Sunnudagur, 18. júlí 2004
Ég er búin.
Í dag fórum við í heimsókn til afa Úlfs og þar fékk ég lánaðar þrjár DVD myndir. Speed, Predator og Overboard.
Ég er að hlusta á Overboard, þetta er í annað skiptið sem hún rúllar í gegn í dag. Ég var að koma upp úr baði fyrir þremur mínútum og í baði áttaði ég mig á hvenær ég tók ástfóstri við þessa mynd. Það var þegar ég bjó með Akureyringnum. Ég horfði á þessa mynd á næstum hverju einasta kvöldi og ég skil ekki af hverju. Ég á ekkert sameiginlegt hvorki með Joanna Stayton eða Dean Proffitt. I don't get it.
Jóhanna horfði á myndina þegar hún rúllaði í gegn fyrst og þegar hún heyrði mig fara með díalóginn á all mörgum stöðum spurði hún mig hvort þetta væri uppáhalds myndin mín. "Ein af þeim" sagði ég og finnst merkilegt að þrátt fyirr að ég sé ekki búin að horfa á hana árum saman kann ég hana samt ennþá utanað.
Kannski er það bara húmorinn og samspil Goldi Hawn og Kurt Russel. Ég veit það ekki. Kannski er það tónlistin, sem mér finnst btw mjög skemmtileg. Þessi útgáfa af "Jim Dandy To The Rescue" er helv flott.
Ég veit það ekki. Kannski er það bara ævintýrið sem ég heillast af.
Næst á dagskrá.. dekurkvöld. Ég ætla að bera á mig lósjon, naglalakka mig og hlusta á Predator.