www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sekt
Miðvikudagur, 14. júlí 2004

Ég borgaði í stöðumæli í dag, í fyrsta skiptið í mörg ár sem ég hef gert það og ég hef lofað sjálfri mér því að gera það aldrei aftur.

Ég fékk nefnilega sekt.

Ég var lengur í burtu en ég hafði reiknað með og hef líklega verið búin með tímann tíu mínútum áður en ég kom að bílnum, og sektinni.

Venjulega, þegar ég legg við stöðumæli, hugsa ég: "ah fuck it, ég borga þá bara sektina", og ég fæ ekki sekt. Svona hefur þetta verið, árum saman. Ég fæ heldur aldrei sektarkennd yfir þessu enda samviskulaus með öllu. Stundum reyni ég að keyra yfir fólk líka, sem er að fara yfir á gangbrautum. Ég er pure evil.

Ég keyrði heim með sektina kramda undir rúðuþurrkunni, enda var ég í annarlegu ástandi eftir húðhreinsunina sem ég var í á meðan helvítis stöðumælavörðurinn böstaði bílinn minn.

Dagurinn fór í snatt af ýmsum toga. Ég meikaði inn í Ikea og keypti það sem ég þurfti að kaupa. Komst líka á bensínstöðina og keypti ruslapoka.

Það er samt ekki alveg það gáfulegasta sem ég hef gert.. að hætta að reykja áður en ég tek barnaherbergið í gegn. Ónei. Ég er búin að vera í einn klukkutíma að tæta út úr skápunum. Kassar rifna og yfir mig bókstaflega rignir rusli. Haugurinn á miðju gólfinu stækkar og stækkar, ef ég væri í Danmörku eru góðar líkur á því að áður en ég klára að tæma skápana, þá verði ég komin með hæsta fjall.. Danmörku.. inn í barnaherbergi. Ætla ekki að útiloka það.

Ég bölva og ragna og sparka í rusl og kassa. Við það þyrlast upp blöð og rusl. Christ hvað mig langar í sígarettu. Mig langar í sígarettu og kók.

Guð hjálpi mér þegar blaðamaðurinn kemur hingað að hjálpa mér á eftir. Ég vona að hann sé hættur.. því ég get ekki staðist að bömma af honum sígarettu ef hann á þær til.

Jú. Fokk. Ég verð að vera sterk.

Hvað á ég að skrifa meira? Mig langar verulega til að sitja hér áfram því mig langar ekki aftur inn í þetta horror herbergi. Í alvöru talað. Ég finn kvíða í maganum og mér er óglatt við tilhugsunina.


| anna | 18:17 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web