Föstudagur, 23. júlí 2004
Í nótt dreymdi mig Jude Law. Hann kom í heimsókn, eins og hann á til að gera, borðaði með mér og krökkunum og svo hjálpaði hann mér að koma þeim í rúmið. Þegar það var búið settumst við í sófann og kúrðum yfir bíómynd en svo.. fórum við að kyssast.
Úff.. af hverju dreymir mig ekki svona á hverri nóttu?
Við vorum búin að kela á sófanum í smá tíma þegar hann stóð upp, tók í höndina á mér og leiddi mig upp í rúm. Hann lagði mig á rúmið, fór úr að ofan og þá....
...var ég vakin. Jóhanna stóð yfir mér og sagði: "mamma, mig var að dreyma ljótan draum, má ég sofa hjá þér í nótt". "Já", umlaði ég og Jóhanna prílaði yfir mig og stakk sér undir sæng.
Ég fór aftur að sofa og vonaði að ég myndi fá framhald af draumnum en nei. Restina af nóttinni dreymdi mig mörgæsir og bréfaklemmur..