www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kolbeinn kafteinn segir það betur en ég
Miðvikudagur, 14. júlí 2004

ÉG ER SVO GEÐVOND!

Djöfullinn sjálfur hvað ég þarf að fá útrás. Christ. Ef ég ætti mér einhvern bólfélaga myndi ég hringja í hann og æpa í símann að ég þyrfti að have angry sex, NOW!

En ég yrði engu betur sett. Mig myndi langa í sígarettu like never before strax á eftir og þá myndi ég líklega berja hann. -Bólfélagann.

Ég eldaði grjónagraut í matinn. Það var það eina sem ég hafði taugar í að elda. Ég á nefnilega eldavél sem ég get stillt þannig að hún bara eldar grjónagrautinn á meðan ég er að gera eitthvað annað. Ég þarf reyndar að setja pottinn á helluna, hrísgrjón og vatn í pottinn og stilla eldavélina, en það tekur mig innan við þrjár mínútur sem þýðir að ég var komin inn í barnaherbergi að sparka í hluti á nó tæm, þrátt fyrir matseld.

Mér er illt í kjálkanum því ég er búin að gnísta tönnunum svo mikið og ég er komin með smá seyðing í hausinn, sem breytist í hausverk seinna þegar ég skalla blaðamanninn úr geðillsku einn saman. Því ég veit að hann er ekki hættur að reykja. Ég veit það. Ég veit það. Ég veit það.

Bað hann að koma ekki "með neitt" með sér en ég veit að hann gerir það. Ég veit það. Ég veit það. Ég veit það. Hann geymir það í bílnum, ég veit það.

Ég er ekki viss um að mér sé óhætt að hleypa honum inn eins og stemmarinn er hjá mér. Við eigum örugglega nokkur rifrildi inni hjá hvoru öðru og hann þarf ekkert að gera til að gera mig ennþá brjálaðri í skapinu en ég er núna. Kannski er nóg fyrir hann að segja "halló".

Best ég feli skærin.

FOKKJULÆÆSDÆJOÐA DJÖFU.LLL12

ÉG var ða bíta mig i´djöfuls kinnina og ég get ekki einu sinni friggin

Hann er kominn. Þða stemmir. Hann ætlaði að koma klukkan sjö. Hann er ennþá einum klukkutíma of seinn. Þetta er krónískt.

Ég var að hleypa honum inn. Hvað gerist?


| anna | 19:48 |
comments

Lítið húsráð. Hita upp mjólkina með grjónunum þangað til fer sjóða. Gjarna um morguninn. Vefja grautnum inní teppi og sæng og láta hvíla yfir daginn. Soðið og klárt þegar maður kemur heim úr vinnunni.

Nr. 1 | posted by: Refurinn Loki | 14.07.2004 | 20:09:18 | [+] |

Ef ég næði til þín núna...

Nr. 2 | posted by: anna | 14.07.2004 | 20:46:22 | [+] |

Kemur framhald? angel

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 14.07.2004 | 22:43:51 | [+] |

Soffi kemur sterkur inn...

Nr. 4 | posted by: anna | 16.07.2004 | 19:48:59 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web