Þriðjudagur, 13. júlí 2004
Hluti af barnaherbergjaplaninu var að fara í Ikea að kaupa nokkra hluti. Svona patent Ikea hluti eins og skussi kassa á hjólum eða pilla dótapoka. Á bílaplaninu við Ikea, forgarð helvítis, var hinsvegar svo mikið af bílum að mér snérist hugur. Brunaði niður í bæ, keypti mér Nonnabita, í fyrsta skipti á ævinni, og þaðan útá vídeóleigu.
Það verður ekkert gert í kvöld annað en að liggja í leti og reyna að ná sér eftir að hafa keyrt inn á bílaplanið við Ikea.
Á morgun mun ég gera aðra tilraun. Hver veit nema ég hafi taugar í að leggja bílnum og jafnvel fara inn! Nei, maður má ekki tapa sér í ruglinu og ætla sér of mikið. Best ég keyri einu sinni framhjá Ikea í þrjá daga áður en ég fer inná þetta bílastæði aftur.
Eða bíða bara eftir að útsalan sé búin. Það er líka hægt...