég sjálfri mér nóg? Ég veit það ekki. Kannski þarf ég að lesa eitthvað, læra eitthvað, gera eitthvað. Kannski þarf ég bara að slappa af og gera ekkert. Liggja með tærnar uppí loft og slaka á? Kannski þarf ég að hreyfa mig meira, borða hollari mat...

Þetta með orkídeurnar og skordýrin fór alveg með það.

Kannski þarf ég að halda áfram að leyfa mér að breytast í það sem ég er, hvað svo sem það er. Hljómar eins og ég sé mutant. Þetta hungur... það vinnur ekki með mér. Ég þarf að komast að því af hverju ég er svona svöng.

Hver er ekki pathetic?

Stundum er bara ekki hægt að finna lausnina nema með deux ex machina. Mig langar að horfa á eitthvað með Woody Allen. Mig langar að horfa á Zelig aftur. Fokk góð mynd. Kannski er það málið. Kannski er ég með snert af Zelig complex? Nei, that's not it.

Kannski þarf ég að brjóta niður fíknirnar mínar. Finna út úr því af hverju þær eru. Hvað er ég að bæta mér upp? Get ég bætt mér það upp öðruvísi? Er hægt að fylla á mig svo ég þurfi ekki ábót? Uppbót?

Ég veit ekkert og ég sannfærist alltaf meira og meira um það. Hvernig tilfinning ætli það sé að vita allt um eitthvað? Hvað myndi það vera? Það sem ég myndi vita allt um, ef ég fengi að ráða?

Ég veit það ekki.


| anna | 0:41 |
comments

Skortur á innri ró maybe?????? Og hvað er þá innri ró...

Nr. 1 | posted by: Dillirófan | 7.07.2004 | 23:55:48 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web