www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Livin' with wolves
Sunnudagur, 25. júlí 2004

Áðan var dyrabjöllunni hringt. Eða ekki "áðan", um sjö leytið. Í dyrasímann kynnti sig maður sem sagðist búa á hæðinni fyrir neðan, sagði að hann gæti ekki opnað hurðina niðri og bað mig að hleypa sér inn. Þar sem ég veit að hurðin niðri getur verið erfið sagði ég "gjörðu svo vel" í dyrasímann um leið og ég hleypti straum á "opnarann". Þá gerði vart við sig maður nr 2, sem sagði "megum við svo koma í heimsókn á eftir?"

Ég svaraði því ekki og lagði tólið á.

Tól. Minnir mig á atvik í dag, sem var fyndið..

Við María fórum í bæinn í dag. Þar borðuðum við á Sólon, byrjuðum úti en hrökkluðumst inn þegar fjórir geitungar ákváðu að borða með okkur.

Ég fór á Spiderman í kvöld. Slöpp mynd, flott lokaatriði. Mér leiddist á köflum.

Þessi "pabba helgi" er miklu betri en sú síðasta. Ég er ekki í sígarettu söknuði, búin að fara í sund og gufu, reyna að hjálpa líkamanum að hreinsa sig. Óþolandi að þegar maður tekur upp heilbrigða lifnaðarhætti lítur maður út eins og maður lifi á sykri og feitmeti, ef marka má húðina á manni. Fáránlegt. Segi það ekki, ég er skárri eftir að ég fór að stunda sundið. Meira að segja töluvert.

Ég get ekki meir. Ég er að leka niður úr þreytu..


| anna | 0:19 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web