Föstudagur, 30. júlí 2004
Heppilegt að við vorum ekki á leiðinni út úr bænum þessa helgi, Doddi er lagstur í pest. Ég er búin að vera í því að sitja og standa eins og honum þóknast, hugga hann þegar hann fær grátköst því maður verður soldið lítill þegar maður er veikur. Svo er honum illt í nefinu af snýtingum þrátt fyrir Andre klósettpappír. Hvernig væri þetta ef maður verslaði klósettpappír í bónus? Nefið væri líklega dottið af barninu!
Ekki það.. við förum aldrei út úr bænum um verslunarmannahelgi. Það er ekkert nýtt.
Ég setti upp þráðlausa símann sem ég keypti í fyrradag og sá strax eftir því þegar Jóhanna greip hann og lokaði sig inní herbergi um leið og hún kom heim seinnipartinn í dag. Hún er í skýjunum með nýja símann.
Ég er búin að læra á þetta nýja tól og ákvað að skella mér í að koma nokia símanum mínum aftur í samband við tölvuna mína. Það tókst í fimmtu tilraun.. þegar ég var búin að ná mér í nýjustu driverana og forritin. Þegar blaðamaðurinn kom áðan að skila mér bílnum mætti hann á svæðið með mökk af bíó prómó dóti. Af þeim sökum sit ég hér við vélina mína með Shrek eyru, sjá mynd. Ég er líka í Catwoman bol.
Not to worry.. Catwoman bolirnir eru ekta bíó prómó bolir, úr þunnu efni og endast líklega ekki nema nokkrar vikur, þ.e. ef ég spara þá... Ekkert ógnar Vanilla Sky veldinu.
Ég held samt mest upp á Shrek eyrun og skellti nýrri skjámynd í síma blaðamannsins ásamt uppáhalds hringitóninum hans, af góðmennsku einni saman. Helvítis lygi.. ég lofaði honum þessu fyrir einhverju síðan. Það hjálpar að ég er eins og versti karlmaður þegar kemur að tækjum og finnst þetta gaman. - Enda fékk ég borvélina og verkfærakassann í skilnaðnum.
Man nú reyndar þegar ég keypti þessa borvél á sínum tíma. Kom heim og sagði: "allir inn í stofu að sjá hvað mamma keypti - handa sé.. eh.. fjölskyldunni!". Mikið djöfull var ég ánægð með þessa fjárfestingu. Ja.. og er enn! Manneskja eins og ég verður að eiga borvél!